Monthly Archive for október, 2008

Smá mont!

Varð að koma því að, að ég er búinn að forrita yfir 5000 línur af kóða í dag! All encouragements and well wishes welcomed!

Einnig langaði mig að bera fram þá spurningu hvort það væri ekki í lögum að tilkynna aðilum í síma að það sé verið að hljóðrita símtöl.. Skyldist það allavega á sínum tíma að ég mætti sjálfur ekki taka upp símtal nema með samþykki þess sem ég væri að tala við, annað væri lögbrot? Ég spyr bara eftir að hafa lesið þessa frétt..


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Tannpælingar revisited!

Já, ég fór sko á stúfana og hafði samband við erlenda tannlækna, lenti á einum þjóðverja sem er með stofu í Ungverjalandi.
Hann kemur hiiiiighly recommended, er talin vera sá besti í Þýskalandi áður en hann flutti starfsemina til Ungverjalands ma. ;)

Allavega, ég fékk gróft verðmat í þetta frá honum í gegnum email, svo kannaði ég með hótelgistingu, flug og slíkt varðandi svona ferð og vitiði hvað?
Sparnaðurinn, já SPARNAÐURINN við að fara út til Ungverjalands til þessa tannlæknis og láta hann framkvæma aðgerðina, með ferðakostnaði og öllu, hljóðar upp á 2 milljónir króna!

Segjum að við hjúin tækjum okkur 14 daga ferð með Icelandair, miðað við gengið núna, til Vínar sem er í 70km fjarlægð frá þessum bæ í Ungverjalandi, þá erum við að borga ca 220.000 krónur fyrir ferðina, hótelið og ferðir milli Vínar og þessa bæjar. Aðgerðin, ótrúlegt en satt, kostar ekki nema um 270.000 krónur þarna úti. Og það merkilega er að það er verulega hár standard þarna úti í þessum bransa.

Nú er það stóra spurningin.. Ætti maður að safna og safna í einhver ár, vona að maður fái mótframlag frá TR eða verkalýðsfélaginu mínu (bæði mjög ólíkt mv. símtölin í gær). Vona það líka að bankarnir hrynji ekki og hirði ALLAN peninginn manns. Eða fara í tveggja vikna lúxus ferð til landa sem ég hef aldrei séð né farið til, vera á fjögurra stjarna hóteli, fá aðgerðina, smíðina og allt afgreitt á 5 dögum.

Miðað við sögur frá fólki sem hefur farið þarna út og til Búlgaríu, þá er þetta varla spurning. Tala allir mjög vel um vinnubrögð, hráefni og allt. Plús það að þetta sé svakalegt ævintýri!

Annars lenti ég í því að mér var svakalega illt í maganum í dag (og ég meina svakalega) og fór að pæla hvort ég hefði látið eitthvað í mig sem væri að fara svona með mig. Eina sem ég hafði borðað var smá brauð, kornflex og svo drukkið pepsí hérna meðan ég var að forrita. Ákvað að líta á stimpilinn á flöskunni sem frúin hafði verslað í gær hjá Nettó í Mjóddinni, haldiði að hún hafi ekki runnið út fyrsta september! Frúin verslaði tvær flöskur, sú seinni rennur ekki út fyrr en fyrsta mars á næsta ári þannig að þetta er frekar .. fúlt!

Bjallaði allavega í Nettó og fékk fyrst samband við skrifstofuna, þar sem ung dama svaraði mér og rabbaði við mig. Henni dauðbrá að heyra þetta sérstaklega líka þegar ég benti á það að ég hafði tekið eftir fyrir tæpum 2 mánuðum að Maarud snakkið hjá þeim væri við að að renna út eða ný runnið út, látið starfsmann vita og alles, en enn í dag væri þetta snakk þarna!
Allavega, hún tók niður númer, nafn og slíkt. Sagðist ætla að tala við verslunarstjórann sem væri því miður á fundum á Reykjanesinu þar til seinni partinn, lofaði samt að hringja í mig í síðasta lagi í fyrramálið á morgun. En viti menn, hún hringdi strax aftur innan við 2 klst síðar! Hún bað mig að fara bara með flöskuna beint til Ölgerðarinnar, hún væri búin að tala við þá og þeir ættu von á mér við fyrsta tækifæri. Hún var svo sorry greyið að hún gat ekki hætt að biðjast afsökunar á þessu. Verulega gott samt að sjá svona þjónustulund, alltof langt síðan maður hefur verið vitni að einhverjum sem er svona snöggur að ganga í málin og stendur við það sem hann lofar!

Ég ætla allavega að kíkja með flöskuna í fyrramálið til Ölgerðarinnar og sjá hvað þeir segja/gera. Frúin fékk ekki kvittunina útí búð reyndar þannig að það er erfitt fyrir okkur að sanna að hún hafi keypt hana í gær. En í versta falli væri hægt að fá Nettó til að fletta upp þessum 2-3 vörum sem hún keypti því við erum með nokkurn vegin tímasetninguna á þessu í gær. Var allavega eftir 17 þar sem ég var í bílnum með börnin eftir leiksskólann.

En já, ég er líka loksins að sjá fyrir endan á stærsta forritunarverkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur! Styttist í það að ég geti ljóstrað upp hvaða síða þetta er þegar hún opnar með nýju útliti, nýrri vél, helling af nýjum möguleikum og öllu öðru sem ég er búinn að vera að forrita í þetta =D Nokkrir aðilar sem ég þekki sem hafa verið að gefa mér álit á útlitshönnun og slíku vita hvaða verkefni ég er að tala um, en ég minni enn og aftur á að *hush* ekki segja strax! ;)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Ég sakna …

… þess rosalega að geta ekki bitið í epli, fengið mér hráa rófu, japplað almennilega á poppi án þess að sjúga það eins og einhver helvítis fluga. Mér þykir rosalega leiðinlegt að geta ekki borðað hvað sem er lengur, verða að synja og hafna mat sem mér hefur alla tíð þótt æðislega góður, bara af því að hann er of seigur, harður eða meiðir mig. Mest af öllu, þá sakna ég þess að geta ekki brosað án þess að fela mig bakvið hendurnar mínar.

Ég tók ákvörðun áðan að byrja á smá sjóð sem ég ætla að safna mér pening í til að fjármagna þau implönt og skeifur sem ég þarf í kjammann á mér til að ég geti farið að brosa aftur.

Fyrir þá fáu sem ekki vita það, þá er ég semsagt tannlaus í dag, búinn að vera það síðan 1. apríl 2004. Orsök þess er samt ekki eitthvað sem ég nenni að fara í hér, en þetta er allavega staðreyndin.

Í rúm 4 ár hefur mér liðið illa í kringum annað fólk, þori sama sem ekkert að kynnast fólki sem ég hef unnið með, eyði gífurlegum tíma innanhús, neita að borða úti.. þetta er bara svona smá af því sem ég upplifi.

Með því að fá mér implönt + skeifur þá næ ég aftur gamla brosinu, gamla vellíðan og ánægju.

Ég allavega fór á já.is áðan, leitaði að númerinu hjá kjálkaskurðlækninum sem ég var hjá fyrir rúmum 4 árum til að fá gróft verðmat í hve mikið þessi aðgerð kæmi til með að kosta mig ef ég færi í hana núna.. Fínt að hafa slíka tölu til að sjá hversu miklu maður yrði að safna til að ná þessu í gegn. Fékk reyndar óttarlega lítið um svör, því miður, frá símadömunni (klinkan mögulega?), vildi ekkert gefa upp nein verð, þó gróf væru, í gegnum síma. Vildi bara að ég kæmi í skoðun og þá fengi ég verð. Náði þó að draga uppúr henni að verðin væru lítið búin að breytast síðan 2004, væri enn í kringum 100-110.000 kr per implant og svo ca. 500.000 per skeifu.
Total pakkinn fyrir mig væri því 14×110.000 + 2×500.000 = 2.540.000 kr takk fyrir!

Ég ætla nú að vera sniðugur samt og hringja hingað og þangað í dag til að athuga hvaða verð maður fái frá mismunandi tannlæknum.. Sjáum til hvernig það fer.

Eitt smá tuð samt í lokin, varðandi auglýsingar á vefsíðum.. Lenti í einni skelfilegri á já.is áðan þegar ég var að fletta upp númerinu hjá Sigurjóni sem reif allt úr mér. Auglýsingin er frá Reykjavíkurborg og er að hvetja fólk til að vera ekki á nöglum.. Málið er að það fór ekkert fyrir henni þarna vinstra megin á síðunni, það var ekki fyrr en ég fór óvart með músina yfir auglýsinguna að hún fór í taugarnar á mér, ég var að færa músina frá til að sjá leitarniðurstöðurnar nógu vel og fór því með hana vinstra megin við þær, þá pompar þetta helvíti út (sjá að neðan). Er þetta ekki fullgróft ?! Hvað varð um að hafa auglýsingar áberandi ÁN þess að skemma innihald síðna?!

smelltu hér til að sjá vídeóið


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Að flýta sér..

… er slæmt. Sérstaklega ef þú ert að vinna við að setja inn fréttir á einn stærsta fréttamiðil íslendinga á netinu..
Tók eftir þessu á mbl.is rétt í þessu.. fannst það soldið spes að sjá ekki innihald fréttar nr 2 á yfirlitssíðunni og ekki var nú fréttin sjálf skárri!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Officespace!

Er búinn að fá soldið margar spurningar um það hvort ég sé bara heimavinnandi eða hvað, þar sem ég sé hættur hjá Securitas (old news). Ákvað að koma með smá færslu um það stuff..

Já, ég er “heimavinnandi” sem verktaki í heimasíðugerð, hýsingum og því öllu.
Vinnuaðstaða mín er þessi:

Uppsetningin er byggð úr iMac 24″ með 2.8GHz Intel Core2Duo örra, 2GB DDR2 minni og 320GB SATA2 disk, auka skjár tengdur vinstra megin er 22″ Philips 220WS og dekkar 1680×1050 px. iMac’inn er dekka 1920×1200 px.
Ég er að keyra Mac OS X 10.5.5 og er að nota Adobe CS3 Web Premium pakkann, ásamt því að nota TextMate fyrir RoR, sem ég er nýbyrjaður að fikta aftur í!

Og svona til gamans, þá var ég líka spurður í dag af hverju ég væri í svona góðu skapi alla daga nýverið.. ástæðan er einföld, en felst þó í nokkrum liðum..

  1. iMac er yndisleg tölva sem frábært er að vinna á
  2. TextMate er einn besti ef ekki SÁ besti ritill sem ég hef kynnst
  3. Það er snjór úti!
  4. Ég er laus við fileserverinn úr svefnherberginu, sem merkir að engin læti eru í vélbúnaði lengur hérna!
  5. Það styttist í jólin!
  6. Sjá mynd hér að neðan!

Myndirnar eru annars teknar á símann hjá mér þannig að þið afsakið léleg gæði í þeim ;)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr