Vinnuvikan byrjar

Jæja.. þá er vinna núna á eftir kl 10:00.. og ég verð mest megnis frá alla vikuna.. vonum samt að ég hafi einhverja orku til að koma með eitthvað í vikunni inn á síðuna. Ef ekki, þá verð ég bara duglegri í næstu viku ;)

Ein spurning samt fyrir þá sem lesa þetta blogg mitt.. Hvað finnst ykkur að gott bloggkerfi eigi að bjóða upp á ? Er að leita eftir fleirri möguleikum í Scribe:Blog (það sem ég er að keyra á bakendanum hérna núna).. langar að sjá hvað aðrir segja við því hvað er „essential“ að hafa í svona kerfi ;)

May the force be with you!

Scribe komið í notkun!

Scribe:CMS í notkun

Já! Scribe 1.0.5 er komið í notkun á síðum okkar hjónakornanna.
Var að dunda mér rétt áðan að ferja síðurnar úr gamla kóðanum sem ég gerði yfir í Scribe.. og þvílíkur munur! Meira að segja konan er í skýjunum yfir þessu =D

Eins og er þá erum við bara að nota tvær einingar af þeim sem ég er að forrita, dagbókar og undirsíðu einingarnar.. En þetta rís fljótt held ég ;D

Annars er ég að pæla í að skríða í bælið núna.. klukkan orðin allt of margt, ég þreyttur.. og vinna kl 10:00 í fyrramálið! GN!

Eitt vídeó

Áður en ég hlekkja á vídeó’ið sem mig langar að sýna ykkur, smá saga.

Málið er að þetta vídeó var tekið upp á Alicante þegar fyrri hópurinn fór út vegna árshátíðar Vodafone núna í maí.
Þetta vídeó er tekið annað kvöldið okkar úti, sumir eru enn fullir frá föstudeginum (daginn sem við lentum) aðrir eru að hita sig upp fyrir árshátíðarkvöldið sjálft (sem þetta vídeó er frá).

Ég vippaði upp símanum og byrjaði að taka vídeó af Skara og Svavari, þeir reyndar héldu að ég væri að fara að taka mynd af þeim en ekki vídeó, þannig að þeir stilltu sér upp.. ;) ég var ekkert að flýta mér að segja þeim frá því að ég væri að taka upp vídeó samt ;D

Hlekkurinn á vídeó’ið er hérna.

Ég hef annars tekið ákvörðun að vera ekkert að setja inn eins mikið af vídeó’um á bloggið og ég hef gert hingað til, laggar síðuna og þeir sem vilja skoða vídeó’ið geta frekar smellt á hlekk til að opna vídeó’ið í nýjum glugga ;)
Má vel vera að ég græji einhvern pop-up frekar sem spilar bara vídeó og noti hann í blogginu.. jafnvel þægilegra en að load’a heilli síðu (td. youtube.com) til að skoða eitt lousy vídeó ;D

On another note .. þá held ég að ég hafi aldrei verið jafn duglegur við að blogga.. gæti vel verið að maður sé með eitthvað complex innst inni yfir því að blogga ekkert aðra hvora viku þannig séð, þegar ég er að vinna í Securitas. Who knows..

Eitt comment varðandi broskallana mína (já Jana.. nú lít ég í þína átt!), fékk comment í gær að ég væri sá eini sem notaði gömlu góðu broskallana (td. =), ;D og ;) ).. Fékk reyndar ekki upp úr henni hvort það væri gott eða slæmt.. en ég lifi sáttur með þá |-)

En já.. læt þetta duga í bili! Ciao!

Tuð!

Ákvað að skamma frúnna aðeins í gegnum bloggið hjá mér, þar sem það virðist vera þannig að hún lesi mitt meira en gengur og gerist, auk þess að hún commentar oftar við færslur hjá mér en hún bloggar á sinni eigin síðu..

Here comes the rant: „Kristín! Bloggaðu nú!

Annað var það ekki í bili ;D

Góður dagur

Dagurinn í dag var mjög góður dagur.
Jana kom í heimsókn með stelpurnar sínar tvær þær Birgittu og Margréti til okkar í dag og við leyfðum börnunum að leika sér saman, grilluðum svo frábærar grísakótilettur og spjölluðum saman.
Ég var að vísu skammaður fyrir að eyða of miklum tíma í tölvunni á tímabili, en mér til afsökunar var ég að vinna í útliti fyrir einn kúnna.

Börnin voru mjög góð í allan dag, stelpan tók reyndar smá kast þegar þau voru að fara í háttinn, þar sem að strákurinn fékk að horfa smá á Latabæjar DVD í PS2 vélinni inn í herbergi, stelpan sá það og missti sig í smá stund. Hún reyndar róaðist niður þegar Kristín byrjaði að lesa fyrir hana eina litla sögu.

Varðandi útlitið sem ég var að vinna við að gera í dag, þá set ég kannski smá skjáskot af því við tækifæri, ætla samt fyrst að leyfa kúnnanum að skoða það fyrst ;) Var að enda við að senda það í pósti áðan þannig að við bara bíðum og sjáum til ;D

Annars er það að frétta að vinnutíminn hjá mér í Securitas er búinn að breytast, nú vinn ég alla morgna frá 10 og er til 21 alla daga nema fimmtudaga, þá er ég til 22:00.. Kringlan er náttúrulega opin til 21:00 á fimmtudögum, þess vegna er ég klst lengur á fimmtudögum.

Annars gengur forritun á Scribe vel, mv. þann litla tíma sem ég hef í það vegna annara verkefna. En þetta er allt á réttri leið ;)
Læt kannski heyra í mér á morgun og skelli mér í bælið núna..