iMac

Hreinn unaður að vinna á þessar vélar.
Eins og áður sagði er komin iMac á heimilið, stór og öflug. Langaði bara að deila með ykkur skjáskoti sem ég tók núna fyrr í kvöld ;D

Er annars bara búinn að vera að forrita og sníða html+css á fullu í allan dag, er að ná að ljúka einu stærsta verkefni sem ég hef tekið að mér. Verður ánægjulegt að geta sett þessa fjöður í hattinn þegar verkið er búið, setja það í portfolio’ið og svona ;D

Kem fljótlega með stærri og ítarlegri færslu um allt og ekkert, um leið og ég sé fyrir endan á þessu verki ;D

Spam djöflar

Var að fara yfir eldri færslur og tók eftir því að það er komið töluvert af tómum mótsvörum (comment’um) við færslur hjá mér..
Spurning um að fara að finna upp á einhverju sneddý til að boosta upp spamvörnum hjá sér? =P

Allavega spurning um að víxla smá spurningunum sem koma á síðunni til staðfestingar á að það séu ekki bottar að spama síðuna =P

Fréttir..

Jæja, maður hefur nú ekki verið sá duglegasti við að koma með fréttir hingað inn nýverið..
Við erum allavega komin með iMac á heimilið núna! 24″ monster með nægt vélarafl til að kremja allt annað sem er á heimilinu.

Ég er sjálfur að drukkna hérna varðandi vinnuálag.. er með nokkur verkefni sem ég hefði átt að vera búin með fyrir löngu en einhverra hluta vegna þá drógust þau aftur úr í röðinni. Er að spíta í lófana og klára þau, but it takes time.

Ég er líka búinn að ákveða að fresta áætlaðri útgáfu á Scribe:CMS um ókomin tíma, ég hef hreinlega ekki afl, tíma né orku að vera að vinna í því eitthvað af ráði sem stendur. Þannig að þeir sem hafa verið að bíða eftir nýju útgáfunni, biðst ég afsökunar =P
Ég mun engu að síður halda áfram að þjónusta þær síður sem eru að keyra Scribe:CMS, og bæta við í þau kerfi ef þess gerist þörf, en áframhaldandi þróun á kerfinu er komin á bið sem stendur.

Ég hef hinsvegar verið að pæla í að færa mig meira í hýsingar og útlitshönnun (eins og ég hef sagt áður reyndar) og færa mig úr forritun.. sjáum hvernig fer samt, ætla ekki að gefa það upp að ég ætli aldrei að forrita neitt aftur ;) hehe

Spurning með að láta þetta nægja í bili, þarf að skjótast út og sinna smá erindi.