Ákvað að fiffa aðeins til Scribe:CMS útaf þessu spam dóti sem hefur verið að koma í mótsvör.
Henti saman mótsvaraeiningu, sem leyfir notanda að sjá öll mótsvör, fyrst öll í lista svo er hægt að fá ítarlegri lýsingu á hverju og einu mótsvari. Svo er hægt að eyða mótsvari. Henti líka inn flýtileið til að eyða öllum mótsvörum sem hafa ekkert innihald, þykir nokkuð ljóst að slíkt er ekkert annað en spam ;) Ætla að henda inn núna rétt á eftir öðrum kosti sem er að setja vissa IP tölu í bann.
Svo er spurning hvort maður hendi hreinlega ekki saman spam einingu.. til að fara yfir færslur og sjá hvort að viss stykkorð komi upp eða ekki, ef þau koma fram í færslunni er sú færsla flokkuð sem spam strax við skráningu, þannig þarf hún ekki endilega að birtast í dagbókinni ;)
En annars ætla ég að halda áfram að forrita ! ciao !