Niðurhal

Staða niðurhals

Ég var að tékka á stöðunni so far í mánuðinum, hversu mikið maður væri búinn að sækja af netinu það sem af er mánuði.. *grenj* ég þarf að hætta þessu..

Þetta er skelfilegt ástand =/ Svona er þetta þegar þáttaraðirnar úti byrja aftur eftir sumarfrí og maður skyndilega áttar sig á því að manni vantar líka einhverja þætti í lokin á síðustu seríu, bara svona til að rifja upp.. =P

Þetta er allt of fljótt að telja þetta dót ..

Annars er það að frétta að ég er farinn að svelgja í mig te aftur, Lipton Forrest Fruit varð fyrir valinu í dag, æðislega gott með einni skvettu af hunangi. Þetta er jú, svart te, sem þýðir að það er koffein í því, en það er baaaara gott ;D

Sit hérna að forrita einar tvær síður, drekkandi svart te með helling af ávaxtabragði með, hlustandi á Sigur Rós – Ágætis Byrjun eins og hann leggur sig.. voða rólegt kvöld.

Strákurinn er reyndar komin með hita þannig að hann verður heima á morgun. Spurning hvernig það fer. Kristín er svo að taka yfirvinnu núna, veit ekkert hvenær hún stefnir á það að vera komin heim.

Svo er ég lauslega búinn að vera að horfa á eina bestu þætti sem ég get munað eftir sem hafa verið framleiddir síðast liðin 10 ár. John Doe heita þeir. Ef þú kannast ekki við þá, þá ertu búin að missa af miklu.. Æðislegir þættir og ég er svoooo fúll að það var hætt eftir fyrstu seríuna =/

Annars er ég búin að vera að dútla aðeins við síðuna, adda hinum og þessum plug-in’um. Td. greybox effect á myndir (sést ef þú smellir á einhverja mynd á síðunni) og fleirra. Er að skoða MP4 spilara núna, sjá hvort ég finni eitthvað sem er nógu sætt.

Skil við ykkur með þessu lagi !

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Þetta lag var frekar vinsælt jólin í hva.. hitt í fyrra, var rosalega mikið spilað í nóv og des 2006, þannig að það minnir mig á betri tíma þegar allt var æðislegt ;D Ég hugsa sjálfur um snjó, gleði og jól þegar ég heyri það…

Hvað með þig ?

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>