Smá breytingar

Eins og kannski glöggir lesendur hafa tekið eftir þá er síðan að breytast smá og smá.
Ákvað að henda inn nokkrum „auka features“ á síðuna fyrst ég er að reyna að virkja á mér hausinn. Ég forritaði smá function til að birta dagsetningar við hverja færslu á grafískan máta (grafík+plain text), mér hefur alltaf fundist slíkt soldið flott á síðum sem ég hef verið að skoða í gegnum tíðina.

Annars er ég búinn að vera að melta þetta hvort ég eigi að vera að breyta allri síðunni eða bara laga hana aðeins, konan segir mér eflaust að ég eigi bara að laga, en ekki að gera nýtt frá grunni. Hún hefur gert athugasemdir á mig í gegnum tíðina að ég skipti oftar um útlit á vefum sem ég hef haldið úti en .. já, margt annað.. in other words, ég sé *ALLTOF* duglegur við að breyta og „betrumbæta“ síðurnar mínar.
Hún kvartar hinsvegar ekki yfir því að ég hafi líka hent þessu grafíska í gang á hennar vef ;)

Annars fer Scribe að nálgast final, stable útgáfu 1.0 =D Og að beiðni ma. Victors frænda, þá mun ég setja upp demosíðu sem keyrir Scribe til að fólk geti testað og séð hvort það finni einhverja bug’a eða hafi einhverjar ábendingar.

Þegar sú síða fer upp, þá mun ég setja upp góð leiðbeiningarskjöl sem verða í kerfinu og slíkt, þannig að fólk átti sig á hvað er hvað (sem er reyndar .. ekki flókið að hreinlega sjá með eigin augum). En það er seinna tíma „vandamál„.

Ég er að melta að fara í það að klára Mótsvör og Stillingar í kerfinu núna, læt í mér heyra síðar með fleirri fréttir ;D

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>