Eldri færslur fyrir mars, 2008

Gamalt en alltaf gott..

Skrifað af Axel Rafn

Þann 28. mars, 2008 kl 13:34

Þetta stendur alltaf fyrir sínu.. Skiptir ekki máli hversu oft maður horfir á þetta, maður verður hreinlega að dást að manninum!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Þróun hafin!

Skrifað af Axel Rafn

Þann 27. mars, 2008 kl 20:44

Já, er byrjaður á evo 1.1 núna, búið að bíða of lengi með nýju útgáfuna.
Það sem er nýtt er ma:

  • Nýtt viðmót sem fer mikið betur í fólk og er mikið einfaldara.
  • Hætt er að hafa miðlægt admin kerfi, nú er hver síða með sitt eigið (upplýsingar verða sendar í netpósti).
  • Ný eining: skráareining. Hægt er að upphala, niðurhala og vinna með hin ýmsu skjöl ásamt því að bjóða notendum upp á að sækja vissar skrár af síðunni.
  • Ný eining: margmiðlunareining. Núna er hægt að birta spilara sem ma. spilar mp3, flv, swf og wmv skrár.

Á mögulega eftir að bæta fleirri einingum inn, en sjáum til hvort að þetta sé ekki nóg fyrir x.1 uppfærslu ;)

Annars langar mig að hrósa atvinnubílstjórum varðandi mótmælin þeirra fyrr í dag í Ártúnsbrekku!
Ég er mjög ánægður með að þeir hafi tekið þetta skref og mæli með að allir sem eru á bíl taki þátt í næst þegar þetta verður. Sýnum ríkinu að við stöndum öll saman varðandi þessi rugl verð á olíu og bensíni!

Ég reyndar rakst á eina frétt á mbl sem ég .. hreinlega átti ekki von á að sjá.. hérna er umrædd frétt.
Ég einhvern vegin átti ekki von á því að málinu yrði vísað frá..

Svo var svona eitt í lokin.. Konan var að horfa á “Á Hæðinni” á S2 núna í töluðum orðum, og hver poppar ekki upp á skjáinn hjá okkur, að afhenda Santa Fe jeppling frá BL?! Engin annar en Berti kallinn!
Vildi bara skjóta því að honum að ég hafi séð hann ;D 


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Örlitlar viðbætur

Skrifað af Axel Rafn

Þann 27. mars, 2008 kl 10:59

Er að bæta smá við kerfið núna, þannig að ef þið lendið í því að fá einhverja villu á skjáinn, testið bara að refresh’a síðuna, ætti að vera búið að lagast innan 15 sek ;)

Er að reyna að koma inn eldri færslum inn á síðuna á þægilegan máta =)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Fyndið stuff

Skrifað af Axel Rafn

Þann 26. mars, 2008 kl 21:46

Rakst á hreint út sagt frábæran þráð á netinu áðan.. Hérna geturðu smellt á hann og séð hvað ég á við.
Skoðaðu vel hvað notandinn “wannabe1″ er einstaklega tregur og.. BOFH.. Sumu fólki er hreint ekki við bjargað!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Frægir vinir!

Skrifað af Axel Rafn

Þann 25. mars, 2008 kl 22:30

Var bent á það af frúnni að kíkja inn á mbl núna rétt áðan, og skoða auglýsingarnar vel..
Þar sá ég nokkrar auglýsingar, en ein vakti þó mikla athygli hjá mér..

Zúnki!

Þarna er hann Zúnki karlinn annar frá vinstri.. Hvernig er það (ég veit þú ert að lesa þetta!) á ekkert að segja manni frá svona?! =Þ
Skammastín drengur.

Annars bara flott hjá honum hvernig hann tekur sig út þarna =) 


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr