Fyrsta færslan

Jæja, fyrsta færslan á „nýrri síðu“.

Ég er búinn að ákveða það að setja Scribe:CMS á hilluna í bili eins og eldri færslur á gömlu síðunni gáfu til kynna. Málið er að ég hef hreinlega ekki tíma til að standa að því að forrita kerfið sem stendur og er því búinn að flytja mig sjálfan yfir í WordPress for the time being..

Ég mun dútla mér í Scribe:CMS eitthvað, en áframhaldandi þróun og slíkt mun hætta tímabundið frá og með deginum í dag.

Þessi þema sem ég er að nota núna er einnig bráðabirgða þema sem ég verð með þar til ég er búinn að kynna mér hvernig þemur fyrir WordPress eru byggðar og slíkt.

Kristín er sjálf að fara að flytja sig yfir í WordPress núna fljótlega og mun ég einnig gera þemuna fyrir hennar síðu, þó svo að hún komi mögulega til með að vera með einhverja bráðarbirgðar þemu til að byrja með.

En já, ætla að fara að halda áfram með að stilla og svona en ég vildi allavega koma þessu á framfæri strax ;D

One thought on “Fyrsta færslan

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>