Monthly Archive for desember, 2008

Wordpress 2.7, afmæli ofl.

Jæja.. soldið langt síðan ég setti inn færslu síðast =P

Ég er allavega búin að eiga afmæli síðan síðast, fórum í leikhús til að halda upp á það. Fórum og sáum að því sem ég held að sé síðasta sýningin af Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu. Miðað við það sem maður var búin að heyra um show’ið þá átti ég von á meiru en raun bar vitni, en þetta var engu að síður frábært hjá honum. Maður sá að vísu að hann var orðinn soldið (understatement aldarinnar) þreyttur á þessu og honum hefur eflaust hlakkað til að klára sýninguna.

Annars uppfærði Wordpress hjá mér í 2.7 og er að dást að því hversu vel þeim tókst með nýju útgáfunni. Búið að AJAX væða allan bakendan og gera þetta líka sætan! Er að leika mér að skoða allt og ekkert og sjá hvort það sé eitthvað hérna sem gefur manni hugmyndir til að bæta mögulega við í eitthvert af kerfunum mínum sem ég er búinn að vera að malla.

Strákurinn var reyndar frekar vondur við systur sína núna um helgina.. Ákvað að klemma á henni tánna (óviljandi náttúrulega) á hurð þannig að það blæddi töluvert undir nöglinni. Fórum í gær með dömuna á heilsugæsluna hérna í Mjódd þar sem læknirinn boraði agnarsmátt gat á nöglina til að létta af þrýstingnum. Henni fannst það bara allt hið besta og var ekkert að stressa sig á þessu, stóð sig eins og hetja, annað en ég hefði gert, og horfði bara á ljósmyndir sem ég hef tekið af þeim systkynum með símanum mínum.

Strákurinn kom reyndar með algeran gullmola núna í dag. Þarfnast reyndar smá útskýringar á því hvað hann átti við. Málið er að núna fyrir helgi þegar Hanna Sigga (tengdó) kom til okkar, stóð til að hún kæmi eftir að krakkarnir væru komnir heim af leiksskólanum á föstudaginn. Nema hvað, hún var laus vel fyrir þann tíma þannig að það var hægt að ná í hana áður en krakkarnir kæmu heim. Sem var gert. En við frúin höfðum verið að tala við krakkana að amma þeirra yrði sótt eftir að þau kæmu heim og væru komin í helgarfrí.
Ég ákvað að vera voða flottur á því hinsvegar og “töfraði” hana fram þegar krakkarnir komu heim, sagði þetta fína líka “hókuspókusfílarókus” og veifaði höndunum og allt í einu labbaði sú gamla fram úr eldhúsinu þannig að þau sáu hana er þau voru að koma inn úr anddyrinu.

Svo núna í dag þegar við feðgarnir vorum að skjótast á bílnum útí búð að versla smá vildi hann fá að vita hvert við værum að fara, ég sagði honum að hann fengi að sjá það eftir smá stund (var að einbeita mér að akstrinum) og hann innti alltaf eftir svörum, spurði aftur og aftur. Fór svo að tala um það að við værum ábyggilega að fara að ná í “ömmusiggu” (lesist: ömmu Hönnu Siggu). Allavega, rétt áður en við beygðum inn á planið hjá búðinni, þá heyrist í honum: “þú bara svona.. púff.. hókuspókus .. og hún komin! JÁ! GERA ÞAÐ!”.

Hann vildi semsagt að ég myndi bara töfra hana til okkar og trúir því statt og stöðugt að ég sé alger galdramaður. Vill hinsvegar ekki að ég töfri á mér þumalputtann lausann.. er víst hræddur við það greyið.

Ég verð nú að tjá mig aðeins um eina frétt sem mér var bent á fyrr í kvöld á Morgunblaðs vefnum.. Ég sá titilinn á hlekknum og sá bara “bolti.. leggöng..” og hugsaði með mér: “jæja.. enn ein heimskulega fréttin frá BNA” nema hvað.. svo las ég fréttina og kjálkinn datt í gólfið! Þetta var á endanum bara íslensk frétt! (sjá: mbl.is)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Torrent hugleiðingar

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Smá tónlist til að hlusta á, á meðan þú lest færsluna ;D Smá djók þarna fyrst, en um leið og það er búið hefst lagið sem ég vildi leyfa ykkur að heyra ;D
Var bara aðeins að leika mér með audio player stillingarnar.. =D

Ég er mikið búinn að vera að velta því fyrir mér hvernig staðan á torrent samfélagi íslendinga stendur í dag. Af því sem komið er eru nokkrar torrent síður sem fólk er að nota, deiling.is, rtorrent.net og thevikingbay.org sem allar eiga það sameiginlegt að þær eru allar ætlaðar fyrir íslendinga óháð því hvar síðan sjálf er hýst. Enda er það náttúrulega gagnamagnið sem flyst milli notenda en ekki notenda og vefs sem telur ;)

En já, annað sem þessar síður eiga sameiginlegt er að þær keyra allar á gamla, úr sér gengna, tbits kerfinu. Jú, vissulega með einhverjum viðbótum, lagfæringum og slíkt. En “the bottom line” er að þær eru engu að síður að keyra þetta “sama” kerfi. Þannig að nú vaknar spurningin, af hverju það kerfi ?
Hvað nákvæmlega við þetta kerfi veldur því að það hafa nánast engin önnur kerfi komið upp á yfirborðið í netheimum ?

