Monthly Archive for nóvember, 2008
Þeir sem eiga Mac’a, eða eru nördar eins og ég, vita það að Safari 3.2 kom út í gær. Engar fancy tilkynningar, ekkert media hype, bara addað hljóðlega í software update. Ég verð eiginlega að segja að ég er loksins núna að fara að nota Safari sem primary vafra hjá mér. Firefox er búinn að vera mitt uppáhald undanfarin ár, enda kem ég þannig séð úr linux heiminum þar sem Firefox trjónaði á toppnum í mörg ár.
Af hverju er ég þá að færa mig yfir í Safari ? Jú, fyrir það fyrsta finnst mér það gott að geta opnað url og vafrinn opnast strax eins og gerist með Safari, en ekki að þurfa að bíða í allt að mínútu eftir að Firefox ræsi sig. Auk þess þá virkar Safari betur að mínu mati með marga tab’a opna en Firefox.
Vissulega er margt sem ég mun sakna við að nota í Firefox.. Slatti af add-on’um sem ég hef verið að nota, en ég tel þetta samt vera skref í rétta átt. Síður renderast líka betur að mínu mati í Safari.
Ég er samt þakklátur fyrir það að ég er ekki fastur í Windows og að ég er ekki einn af þessum notendum sem trúa blint á að Internet Explorer sé góður vafri..
Allavega, undanfarna daga hefur frekar lítið gerst hér á bæ, ég er sjálfur bara búinn að vera heima að forrita eins og hálfviti (as usually). Reyna að klára þetta blessaða verkefni og taka mér svo frí frá seldri forritun, alveg komin með grænar af þessu =P Man alltaf aftur og aftur allt í einu að ég gleymdi einhverju, að vera að vinna í 50+ hlutum í einu verkefni er ekki nógu skemmtilegt =P
Need to organize myself a little better held ég .. =P
Ég tók ákvörðun áðan, að drepa accountinn minn á facebook! Veit reyndar ekkert hvernig það virkar þegar fólk deactivate’ar accountinn sinn þar, hvort fólk fái einhver skilaboð um að ég hafi farið eða hvað.. en, til að fyrirbyggja allan misskilning ef útí það er farið þá ákvað ég að loka aðganginum sjálfviljugur ;) Maður eyðir alltof miklum tíma þarna inni og þetta er bara komið útí tóma þvælu.
Vefurinn í byrjun var fín pæling en .. þetta er löngu búið að sprengja utan af sér og fólk farið að nota vefinn í allt öðrum tilgangi en upphaflega var ætlast til.
Þannig að.. Takk fyrir mig =)
Jámm.. þú ert að lesa rétt! Jólavefvarpið er komið í gang!
Smelltu þér yfir og hlustaðu eins og þér lystir !
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Þeir sem hafa horft eitthvað á Dr. Who þættina þekkja lagið alveg í gegn, en eflaust ekki í þessari útgáfu..
Hér eru engir aðrir en Orbital að taka sína útgáfu af laginu, sá þetta fyrst á youtube, þá upptaka af því þegar þeir tóku þetta live, held ég hafi nánast haft það vídeó á loopu í eins og 3 daga..
Alltaf gott að heyra lagið, tala nú ekki um þar sem Dr. Who er í mjööööög langri pásu þessa dagana. Verður líklegast jólaþáttur þetta árið, en næsta sería byrjar líklegast ekki fyrr en í lok 2009 eða byrjun 2010 ef mig minnir rétt.
Allavega, enjoy! Ég er sjálfur að melta hvort ég eigi að setja iMac’ann upp aftur frá grunni eða ekki.. nokkrir hlutir sem ég vil “lagfæra” og slíkt..