Þá er búið að laga CSS kóðan á síðunni þannig að hún virki í öllum vöfrum, á öllum OS’um sem ég hef aðgang að ;) Og síðan ætti ekki að fá kvartanir undan því að vera of breið núna!
Annars er Firefox 3 að gera mig að mjög ánægðum manni í dag =) Mikið fljótari en Firefox 2.x og svo er búið að bæta svo mörgu við og betrumbæta eldri kosti, you have to see it to believe it samt ;)
Dagurinn í dag fer líklegast allur í forritun, frúin er reyndar heima veik sem stendur, þannig að það má vel vera að maður verði henni eitthvað innan taks samt í stað þess að einblína á Dreamweaver í allan dag.
Ég stefni allavega á að reyna að klára Stillingarnar í Scribe:CMS til að geta vippað RSS’inum í gagnið.. verð ánægður þegar það er komið!
Ef einhver lendir í einhverju veseni með síðuna og/eða sér eitthvað athugavert væri gott að fá að vita af því, til að ég geti lagað þá. En sem stendur þá ætti allt að virka 100% í normal compliance vafra nútímans, meirað segja IE7 hlýddi mér! Merkilegt nokk =D