Smá comment

Það eru soldið margir búnir að spyrja mig af hverju ég sé ekki með comment í dagbókinni, the thing is.. þau eru til og virk ;)
Málið er að fólk verður að fara inn í sjálfa færsluna til að sjá svör við hverja færslu ;)

Ég ákvað að gera þetta svona til að síðan virkaði meira „pro“ ef svo mætti að orði komast.
Þið vitið allavega af þessu ;D 

Spurning um fyrstu almennilegu færsluna?

Er að melta að koma með fyrstu „raunverulegu“ færsluna inn. Hvort sem þetta sé hún eða ekki, það er annað mál ;)

Þetta er allavega búið að ganga frekar vel að skella þessum bakenda og framenda saman. Útlitið á bakendanum er soldið.. annað en þetta hefðbundna look sem ég hef gert. En það er ekki síðra ;) Kem kannski með smá preview við tækifæri.

Það sem er stórt stökk upp á við varðandi bakendann er það að ég er loksins kominn með WYSIWYG editor þar (TinyMCE) og get núna sett inn myndir með færslum og slíkt.

Annars er það að frétta að við hjúin skelltum okkur til London í þrjár nætur núna fyrir rúmri viku síðan, ferðin var hreint út sagt yndisleg, en ég ætla mér þó að koma með ferðasöguna alla í heild sinni síðar.
Þetta var jú voðalega gaman, en við söknuðum barnanna alveg rosalega.

Svo er ekki nóg með þá utanlandaferð, heldur ætlar Vodafone (frúin vinnur þar núna) að bjóða starfsfólki og mökum (makar borga lítillega) til Alicante á árshátíð Vodafone! Þannig að ég fæ virkilega tvær utanlandsferðir í ár. Sem er meira en.. nokkurn tímann!

Þeir sem þekkja mig vita að ég hef bara einu sinni farið út (ef þú telur ekki London ferðina með) og það var þegar ég var að ég held 11 ára gamall, þegar við fórum fjölskyldan til Dublin í verslunarferð.

Spurning um að hafa þetta nægilega stóra „fyrstu færslu“ í bili, á eftir að græja tvo hluti sem ég man eftir á síðunni eins og er.
Nr. 1 er að græja RSS feed af færslum og svörum lesanda.
Nr. 2 er að forrita „eldri færslur“ partinn í dagbókina.

Spurning um að halda áfram fyrst það liggur svona vel á manni og kannski opna vefinn núna? =D