Monthly Archive for júní, 2008

Frívika að byrja

Jæja, best að taka upp pennan aftur og fara að rita inn færslur á síðuna. Búinn að vera að vinna alla vikuna og nokkur ævintýri komið og farið en þó ekkert jafn stórt og það sem kom fyrir í dag.

Ég kannski skelli því sem gerðist áðan inn á morgun, er full þreyttur sem stendur og börnin eru komin heim (voru í sveitinni yfir helgina) þannig að ég er að pæla í að leyfa þeim að kúra í rúminu okkar í nótt =)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Tónlistarunun

Ég hef verið að hlusta á gamla og góða plötu sem ég fann hérna. Var búinn að leita að henni í frekar langan tíma, en loksins fann ég hana og blasta á fullu! Umrædd plata heitir “For the masses: Depeche Mode Tribute” og inniheldur mörg af bestu lögum Depeche Mode í nýjum flutningi flytjenda héðan og þaðan úr tónlistarflórunni. Meira að segja GusGus taka Monument þarna á plötunni.

Ég á mér nokkur uppáhaldslög á disknum sem er ástæðan af hverju ég leitaði svona mikið að honum, en meðal þeirra eru snilldarleg útfærsla Deftones á “To have and to hold“, Failure með sína útgáfu af “Enjoy the silence” og svo að sjálfsögðu fyrsta lagið sem ég heyrði sungið á ensku með Rammstein, “Stripped“.

For the masses: Depeche Mode tribute

Annars er það að frétta héðan að ég sit hlekkjaður við borðið að forrita eins og mér væri borgað fyrir það .. wait a second.. I AM! Einnig er ég brenndur á enninu og andlitinu á því eina að fara út á svalir og fá mér sígó.. merkilegt hvað húðin á mér er fáránlega viðkvæm fyrir sólinni =/

Það styttist í flutningana hjá okkur næstu mánaðarmót.. tíminn er allt of fljótur að líða þegar maður má ekki við því =P Við erum þó líklegast búin að redda bílnum, þökk sé Berta. Nú þarf ég bara að redda fleirri kössum og svo lítilli trillu til að geta staflað kössum á og trillað þeim þannig inn á nýja staðnum. Fljótlegra og einfaldara þannig.

Annars rakst ég á alveg einstaka frétt á mbl.is í dag! Sú grein fjallar um að íslendingar séu farnir að vera duglegri við að kaupa sér fyrirframgreidd kort til að nota í iTunes verslun bandaríkjamanna. Síðast þegar ég vissi þá var ekki ólöglegt að sækja efni af netinu, heldur væri ólöglega athæfið að deila efni yfir netið (ss. download = löglegt, upload = ólöglegt).. Þannig var allavega skilgreining Smáís og fleirri aðila þegar stóra DC málið var og hét, einnig í istorrent málinu sem ætlar aldrei að enda (að mér virðist).

Það sem fer fyrir brjóstið á mér eru þau tvö comment sem haft er eftir í fréttinni, annars vegar frá Snæbirni Steingrímssyni,
framkvæmdastjóra Smáís og svo hinsvegar Eiríki Tómassyni lagaprófessor.

Það sem þeir vilja meina er að þetta sé ólöglegt, en eins og Snæbjörn segir:

“Þetta er ólöglegt á Íslandi,“ segir Snæbjörn Steingrímsson,
framkvæmdastjóri Smáís. „Við höfum hingað til ekki farið í málaferli út
af iTunes því við sjáum að fólk er að reyna að fara löglegu leiðina.”

Þannig að nú spyr ég (mögulega eins og fáfróður asni) en hvað nákvæmlega er ólöglegt við að versla tónlist að utan.. Ætlar Smáís að fara að setja bann á það að menn versli sér tónlistardiska frá/í útlöndum núna ?

