Endalaus þreyta

Jæja.. þá er kannski komin tími á almennilega færslu hingað inn ;D

Þannig er allavega mál með vexti að við erum núna flutt úr Eyjabakkanum hingað niður í mjódd (tæknilega séð) og erum hægt og rólega að koma okkur fyrir á nýja staðnum. Konan tók svipuna upp fyrst og er búin að nota hana óspart undanfarna daga.. Krakkarnir eru svo í sumarfríi sjálf í leikskólanum þannig að við erum öll fjögur heima þessa vikuna og það er.. ekki auðvelt líf =P Krakkarnir eru komnir á eitthvað frekjuskeið sem er að gera útaf við okkur foreldrana og við erum nokkrum dögum frá því að láta leggja okkur inn á klepp ef eitthvað lagast ekki fljótlega.

Vinnutengt í fréttum þá er ég að ná að ljúka 4 verkefnum núna á næstu dögum vonandi og birti ég þau verkefni á viðeigandi stað á síðunni þegar þeim er lokið. Eitt verkefnið er fyrir móður vinar míns en hún heldur úti lítilli búð í miðbæ Reykjavíkur og hana dauðvantaði nýja síðu.

Svo fór ég með MacBook’ina mína til Villa núna um daginn og hann reddaði mér nýjum ramma utan um allt dótið, sá gamli var rammskakkur og leiðinlegur eftir að vélin flaug í gólfið. En við þá viðgerð tókum við eftir að mic’inn fyrir ofan skjáinn var skiljanlega dauður þar sem annar af þeim tveim vírum sem tengja hann við móðurborðið var losnaður frá mic’inum, skiptum því um hann í leiðinni. Núna get ég farið að taka upp vídeó og testa að skella inn svokölluðu video-podcast’i.

En já, held ég láti þetta duga í bili og reyni að gera eitthvað gagn hérna heima við.

Smá líf..

Vildi bara koma með smá klausu inn til að tilkynna að ég er ekki dauður enn ;)
Vorum bara að flytja og læti, svo er vinnuvika hjá mér núna hjá Securitas, þannig að það er ekki mikið sem maður getur verið í tölvunni. Netið var nú fyrst að komast í nothæft ástand hérna á nýja staðnum fyrr í kvöld (um tólf leytið) þannig að .. ég er nú barasta duglegur að koma með færslu fyrst það kom svona seint ;D

Læt í mér heyra fljótlega þegar þessi vika er liðin, bara 2 dagar eftir af vikunni hjá Securitas núna =)