Monthly Archive for september, 2008

Hitaslag

Ég er við það að fá hitaslag hérna, það er heitara úti núna en hefur verið undanfarna daga sem merkir að hitinn hérna inni er fáránlega hár og ég er svo mikil kveif að ég þori nánast ekkert að opna gluggana né svalahurðina sökum þess að ég er að sjá aaaansi stóra skugga fljúga hérna framhjá glugganum mínum (býflugur og geitungar). Hitti einn geitung út á svölum, brá heldur betur þegar ég sá hann, er hreinlega ekki frá því að það var mjög píkulegt píp við það að koma úr mér þá.. Náði þó guði sé lof að halda því í mér! =D

Annars er flest allt ef ekki allt gott að frétta héðan, er að fá fleirri verkefni og er að fara að kynna nýja verðskrá á hýsingu hjá Evolution (margir verða hissa þegar þeir lesa hana).. Nóg að gerast =D

Annars fer að koma að því að ég þurfi að fara að skutlast og ná í frúnna og börnin, spurning um að ljúka þessari færslu og halda áfram..


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Wordpress 2.6.2

Líf með Wordpress gengur bærilega, er búinn að setja upp hin og þessi plugins, testað hitt og þetta í kerfinu og svona. Nokkuð sáttur með hve mikið er búið að gera við Wordpress frá því ég prófaði það síðast.
Búið að gera rosalega margt betur en var, sem er ekkert nema gott =)

Mér reyndar blöskraði soldið að sjá eitt.. Það eru rosalega margir íslendingar sem nota Wordpress og það eru tvær þýðingar til sem ég hef fundið, báðar eru listaðar á wordpress.org.

Málið er hinsvegar að önnur þeirra er fyrir útgáfu 2.5 og bara 85% kláruð (ca), hin er hinsvegar fyrir nýjustu útgáfuna.. og ég er ekki að gera lítið úr þeirri vinnu sem er búin að fara í að gera þá þýðingu, en sú þýðing notast við þá fornaldarlegustu íslensku sem ég hef nokkurn tímann lesið. Sum orðin voru hreinlega.. ólæsileg.

Sem dæmi þá var “update” þýtt sem uppnýja, það hef ég aldrei heyrt um áður, “update” er nú venjulega þýtt bara sem uppfæra, hefur verið það í öllum þýðingum sem ég hef snert / notað / séð .. Hvernig dettur fólki í hug að breyta einhverju sem hefur verið notað í allan þennan tíma bara svona.. allt í einu ?
Þetta hefur allavega orsakað það að ég er byrjaður á minni eigin þýðingu sem ég mun vera með hér á síðunni til að fólk geti sótt og notað, en aðallega verður þetta fyrir mína eigin síðu og þær síður sem ég hýsi fyrir vini og vandamenn.

Annars er ég að melta hvernig look ég eigi að teikna og hanna fyrir vefinn. Ætla að gera nýtt layout frá grunni, en er hreinlega ekki viss um hvernig það eigi að vera. Ég byrja fljótlega á því að saxa niður lookið sem ég hannaði fyrir síðuna hennar Kristínar, það verður þá líklegast frumraun mín í að hanna og gera WordPress þemu frá grunni.

Ég hef áður tekið þemu og breytt verulega, held að flest allir sem hafa verið með WordPress á annað borð hafa fiktað eitthvað í þemum hjá sér á einhvern máta. En að gera þemu frá grunni, þekki ég ekki það vel að ég geti sagt hvort sé einfalt eða flókið.

En já, er að pæla í fara í bælið og láta annað bíða þar til á morgun ;D GN!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Gamla komið inn

Jæja, tókst að importa gömlu færslunum úr Scribe:CMS kerfinu hjá mér, því miður býður WordPress ekki á að lesa inn comment líka þannig að öll commentin sem voru á gömlu síðunni fylgja ekki með.

En, það er allavega léttir að geta fengið gömlu færslurnar aftur, þó það vanti mögulega myndir og annað slíkt.

Þess má geta að hlekkir, myndir, vídeó og annað slíkt í gömlu færslunum virka ekki. Ég er að pæla í að leyfa því bara að eiga sig í friði. Ég mun hinsvegar henda inn smá vídeó’i og lagi á eftir, til að testa plugin sem ég var að henda inn.. so be warned! =D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Íslenskun

Sýnist flest allt vera komið á íslensku á síðunni núna, eina sem á eftir að laga eru dagsetningarnar, þær eru enn á ensku. Spurning samt hvort ég láti það ekki bara vera í friði í smá tíma og dundi mér við að tékka hvort mér takist að ferja færslurnar úr Scribe síðunni í WordPress.. Wish me luck!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Fyrsta færslan

Jæja, fyrsta færslan á “nýrri síðu”.

Ég er búinn að ákveða það að setja Scribe:CMS á hilluna í bili eins og eldri færslur á gömlu síðunni gáfu til kynna. Málið er að ég hef hreinlega ekki tíma til að standa að því að forrita kerfið sem stendur og er því búinn að flytja mig sjálfan yfir í WordPress for the time being..

Ég mun dútla mér í Scribe:CMS eitthvað, en áframhaldandi þróun og slíkt mun hætta tímabundið frá og með deginum í dag.

Þessi þema sem ég er að nota núna er einnig bráðabirgða þema sem ég verð með þar til ég er búinn að kynna mér hvernig þemur fyrir WordPress eru byggðar og slíkt.

Kristín er sjálf að fara að flytja sig yfir í WordPress núna fljótlega og mun ég einnig gera þemuna fyrir hennar síðu, þó svo að hún komi mögulega til með að vera með einhverja bráðarbirgðar þemu til að byrja með.

En já, ætla að fara að halda áfram með að stilla og svona en ég vildi allavega koma þessu á framfæri strax ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr