Fair warning..

Nú heyrast eflaust há öskur frá frúnni þegar hún kemst að þessu.. en ég er mikið að pæla í að breyta um útlit á síðunni hjá mér =P
Ég veit reyndar ekki alveg 100% hvernig ég ætla að breyta.. en ég hef fengið nokkrar kvartanir útaf síðunni upp á breiddina að gera, ég taldi mig öruggan á sínum tíma þegar þetta look var sett saman að skjóta á að fólk væri að nota minnst 1280px breiða skjái.. en svo er víst ekki =P Þannig að ég ætla allavega að laga þetta look, eða henda nýju saman..

Annars er ég að farast mig langar svo í nýtt tattoo.. Búið að langa lengi reyndar að fá mér stæðilegt tattoo á hægri upphandlegg og öxl. Hér er mynd af álíka tattoo’i og mig langar í.

Sleeve

Þetta er allavega í áttina að því sem mig langar í. Konan þverneitar að leyfa mér þetta.. þannig að ég er að reyna að finna út hver „millivegurinn“ sé í þessu máli ;) Snýst ekki hjónaband um málamiðlanir annars? *glott*

Lífið er nám..

Það sagði allavega einhver snillingurinn í denn.. En ástæða þessa titils er það að ég er mikið að pæla í að fara í nám núna fljótlega.
Hvaða nám spyrðu sjálfa/n þig? Nú að sjálfsögðu er það tölvunarfræði í HÍ.

Mér skilst að það væri best að skrifa ritgerð til að senda inn með umsókninni og útskýra af hverju ég tel að ég eigi að fá að stunda nám við HÍ, þetta var mér sagt af Þórunni sem vinnur með mér í Securitas, hún hefur verið í námi þarna og það var hún sem sagði mér frá því að ég ætti að hypja mig í skóla og ná mér í gráðurnar sem væru réttlega mínar. Hún benti mér einnig á að þeir sem eru orðnir 25 ára að aldri fá inn þó þeir séu ekki með stúdentspróf, hafi þeir reynslu í starfi eða álíka á því sviði sem þeir vilja leggja nám á.

Ef allt gengur upp gæti verið að maður verði orðin námsmaður aftur núna í haust eða eftir áramót.. spurning samt hvernig það verður.. soooooldið langt síðan ég var í skóla =P

En já, pizzan góða sem ég ætlaði að fá mér í hádegismat var að hringja (ofninn, ekki pizzan).. ætla að fá mér að snæða og byrja svo kannski bara á ritgerðinni ;)

dömm dí dömm

Jæja, þá er vinnuvikan hjá Securitas búin! Búið að vera fjör þessa vikuna (not).. harla margt að gerast hjá okkur.

Þórunn sem ég vinn með gaf mér smá hugmynd fyrir vef sem ég er mikið að pæla í að gera, vefur sem er ekki til á landinu sem stendur og mér vitanlega stendur ekki til að gera slíkan vef.. þannig að ég gæti bara verið að gera þvílíkt góðverk með að hanna og forrita svona vef ;D

Var annars bara að koma heim úr vinnunni fyrir ekkert svo löngu, allir steinsofandi hérna á þessu heimili þegar ég kom heim, frúin líka! Spurning hvort að maður fari ekki að halla sér fljótlega sjálfur. Ætla samt að reyna að henda saman útliti fyrir ofangreindan vef.

Vikan að enda!

Eins skelfilega lengi og þessi vika er búin að vera að líða, þá er ótrúlegt en satt komið að sunnudagsvaktinni.. sem þýðir.. *FAGN* síðasti vinnudagurinn í þessari viku!
Óttarlega lítið búið að gerast í þessari viku.. svo lítið að maður hefur hálfpartinn verið að keppast við að sofna ekki í hitakompunni =P

Annars er allt fínt að frétta af manni, lítið um fréttir eins og gengur og gerist þegar maður er að vinna 90% af þeim tíma sem maður er vakandi yfir heila viku..
Ég fékk þó brainstorm í gær varðandi síðu sem ég ætla mér að forrita.. svo er ég að pæla í að stefna í HÍ sem fyrst og ná mér í eins og eitt stykki Bs.c. Skilst að það sé víst einhver regla um það að ef þú ert orðin 25 ára eða eldri, þá er nóg fyrir þig að vera með grunnskólapróf til að fá inngöngu í háskólana hér á landi. Ég var nottla minn skerf í IR á sínum tíma, en náði mér aldrei í stúdentinn .. =/

Þeir sem eru eitthvað inní háskólamenntun hér á landi, jafn vel þeir sem hafa verið í einhverju „tækni og tölvu“ námi, mega endilega setja sig í samband við mig þar sem ég er með nokkrar spurningar sem mér þætti vænt um að fá svar við áður en ég set mig í samband við skólann ;)

Fyrsti vinnudagurinn búinn

Shit hvað ég hélt að þessi dagur ætlaði aldrei að enda..
Mér er búið að vera svo siiiiiiick heitt í allan dag, svitnandi eins og svín inn í litla búrinu mínu =P

Fékk reyndar góðan félagsskap í dag, Þórunn og Jónatan voru við hjá mér af og til í dag.

Fékk svo ansi skemmtilegt símtal frá Krít í morgun þegar ég mætti í vinnuna, Helga gella er þar og leiddist víst heil ósköp (eða að hún var bara að kasta kveðju á mig). Hún lá í 38°c heitri sólinni og var að baka sig vel á báðum hliðum skildist mér.

Annars leggst þessi vika bara fínt í mig, skrítið að vinna frá 10 um morguninn til 21, en þetta venst fljótt held ég. Nottla frábært starfsfólk hjá Securitas og Hagkaupum þannig að tíminn líður hratt. Var reyndar soldið skrítið að Símon karlinn er fluttur á milli staða, en við hljótum að redda okkur =)

Annars er ég að bæta einingunum við í Scribe á fullu, ætla að rigga fyrir frúnna gestabókina í kvöld (ef ég hef orku!) og svo mótsvaraeininguna (til að admin’a þau fáu comment sem ég fæ *hóst*). Sjáum hvernig gengur!