Miðað við allt sem ég veit um þessi lög sem gilda um niðurhal á efni, þá brýtur þetta engin þeirra. iTunes virkar þannig að þú borgar fyrir vöru, sem þú síðan sækir af netinu í gegnum iTunes forritið. Þú ert ekki að senda neinum þetta á leiðinni, heldur sækir beint af þjónum hjá Apple/iTunes. Ef Smáís ætlar virkilega að setja eitthvað út á þetta og/eða banna.. þá eru þeir basicly að segja að allar vefverslanir sem bjóða upp á niðurhal af síðunni þegar gengið hefur verið frá greiðslu í stað þess að fá sendan disk með hugbúnaði/tónlist/whatever heim til sín, séu ólöglegar!

Er þetta bara rugl í mér eða stenst þetta nokkuð miðað við allt sem hefur verið sagt og gert að hálfu Smáís í gegnum þau mál hér á landi sem ftp/dc/torrent og slíkt var notað í ?

Og já.. eitt í lokin! Smáís.. Just in case að þið lesið þetta, þá þykist ég vita það að þið bannið það að hlekkja á síðuna ykkar af öðrum síðum (líkt og ég er búinn að gera ítrekað hér að ofan).. en vitiði.. það skiptir engu máli hvað þið setjið í skilmálana á YKKAR vef, þið ráðið ekki yfir vefsíðum annars fólks! Ég hef ekkert á móti mikið af því starfi sem þið hafið gert í gegnum tíðina, en stundum þarf maður bara að átta sig á því að það þýðir ekki að berjast við vindmyllur endalaust.

Og meira hef ég ekki að segja í bili! Ætla að fara að forrita aftur, hehe


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Ég legg til …

… að það verði gert eitthvað næstu helgi!

Mig klæjar svoooo í puttana að gera einhvern skandal af mér, á nóg af víni í skápnum, möguleikann á pössun.. WHAT TO DO!?

Drunk 2k8

Mig langar helst að vera svo drukkinn að ég muni varla eftir parti af kvöldinu, don’t ask me why, en mig langar í svona fyllerý eins og maður man eftir þegar maður var á sínum yngri árum.

Getur verið að þetta einhver “midlife crysis” í gangi hjá manni? Eða partur af henni ? =P Má svossum vel vera, en mér er nokk sama, langar bara að skemmta mér aðeins til að lyfta sér upp og rífa upp það sem er orðið að hefðinni í dag.. þeas. að vinna, frí, vinna, frí.. etc.

Hvað segiði.. who’s in?


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Jæja..

Þá er búið að laga CSS kóðan á síðunni þannig að hún virki í öllum vöfrum, á öllum OS’um sem ég hef aðgang að ;) Og síðan ætti ekki að fá kvartanir undan því að vera of breið núna!

Annars er Firefox 3 að gera mig að mjög ánægðum manni í dag =) Mikið fljótari en Firefox 2.x og svo er búið að bæta svo mörgu við og betrumbæta eldri kosti, you have to see it to believe it samt ;)

Dagurinn í dag fer líklegast allur í forritun, frúin er reyndar heima veik sem stendur, þannig að það má vel vera að maður verði henni eitthvað innan taks samt í stað þess að einblína á Dreamweaver í allan dag.

Ég stefni allavega á að reyna að klára Stillingarnar í Scribe:CMS til að geta vippað RSS’inum í gagnið.. verð ánægður þegar það er komið!

Ef einhver lendir í einhverju veseni með síðuna og/eða sér eitthvað athugavert væri gott að fá að vita af því, til að ég geti lagað þá. En sem stendur þá ætti allt að virka 100% í normal compliance vafra nútímans, meirað segja IE7 hlýddi mér! Merkilegt nokk =D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Firefox 3 kominn!

Firefox 3 er komin fyrir Mac, Windows og linux, stable og official! Ef þú ert ekki kominn með hann ennþá, þá geturðu smellt hérna og séð vídeó kynninguna sem þeir eru með á síðunni sinni. Margar nýjungar hjá þeim til hins betra ;)

Ég kem kannski með smá review á morgun ef ég sé tilgang með því ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr