Ég hef verið að hlusta soldið mikið á nýja diskinn frá Slipknot og verð að játa það að ég átti seint von á svona rólegu lagi frá þeim..
Lagið heitir „Snuff“ og er lag nr 11 á nýja disknum þeirra „All Hope Is Gone„.
Mjög rólegt lag sem hljómar bara.. mjög vel !
Svo er annað lag á disknum sem heitir „Psychosocial“ sem er meira í gamla gírnum sem maður man eftir ;)
Annars er óttarlega lítið að frétta héðan..
Duttum að vísu í það í gærkveldi.. drakk svooooo mikið á alltof stuttum tíma að ég held hreinlega að ég hafi enn verið í glasi þegar ég vaknaði.. Annað hvort það eða ég hafi verið (og er) svona skelfilega, SKELFILEGA þunnur =P
Það ættu að vera lög fyrir þessu til að hindra að fólk geri sér þetta.. Måske er ég bara svona gamall, eða bara ekki í formi.
Annars er ég að melta hvort maður eigi að fara að æfa Karate aftur, koma sér í form og liðka sig til. Losna við bumbuna mína og fá kannski smá vöðva, aldrei að vita. Var reyndar að skoða nokkur vídeó af Tae Kwon Do á youtube, merkilegt hvað það er mikið action sport!