Monthly Archive for apríl, 2008

Nýji Paul Potts?

Hver hefur ekki séð Paul Potts, sigurvegara Britain’s Got Talent..? Ég var aðeins að leika mér á youtube áðan og rakst þar á ungan strák, 12 eða 13 ára, sem hefur unun af söngi. Er laminn fyrir það af öðrum í skólanum sínum, en hann heldur samt áfram.

Fyrir þá sem ekki hafa eina einustu hugmynd hver Paul Potts er, þá læt ég vídeó’ið hans fljóta með líka..

Annars er það að frétta að ég tek núna tvær næturvaktir um helgina, það dauðvantaði mann til að sitja yfir sjúkling á Borgó um helgina þannig að ég tók því fyrir þá. Þýðir reyndar að helgin verður í tómu tjóni hjá mér.. verð frá miðnætti til 8 um morguninn í nótt og svo 20:00-08:00 næstu nótt.. voða gaman.

Svo er ég þannig séð búin með þennan media spilara sem ég talaði um hérna í einhverjum færslum aftur í tímann..
Spilarinn sjálfur er nottla open source flash app, en php dótið utan um það er eftir mig, ætlaði að eyða soldið meiri tíma í þetta en hef hreinlega ekkert náð að kveikja á hausnum á mér sl. viku.

Þið getið allavega kíkt á gripinn hérna


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Smá geðveiki..

Svona hjól á Biggi mágur.. vona hans vegna að hann sé ekki að reyna svona hérna á klakanum.. vegirnir eru nú ekki það góðir!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Pæling..

Ég er að melta það hvort ég eigi að reyna að ferja gömlu blogg færslurnar inn hingað á nýja bloggið með einhverjum máta.. 
Annars er ég að dunda mér við að forrita smá “media player” sem inniheldur öll og engin lög, birtist von bráðar í valmyndinni hérna til hægri.. þeas. þegar ég klára hann ;D 


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Frí!

Jæja.. kominn í vikufrí núna, er að vinna viku, frí í viku hjá Securitas =)
Fyrsta vikan gekk bara nokkuð vel, nappaði nokkra sem voru að stela og verð að játa það að sumir af þeim sem maður náði að nappa voru hreinlega ekkert .. öðruvísi en við hin, sem segir mér að ég verð að fylgjast meira með venjulegu fólki líka, ekki bara þeim sem stinga aðeins upp úr.

Í kjölfarið af því að hafa sett inn þetta úber happý lag í síðustu færslu, þá hef ég verið kallaður gay, nörd, auli og margt fleirra (allt í góðu samt) af vinum og vandamönnum.. Til að reyna ða næla mér aftur í smá vott af karlmennsku ákvað ég því að skella inn tveimur öðrum lögum hérna..

Lögin eru bæði af nýju plötunni með Bullet For My Valentine sem heitir “Scream Aim Fire” og er bara nokkuð góð verð ég að segja.
Sum lögin af plötunni eru actually þyngra en nokkuð sem ég hef heyrt frá þeim áður, maður sér vott af death metal í laginu “Waking the demon”.. en það er einmitt fyrra lagið sem mig langaði að deila með ykkur ;)

Seinna lagið er lag sem er mikið búið að spila á td. X-inu og heitir “Hearts burst into fire”, soldið rólegra svona í byrjun en samt .. þetta gítarspil er svoooooo flott =D
Dæmið sjálf:

En já.. ég er að melta að fara að græja nokkra hluti sem ég þarf að sinna.
Læt kannski heyra í mér síðar í dag =D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Musaxx

Ákvað að reyna að deila einu lagi með ykkur sem ég einhverra hluta vegna, ligg kylliflatur fyrir.. Skammir eru vel þegnar í commentin við þessa færslu ;)

Já.. þetta finnst mér voða gaman sem stendur ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr