Ég ætla að lýsa smá rugli sem er búið að vera í gangi núna..
Málið er að Kristín fór með börnin upp á Flúðir fimmtudaginn 31. Júlí og það kvöld kom ónafngreind vinkona mín í heimsókn til mín, vorum að spjalla um allt og ekkert sem hvílir á öxlum okkar og slíkt, horfðum á vídeó og svo fór hún heim. Nema hvað, ca 5 mín eftir að hún fer héðan þá hringir síminn minn, sé ekkert númer, blikkar bara „Leyninúmer“ á skjánnum, ég svara og þar er kvenmaður sem kynnir sig sem leynilegan aðdáanda minn og að hún vilji bara heyra í mér hljóminn, klukkan hálf eitt á aðfaranótt fimmtudags.. Ég skelli bara á og þá hringir síminn strax aftur, same thing „Leyninúmer“, ákvað að skella bara beint á.
Ég reyni svo að hringja í Kristínu og athuga hvort þetta sé eitthvað djók í henni og vinkonum hennar upp á Flúðum (gætu hafa verið komnar í glas eða eitthvað, hvað veit maður), en nei, þá hafði henni verið sent MMS með 3 myndum af bílnum sem vinkona mín var á og húsinu okkar hérna, síðasta myndin var svo af henni labbandi að bílnum sínum.
Þetta myndi ég telja vera brot á friðhelgi, að sitja um mann og annan, takandi myndir og reyna að skemma eitthvað fyrir fólki..

Allavega, núna áðan vorum við niðurfrá á lögreglustöðinni, þar sem okkur er tjáð að það sé í raun ekkert sem við getum gert þar sem engin lög hafi verið brotin.. Við eigum semsagt bara að gúddera það að það sé í lagi að stalka fólk!?
Ég spurði þá hvort að það væri lögbrot ef ég hefði samband við hina ýmsu sem ég þekki hjá ma. Símanum, Tal, Vodafone oþh. fyrirtækjum og finndi út sjálfur hver þetta væri til að hreinlega loka á viðkomandi frá okkar dyrum (meina.. maður vill ekki vera að babbla um hitt og þetta við aðila sem er svo ekki treystandi!).. en nei, þá er ÞAÐ lögbrot af aðilanum sem myndi afhenda mér þau gögn..
Þannig að núna er í raun ekkert sem ég get gert, mér vitanlega, til að komast að því á löglegan hátt hver þetta er.. Ætla reyndar að ræða við lögfræðing útaf þessu og athuga hvort það sé séns að td. fá dómsúrskurð um að fá gögnin afhent frá Símanum/Vodafone etc.. og fá þannig að vita hver þetta er án þess þó að kæra málið þar sem engin lög voru brotin greinilega..
Er þetta virkilega réttur venjulegs borgara?! Að þurfa eyða mögulegri fúlgu í lögfræðing til að fá dómsúrskurð sem mögulega maður fengi ekki hvort sem er.. Manni er bara spurn..