Jæja.. dagurinn í dag er að mestu búin að fara í að gera við eina tölvu beyglu hérna frá Toshiba.. Shit hvað það er búið að vera.. hmm.. PAIN!
Fyrir það fyrsta var vélin vel þakin vírusum, Windows XP Home installað á hana og pilturinn á heimilinu hafði verið duglegur við að setja .. allt og ekkert inn á vélina.
Sumt var á gráu svæði, en annað var .. hreinlega smitleið fyrir allt og ekkert naughty and not so nice.
Allavega, það sem fór mest fyrir brjóstið á mér hinsvegar var það að þessi tiltekna Toshiba vél (Satellite M40) *NEITAR* að boota af öllum CD/DVD diskum nema þeim sem koma með vélinni frá framleiðanda..
Þetta þýðir td. að þú getur ekki installað linux (á auðveldan máta), né verslað þér nýrra Windows kerfi og installað clean installi.. Hversu fucked up er það ?
Ég er reyndar guði sé lof að verða búin með hana, Biggi mágur ætlaði að renna við og ná í hana núna í kvöld. Sjáum bara til hvort allt verði ekki komið inn á vélina þegar hann kemur. =D