.. í að stofna söfnunarsjóð svo að Jana greyið fái vetrarskó..
Monthly Archives: október 2008
Viðburðarríkir dagar
Undanfarnir dagar eru jú búnir að vera viðburðarríkir…
Til að byrja með þá átti strákurinn afmæli á laugardaginn, hann fékk nokkrar gjafir þá, en afmælisveislan fyrir bæði börnin verður haldin núna 1. nóvember nk. Þannig að gjafirnar sem hann fékk voru bara smá forsmekkur =)
Gáfum honum spiderman litabók og spiderman mótorhjól með lausum spiderman kalli, svo gaf tengdó honum dvd mynd.Alveg ótrúlegt að sjá hvað hann elskar spiderman þessa dagana =D
Stelpan fékk líka bangsímon litabók, til að vera ekki útundan og var bara mjög ánægð með hana.
Þau eru reyndar bæði búin að vera veik til skiptis börnin, strákurinn byrjaði í síðustu viku að vera veikur, var ekki á leiksskólanum mið-fös, fór í gær hinsvegar, en á föstudaginn var hringt af leiksskólanum og ég beðin um að sækja stelpuna, hún var orðin veik líka. Þannig að í gær og fyrradag vorum við bara tvö heima feðginin.
Annars var ég að uppfæra tonn á þjóninum núna undanfarna daga, einnig í dag.. meðal breytinga voru:
GCC uppfært í 4.1.2 p1.1
Python uppfært í 2.5.2-r7
Kernel uppfærsla úr 2.6.5 í 2.6.25-r8
Apache uppfærður í 2.2.9
PHP5 uppfært í 5.2.6-r7
Svo var margt minna uppfært og dútlað í, fór meðal annars yfir spam- og vírusvarnir á póstþjóninum og slíkt..
En .. nú tekur við ævintýri.. ætla að setja þráðlaust kort í fileserverinn minn til að koma honum úr herberginu og fram í íbúð.. það merkir algerlega hljóðlátar nætur framundan!
Wish me luck on my endevour!
Kreppa?
Eins og margir vita þá fjárfestum við í iMac 24″ 2.8GHz núna fyrir ekki mánuði síðan 8. september sl. Well.. var að kanna aðeins vörur og verð hjá bæði Apple IMC hér á landi og svo Elko þar sem við versluðum okkar vél.
Well.. Við keyptum okkar á 209 þúsund.. sama vél, hjá Elko.. er komin í 279.995 kr, semsagt búin að hækka um 70 þúsund krónur á rúmum mánuði.. Svo ákvað ég að kíkja á Apple IMC, sem ég þóttist vita að væri dýrari, þar sem við sáum það líka þegar við versluðum okkar vél, en vá, andlitið datt næstum því af mér þegar ég sá að sama vél er núna á 329.990 krónur..
Orsök þessa verðhækkana er væntanlega fall krónunnar í samanburði við dollarann og aðra gjaldmiðla.
Hundgömul vél
Jæja.. tók að mér að yfirfara eina vél fyrir fyrrum nágrana minn í bakkahverfinu..
Nema hvað, þegar hann kom með vélina féll af mér andlitið.. Það gerðist þegar ég sá stærðina á vélinni..
Nota bene.. þetta er 19″ 4:3 skjár sem er þarna ofan á kassanum.. þannig að það ætti að sjást hversu gífurlega stór kassinn utan um þessa „litlu“ tölvu er..
Smá specs:
Örri: 431MHz Celeron
Minni: 320MB SDRAM 100MHz
Harður: 20GB Maxtor
Stýrikerfi: Windows XP Professional SP1
Sem segir.. þessi vél er hægari en allt sem til er.. Ég er að yfirfara vélina til að sjá hvort það sé réttlætanlegt að hann noti hana áfram eða kaupi td. súperturn frá Tölvulistanum, er allavega að sía út sull og óþarfa rusl sem er búið að safnast á vélina. So far er Avira búið að skanna um 60% af disknum og finna 129 vírusa..
Svo er spurning, þótt að maður haldi WinXP Pro inn á þessari litlu vél, hvort það sé nokkuð lausn til framtíðar varðandi þessa tölvu.. Mér datt frekar í hug að skella linux upp á vélina, aðallega þó Debian þar sem linux krefst mikið minna afls en Windows og auk þess virkar linux mun betur á hægvirkum vélum en Windows’ið..
Ég ætla allavega að bíða eftir því að vélin verði orðin víruslaus og testa þá að restarta henni, sjá hvort allt sé farið úr vélinni eða ekki.
Mér finnst samt alltaf jafn „sætt“ að sjá hvað fólk heldur í gamla hluti vegna þess að þeir hafa virkað vel fram að þessu.. Minnir mig td. á mörg símtöl sem maður fékk í denn hjá Mömmu ehf.
Einn sem er mér ofarlega í minni hringdi inn útaf því að, and I quote.. „helvítis myndlykla djöfullinn er handónýtur og virkar ekki neitt!“.. Allavega, ég tók bæði við símtalinu og rabbaði við hann þar, bókaði svo á hann heimsókn, þar sem ég mætti sjálfur í (einn og óstuddur) til hans.
Allavega, þegar ég kem til hans var hann með svo gamalt sjónvarp að það jaðrar við því að vera í fyrstu kynslóð litasjónvarpa sem seld voru hér á landi.. og ÞAÐ var bilað.. Myndlampinn var hættur að virka.
Ég tjáði honum hvað væri í gangi, var með mæli með mér (sem er með innbyggðum sjónvarpsmóttakara og skjá) sem ég notaði til að staðfesta að það væri ekkert að myndlyklinum.. en karlinn þvertók fyrir það að sjónvarpið væri í ólagi með rökunum.. (gets me every time..): „Hvað meinaður að þetta sé sjónvarpið!? Það er ekkert að sjónvarpinu.. helvítis rugl er þetta í þér.. þetta sjónvarp er búið að virka fínt í tuttugu og sjö ár!„.. man reyndar ekki nákvæmlega hve há ártalan sem hann gaf upp var, en hún var svona.. svaðalega ýkt.
Allavega.. Avira er að verða búin að skanna vélina.. komin í 93% núna.. spurning um að skella sér fram, gæða sér á köku, pönnslum og ískaldri mjólk með afmælisbarninu honum syni mínum.. Litli karl er orðinn þriggja ára gamall. Svaðalega stór karl =)
Forritara húmor
Varð nú bara að deila þessu með ykkur, ég ákvað að testa hugbúnað fyrir Mac OS X sem heitir HandBreak og er notaður til að encode’a ma. DVD myndir. Mér finnst voða gott að taka afrit af myndum sem ég á og eiga á vélinni til að horfa á hvenær sem er án þess að eiga í hættu að rispa diskinn.. auk þess þá sparar þetta hillupláss þar sem myndirnar sem ég hef tekið afrit af geta bara verið í kassa niðrí geymslu eða álíka.
Allavega, var að encode’a Next sem við versluðum fyrir ca 2 mánuðum síðan og þetta spjald beið mín þegar það var búið..

