17 júní!

Jæja, þá er komið að deginum =)
Við erum að gera okkur tilbúin til að fara með börnin í bæinn, spurning hvernig það verður að fá stæði sem næst miðbænum.. Endalaust ævintýri það alltaf.

Af okkur er annars fínt að frétta, búin að skemmta okkur hérna heima í gær og í dag, verður svo grillað í kveld, spurning hvort maður fái aftur þetta ógeðslega góða kjöt sem við vorum með síðast.. shit hvað það var gott! (manstu Jana?).

Í tilefni dagsins ákvað ég að skipta um bakgrunn á vélinni hjá mér, getið séð skjáskot af vélinni hjá mér með því að smella á neðanverða mynd.

Mac OS X 17. júní 2008

Varúð, skjáskotið er um 2MB, þannig að sumir gætu lent í smá veseni að birta hana (hægari tölvur á hægvirkum tengingum).

Smá fréttir af Scribe:CMS.. ætla að skella inn RSS fyrir fréttir, blog og comment síðar í dag. Sjáum til hvernig það gengur ;D

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>