Jólaundibúningur

Eins og allir sem þekkja mig vita, þá er ég algert jólabarn.. Og flestir ef ekki allir sem þekkja mig ættu einnig að vita að ég hef keyrt lítið jólavefvarp á hverju ári síðan 1998!

Mér leiddist skelfilega áðan og fór að hugsa aðeins fram í tímann og mundi þá að ég átti eftir að gera útlit og síðu fyrir vefvarpið í ár, sérstaklega þar sem þetta verkefni mitt verður 10 ára (!!!) í ár.

Hér er útkoman:

Endilega segið mér hvernig ykkur finnst þetta, má vel vera að ég vilji sjálfur laga þetta aðeins til, en allar ábendingar eru vel þegnar ;D

Cap!?

Lenti í því núna fyrir nokkrum dögum að allt erlent samband hjá mér varð skelfilega slow.. Og þar sem ég var ekki farinn yfir 80G erlent í mánuðinum datt mér ekki í hug að það væri búið að cap’a tenginguna. Guði sé lof er ég með proxy líka þannig að ég gat reddað mér þannig fyrir það nauðsynlegasta.

En.. ég ákvað að hringja í Vodafone núna áðan og tékka á því af hverju netið væri svona slow erlendis til, fékk þau svör að það væri búið að cap’a mig þar sem ég væri farin yfir limit’ið. Ég sagði honum að það væri ekki raunin, ég ætti enn 500MB eftir (væri í 79.5GB það sem af er mánuði) sem hann staðfesti svo að væri. Bað mig að bíða í smá stund, kom svo aftur í símann og sagðist hafa aflétt cap’inu, sem er reyndar ekki raunin but anyways.. stutt eftir af mánuðinum..

Mér til sönnunar þá er hérna screenshot af stöðunni núna rétt áðan, sem sýnir vissulega að það eru enn 500MB eftir þar til ég ætti að vera cap’aður..

Spurningin vaknar óneitanlega, getur verið að reiknireglurnar hjá Vodafone séu að rúna tölur ?
79.5 rúnað væri náttúrulega 80.. og ef svo er, finnst þér það ekki soldið skítt ?

Ég tók sjálfur eftir því þegar ég var kominn í 79G, stoppaði allt nema MSN og að vafra til að missa ekki niður virkni á teningunni út mánuðinn, en eftir 500MB (þegar ég náði 79.5GB) þá bara er allt dautt? =P

Svo er reyndar eitt sem mér finnst soldið fyndið, ef þú skoðar myndina sérðu „vefvarp“. Vodafone bauð lengi vel upp á frítt shoutcast vefvarp í gegnum proxy hjá sér.. Nema hvað.. ég hef ekki fengið það til að virka síðan.. 2006 held ég, þrátt fyrir að nokkrir vinir mínir, ma. Berti hafa sagst vera að nota þann proxy enn þann dag í dag.

Þannig að, mér þykir það frekar skondið að sjá þetta sem möguleika þarna inni á stöplaritinu án þess þó að ég hafi aðgang að því. Ég hef ítrekað leitað að þessu á vodafone.is síðunni, bæði á henni sjálfri og með því að leita á google með: „site:vodafone.is leitarorð“ en ekkert finn ég.

Er Vodafone enn að bjóða upp á þetta eða ekki ? =P

Time Machine revision

Jæja, leyfði Time Machine að malla í nótt og það er búið að klára að taka afrit af vélinni hjá mér. Komst reyndar að því að mv. núverandi stillingar getur bara ein vél verið tengd. Testaði að tengja iSCSI diskinn við MacBook vélina hjá mér í gærkvöldi þegar iMac vélin var að taka afrit af sér inn á hann, nema hvað, afritatakan bail’aði með einhverjum generic villuboðum. Ætla að leggjast í það að athuga hvort/hvernig ég leyfi iSCSI diskinn fyrir allar vélarnar.

Testaði svo líka að reboot’a MacBook og iMac vélunum en iSCSI diskurinn tengdist ekki sjálfkrafa á neinni þeirra þannig að ég ætla að skoða það líka.

Svo var ég að koma HP PSC1510 All in One græjunni til að virka sem skanna og prentara á iMac vélinni. Gekk bara frekar snuðrulaust fyrir sig, varð að ná í 230MB pakka af hp.com til að fá skanna hlutan af tækinu inn að vísu, en hann virkaði sem prentari frá því að ég tengdi hann allra fyrst.

Elska MacOS X! Elska Apple!

Time Machine dútl

Eins og margir vita er ég notandi MacOS X í dag. Einn af öflugustu viðbótunum í kerfinu í dag (10.5 Leopard) er Time Machine, en til þess að nota það þarftu að vera með viðbótadisk tengdan inn í tölvunni, í gegnum USB eða firewire, eða vera með Time Capsule frá Apple.

Þar sem það er nú einu sinni kreppa núna og ódýrari Time Capsule græjan kostar ódýrast ca 35.000 kr (hjá Elko) og að ég eigi ekki flakkara sem virkar 100% með Apple tölvum, nema jú AivX’inn minn, en hann vil ég nú nota við sjónvarpið en ekki við tölvuna.

Hvað er þá til ráða? Well.. ég ákvað að skella mér í smá lestrarferli, skoðaði google, maclantic og fleirri síður. Komst fljótlega að því iSCSI er leiðin sem flestir hafa farið til að setja upp sinn eigin remote disk til að nota með Time Machine.

