RSS v2!

Jeij! Fékk þetta dót til að virka sem skildi.. Mail les þetta núna og guess what!? Timestamp’inn er loksins réttur, annað en hann var á gömlu síðunni ;) pre Scribe:CMS þeas ;D

Er núna að ljúka við stillingar í bakendanum, til að geta stillt allt og ekkert varðandi síðuna.. feature’ar sem eru að koma inn í Scribe:CMS núna við gerð þeirrar einingar eru:

  • Möguleiki á að læsa síðu með lykilorði.
  • Möguleiki á að setja texta sem birtist ef síðu er læst með lykilorði.
  • Möguleiki á að stilla nafn og netfang eiganda síðunnar, titil síðunnar, leitarorð (keywords) og lýsingu fyrir leitarvélar.
  • Möguleiki á að stilla fjölda færslna sem birtast á frétta/blogg parti síðunnar, einnig stillingar fyrir fjölda færslna sem birtast í RSS straumum fyrir bæði fréttir/blogg og mótsvör lesanda við þeim færslum.

Þannig að það er ekki hægt að segja að ég sitji bara borandi í nefið og starandi í loftið ;)

Þegar ég er búinn að græja þessa stillinga einingu og alla virkni við það þá verður komin RSS straumur hingað á síðuna sem verður bæði hlekkur á og embeded í síðuna (í header skjalsins). Læt í mér kveða fljótlega ;D

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>