Ég er búinn að vera að “dútlast” aðeins í síðunni núna í kvöld, setti ma. inn 2 nýja bannera sem skiptast á með þeim sem byrjaði í dag.
Skellti bara 2 línum af kóða inn til að rigga það, elska hvað PHP er einfalt og þæginlegt.
Reyndar ein pæling í gangi hjá mér núna, hætta í bili í því að forrita sérverkefni fyrir kúnna.. Þetta tekur svo skelfilega mikin tíma sem ég gæti annars verið að eyða með ma. börnunum
Ég er td. búinn að vera að vinna að einni síðu núna í nokkra mánuði, frekar stórt og flókið kerfi, er jú að nálgast lokin en samt.. Tíminn sem er búinn að fara í þetta er sjúklega mikill!
Ég mun halda áfram að forrita sjálfur bara fyrir mig og eitthvað svolleiðis, halda áfram að þróa Scribe:CMS (kerfið sem ma. þessi síða er keyrð á), gera eitthvað sniðugt á dip.is (síðan þar er löööööngu dauð) og eitthvað slíkt.. en ég er samt mikið að pæla í að hætta að taka að mér borgandi forritunarverkefni.
Annars er lítið að frétta héðan, er að fara á morgun að gera soldið sem ég ætla ekki að minnast á nákvæmlega hvað er, fyrr en ég er búinn að því á morgun (óttarlega er maður cryptic).
Svo er málið sem kom upp í síðustu vinnuviku hjá Securitas..
Málið er að ég er, eins og flestir vita, staðsettur í Hagkaup í Kringlunni og það eru aðrir öryggisverðir í Kringlunni sjálfri. Nema hvað, þegar það er mikið að gera, slagsmál eða stór mál, þá er ég boðaður út úr Hagkaup til að aðstoða. Sem er ekkert nema gott, fínt að fá að skipta aðeins um umhverfi í smá stund.
En allavega, í síðustu viku lentum við í því að það var HIV smitaður sprautufíkill sem veittist að einum öryggisverðinum með notaðri nál, hljóp á eftir henni öskrandi.. ekki beint, nice mál.. =/
Yfirmenn Securitas vilja meina að þetta sé næst alvarlegasta mál sem komið hefur upp í Kringlunni frá upphafi. Þetta hafði allavega ekki góð áhrif á þá sem var elt af kerlingunni snaróðu, mig né nokkurn sem var þarna og sá þetta.
Spurningin mín er.. hvert í ósköpunum stefnum við ef þetta er “daglegt brauð”.. Svo fékk ég þær fréttir fyrr í dag að þegar öryggisvörðurinn ætlaði að kæra málið, líkamsárásina og, að mínu mati, morðtilraunina.. þá er henni tjáð að þetta gagnist ekkert þar sem *ekkert verði gert*, það þýði ekkert að gera neitt fyrst þessi manneskja væri eins og hún væri?
Hvað er í gangi? Fyrst fær maður að heyra þetta með MMS/Stalker málið okkar í vikunni, svo þetta.. En þarna eru samt lög BROTIN.. Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að fá kæru í gegn á þessa manneskju ?
En já, ætla að fara að forrita meira.. Læt í mér heyra aftur síðar =)
0 Responses to “Smá dútl”