Þannig að ég ákvað að prófa það og hér meðfylgjandi er hvað ég gerði. Til að útskýra aðeins þá er ég semsagt með skráarþjón (nefndur FS (FileServer) hér eftir) sem er að keyra Debian „testing“ (einnig þekkt sem Lenny). Til þess að nota iscsi á Debian þarftu að vera að keyra Lenny eða Sid („unstable“).

Til að byrja með þá þurfti ég að sjálfsögðu að velja disk til að nota, ég ákvað að nota 320G WD PATA disk sem ég var með í flakkarahýsingu sem virkaði ekki sem skyldi með hvorki iMac né MacBook vélunum mínum, tengdi þann disk sem hdb (slave á primary IDE rás) svo uppfærði ég apt tréð með:

apt-get update

Ég varð að uppfæra hjá mér kjarnann því ég var bara með default kjarnann sem installast með Lenny Beta2 disknum (nánar tiltekið netinstall disknum) og því keyrði ég eftirfarandi skipanir.

apt-get install linux-image-2.6.26-1-686 linux-headers-2.6.26-1-686
reboot

Næsta mál á dagsskrá var að setja inn iscsi pakkana. Það var gert með:

apt-get install iscsitarget iscsitarget-source
m-a prepare
m-a update
m-a a-i iscsitarget

Næst kom að því að edit’a config’inn fyrir iscsi.

cd /etc
mv ietd.conf ietd.conf.bak
nano -w /etc/ietd.conf

Í uppraunalega config skjalinu (ietd.conf.bak núna) er farið vel yfir hvað er í boði og hvað ekki, ég ákvað að byrja bara með tómt skjal til að eiga pottþétt default configinn ef í hart færi (alltaf gott að gera slíkt gott fólk!). Config’inn minn stillti ég svo með:

Target iqn.2008-10.vodafone.chaos:time.machine
IncomingUser arb mittlykilorð
OutgoingUser arb mittlykilorð
Lun 0 Path=/dev/hdb,Type=fileio

Meira þurfti ekki í config’inn, svo ég stökk strax í næsta skref. En til að útskýra smá varðandi þennan config þá er fyrsta línan (Target línan) sett svona upp: Target iqn.ÁÁÁÁ-MM.domain.reverse:titill.exports.
Einhverra hluta vegna þarf að taka fram ár og mánuð í þessari línu, ég hef ekki hugmynd af hverju, en ég kaus að setja núverandi mánuð og ár (2008-10). Næsta er reverse domain nafn. Til að sjá það á Debian gefurðu upp:

hostname –fqdn

Hjá mér kemur: chaos.vodafone, en config’inn fyrir iscsi exportið (ietd.conf) þá þarf þetta að vera í öfugri röð, í stað chaos.vodafone á það því að vera vodafone.chaos. Síðast í þessari fyrstu línu er svo nafn iscsi disksins sem þú vilt deila, þetta er bara nafn sem þú býrð til, eina sem ég get mælt með er að nota einungis lágstafi úr enska stafrófinu auk punkta í stað bils. Mitt heitir td. time.machine.

IncomingUser og OutgoingUser er svo mjög einfalt að setja upp, þarna seturðu username og password, bæði í cleartext formi (ekkert encode’að eða neitt) af þeim notanda sem má tengjast þessu drifi.

Síðasta línan er svo í raun bara að benda á hvaða device node ég ætla að nota, þar sem ég þarf að format’a drifið úr iMac/MacBook þá kaus ég að nota device’ið sjálft (/dev/hdb) í stað einhvers eins partitions. Ég kynnti mér ekkert hvort það er hægt eða ekki, en þetta er leiðin sem ég vildi sjá hvort eðer þannig að ég sleppti því að lesa meira um hvað var hægt að „export’a“ og hvað ekki.

Til að virkja nýja config fælinn og slíkt þá keyrði ég þessa skipun:

invoke-rc.d iscsitarget restart

Þá var server’inn tilbúinn. Næst var það að setja upp hugbúnað á iMac vélinni til að tengjast drifinu. Ég kaus að nota globalSAN iSCSI Initiator fyrir MacOS X. Þegar þú installar því þarftu að reboot’a vélinni hjá þér.
Þegar reboot’ið var búið fór ég að skoða hvernig þetta virkaði, installið setti upp support fyrir MacOS X til að tengjast iSCSI drifum yfir network auk preferences panels (í System Preferences). Fyrsta sem ég varð að gera var að opna System Preferences og smella á „globalSAN iSCSI“ valmöguleikan, því næst smellti ég á „Portals“ tab’ann og addaði servernum mínum þar í með að smella á plúsinn neðst niðri vinstra megin og slá inn IP töluna á þjóninum hjá mér. Eina sem var eftir var að smella á „Targets“ tab’ann og haka við bæði „Persistent“ og „Connected“ til að fá diskinn inn og halda honum inni.

Eina sem eftir var til að gera var að format’a diskinn með Disk Utility sem „Mac OS Extended (Journaled)“ og stilla Time Machine til að nota þennan disk til að taka afrit á!
Ég á að vísu eftir að prófa að restarta iMac vélinni hjá mér til að sjá hvort að diskurinn tengist sjálfkrafa inn á kerfið eða ekki, en ég ætla að leyfa Time Machine að taka af vélinni áður en ég prófa það =)

Ég ætla að vona að þetta komi einhverjum að góðum notum eða bara að þetta skemmti fólki við að lesa yfir ;D