Mest lítið að frétta héðan..
Er búinn að vera rosalega þreyttur og skrítinn eitthvað undanfarna daga.. vonum að það fari að rætast eitthvað.
Vildi allavega setja inn klausu til að sýna fram á það að ég er á lífi.. hva’meinarðu?! Ég er á lífi.. sorta.. =P
Monthly Archives: apríl 2008
Lítill, minni, minnstur
Lítið heyrst frá mér undanfarna daga, svo mikið er víst.
Ég hef allavega góðar fréttir að færa, fékk starf í dag hjá Securitas, þannig að við frúin getum andað aðeins rólegar núna =D
Annars er sama sem ekkert að frétta, er að vinna í Evo, Alika og *unnamed* vefi fyrir einn kúnna. Þó svo að það sé allt unnið samhliða gengur bara fínt.
Byrjaði svo aðeins (10 daga passi) að spila World of Warcraft aftur. Langar soldið að koma Zlordon karlinum upp í 70, þá allavega get ég notað það sem .. afsökun ? til að réttlæta allan þann tíma sem hefur farið í þetta yfir árin.. hehe
Kristín var reyndar veik heima í dag, undur og stórmerki gerast enn!
Var fín í gær þar til hún lagðist í bælið í gærkvöldi, fór þá að finna fyrir beinverkjum og eymslum. Fór reyndar í vinnuna í morgun en hringdi fljótlega uppúr 10:00 í mig og bað mig að sækja sig. Liggur núna bara í sófanum með hita og eymsli í öllum líkamanum.
Ætla *rétt* að vona það að ég smitist ekki af henni, á að byrja að vinna á þriðjudaginn í næstu viku =P
Annars er sama sem ekkert annað að frétta héðan nema þetta fáa hér að ofan… =P
Spurning um að hugsa vel og lengi og athuga hvort mér detti eitthvað annað til að setja inn síðar í kveld ?