
Jæja.. hvað skyldi vera í fréttum í dag?
Barst tilkynning frá vini í dag að það væri komin en ein nýja íslenska torrent síðan.. Merkilegt hvað þetta sprettur upp með X margra vikna millibili, allt byggt á istorrent kóðanum/grunninum, en hverfur svo með einhverju drama á endanum..
Svo hér að heiman er allt í hinu besta að frétta, unga daman er að vísu með hlaupabóluna núna, en ber sig vel =) Nýjustu tölur segja að hún sé komin með yfir 200 bólur.. voða gaman að bera krem á hverja bólu =P
Við erum búin að vera að melta soldið núna nýverið eins og staðan er orðin hér á landi, hvort við ættum að flytja til Noregs tímabundið. Ég er frekar heitur fyrir því, búinn að vera að skoða húsnæði og margt fleirra þarna úti og varð algerlega kjaftstopp þegar ég sá verðin á td. 155fm einbýlishúsi, 4 svefnherbergi, huge stofa og eldhús, 2 baðherbergi.. Þetta hús var *BARA* á 10.000NKR sem er ekki neitt ef maður lítur á það að launin þarna úti eru 21-22.000NKR (fyrir skatt að vísu).
Hér á landi held ég að sé ekki hægt að finna svona stórt húsnæði sem kostar ekki nema tæplega helming lágmarkslauna fyrir skatt.. Er svo líka búinn að vera að skoða hjól og tryggingar fyrir þau, bíla og allt því tengdu. Rosalegur munur á verðum þarna..
Hef reyndar fengið að heyra ansi háar raddir að þetta geti ekki staðist, að það sé ekki svona ódýrt að leigja, þá bendi ég bara á aðra íbúð sem ég fann..
ca 120fm íbúð í fjórbýli, 5 svefnherbergi, stór stofa og eldhús, 1 baðherbergi. Í sameign er sauna, íþróttasalur (með tækjabekkjum, hjólum og hlaupabrettum), nuddpott og fleirru.. Well.. þetta er hægt að leigja, með heilli búslóð (nýrri, ónotaðri) á 15.000NKR, eða gera kaupsamning til 10 ára, á 1.000NKR á mánuði. Uppsett verð á íbúðina er skráð 1.000.000NKR, og með því að borga 1.000NKR á mánuði í 10 ár gerir það 1.200.000NKR, sem ég kalla ekki neina vexti miðað við það sem gengur og gerist hér á landi með íbúðarlán Íbúðarlánasjóðs eða bankanna. Tölum nú ekki um að hvort sem þú kaupir eða leigjir þessa íbúð, þá fylgir búslóðin með!
Ég get allavega ekki sagt annað en að það sé mjöööööög freistandi að fara þarna út.
Annars ákvað ég að byrja á því að gera portfolio fyrir sjálfan mig, á ensku. Er kominn með gróft útlit á hreint og er að setja innihald í þetta. Er að ákveða hvernig ég eigi að hafa grafíkina sem verður í „head“ á hverju verkefni / jobbi sem ég hef unnið.. Staðan eins og er er allavega þessi:

Eitthvað varið í þetta að þínu mati? Er nokkuð ánægður með þetta, en finnst ég samt þurfa að taka soldið VERULEGA til í innihaldinu, td. CV’inu og að bæta við grafík í þetta.
Annars þá hef ég fengið nokkrar ábendingar varðandi vefvarpið mitt árlega, hvort ég sé ekki til í að fara að opna það bara hvað á hverju. Hafný td. comment’aði við síðustu færslu hjá mér um þetta, en ég hef einnig fengið nokkrar fyrirspurnir á MSN nýverið.. Og í tengslum við þetta vil ég segja.. JÚ! Endilega! =D
Ég er að testa vefvarpið sjálfur þessa dagana, en fyrst það er svona mikill áhugi á þessu svona fljótt, þá held ég að ég verði nú bara að „gefa eftir“ og opna það við fyrsta tækifæri *glott*
Engin nákvæm dagsetning komin samt, en ég kem með feita tilkynningu hérna á blogginu um leið og það opnar, en svo getur fólk líka bara fylgst með á http://vefvarp.dip.is líka ;D
Mig langaði reyndar að athuga hvort einhver sem læsi bloggið hjá mér ætti á lausu SATA/2 flakkara sem hann/hún mætti missa tímabundið í lán eða alfarið gegn gjaldi..? Er með 2 diska hérna sem ég þyrfti að nálgast gögn af, en hef enga vél hérna með SATA2 tengjum nema fileserverinn hjá mér og ég vil ekki vera að rífa hann í sundur fyrir þetta =P
Annars er eitt að frétta af síðunni hjá mér.. ég er að pæla í að byrja að búta útlit sem ég hafði gert, til að búa til WordPress þemu til að nota á síðunni.. Veit ekkert hvernig það mun ganga eða hvort það takist á annað borð.. En þetta getur ekki verið það flókið þetta helvíti.. Vildi allavega koma því á framfæri ef að síða fer allt í einu að breytast/lokast/annað álíka.. ;) Ég er mjög sáttu við þetta look sem er á síðunni núna, en vandinn við það er að þetta er frí WordPress þema, sem þýðir að hún er ekki unique.. Finnst það ekki alveg við hæfi að vera með eins þemu og mögulega þúsundir annara WordPress notanda útí heimi.. =P Tala nú ekki um þegar maður er titlaður vefhönnuður og annað eins!

Byrjaði annars á nýju útlit (á evolution.is vefsíðuna) í dag. Áhugasamir geta smellt á myndina hérna til hægri..
Þetta er rétt byrjunin á hönnuninni, en þarna sést allavega hvert þetta stefnir. Hemmi vildi meina að þetta væri of „blogg-legt“ en mér finnst þetta bara fínt að sjá. Gott að sjá einfaldar síður í stað þessa corperate síður sem eru komnar allsstaðar upp..
Spurning um að láta þetta nægja í bili og halda áfram að forrita!