Það er ekki það að þetta sé up to date kerfi, ástæðan er heldur ekki það að það sé einfalt og auðvelt að sjá um slíka síðu. Tala nú ekki um hversu intensive tbits kerfið er á vefþjóna (hef testað svona kerfi sjálfur á productional og persónulegum þjónum). Er ástandið virkilega þannig að eina ástæðan af hverju þetta er notað bara.. “af því að” ? eða það að fólk hreinlega nenni ekki að forrita slík kerfi ?

Ég er allavega vel rúmlega hálfnaður með nýtt torrent kerfi sem myndi gjörsamlega sökkva öllu öðru í skít ef ég kysi að opna síðu sem keyrði á því kerfi. Af hverju? Ég skal lista upp nokkra hluti sem eru í boði / er ekki krafist í kerfinu hjá mér:

  • Hægt er að slökkva á ratio ef stjórnendur kjósa það
  • Ratio er hægt að setja á vissa hópa (groups) notanda
  • Hægt er að virkja freeleech með einum smelli
  • Hægt er að virkja “double up” með einum smelli
  • Notendur eru ekki krafðir um að setja inn svaðalegar lýsingar þegar torrent eru innsend
  • Notendum er sjálfkrafa hegnt fyrir það að seed’a ekki torrent sem þeir setja inn
  • Hit’n'run eru skráð og þeim notendum hegnað / missa réttindi
  • Margvíslegar reglur er hægt að setja á mjög auðveldan máta varðandi ratio tengd málefni (td. bið eftir að dl einhverju ef það er of nýtt)
  • Engir boðslyklar eða hvatningakerfi (krónur/evrur/whatever fyrir að seed’a)
  • Tungumálavél (hægt að bæta við nýju tungumáli/þýðingu án neinnar fyrirhafnar)
  • Þemustjórnun er einstaklega góð, allt kerfið er byggt á einingum og því lítið mál að virkja nýja þemu og jafnvel tímastilla þemur (td. jóla/páska/vetrar/sumar o.s.frv.)

Ég gæti án djóks haldið áfram að telja að lágmarki 100 atriði og sýnt fram á hversu mikið, MIKIÐ betra þetta kerfi er, en látum þetta duga í bili.
Ég vil heldur fara að ræða aðeins um útlitshönnun á svona vef. Hér má finna 2 myndir af default þemunni sem kemur með kerfinu sem ég er að hanna.

Hérna er innskráningin. Eins og sjá má er þetta ekkert svaðalega flókið. Þessi mynd er að vísu á ensku en eins og áður sagði þá styður kerfið það að nýju tungumáli/þýðingu sé bætt við eins og ekkert sé. Eins og sést klárlega er þetta ekkert of cluttered, þetta er frekar stílhreint og létt. Engar óþarfa auglýsingar eða neitt slíkt. Stórt svæði þarna (bláa) til að setja tilkynningar ef þess þarf, ef engin tilkynning er sett þá birtist bara default textinn sem segir basicly að þú verðir að vera innskráð/ur til að geta komist í efni á síðunni.

Plottið með þetta er það að sem minnstar upplýsingar komi á skjáinn hjá þeim sem óvart ramba inn á síðuna. Takið einnig eftir því að það er engin “nýskráning” þarna ;)

Næst er það útlitið sjálft á yfirlitssíðunni. Þarna er sami haus og allt það, nema að nú er innskráningarreiturinn búinn að breytast í avatarmynd viðkomandi aðila (sem er innskráður) auk hlekkja á stillingar og útskráningu. Einnig eru komnar upplýsingar í bláa reitinn efst hversu miklu þessi notandi hefur upp- og niðurhalað í heildina.

Þarna fyrir neðan er svo það sem ég myndi vilja sjá sjálfur á torrent síðu, ekkert óþarfa rugl um “góða lýsingu” eða neitt slíkt, bara titill efnis, stærð, jafningjar (peers), og flokkur sem efnið tilheyrir.

Litla “e” logo’ið þarna lengst til vinstri í hverri línu er þarna bara útaf því að logo’ið uppi er með hallandi “e” líka. Setur meira heildarsvip á þetta. En í kerfinu var ég að pæla í að leyfa líka að merkja spes torrent með öðrum myndum. Td. ef það er ekki endilega freeleech á öllum vefnum heldur bara einhverjum vissum torrent skrám þá væri viðeigandi logo við þau torrent skjöl.

Markmiðið með þessu verkefni er hreinlega það að koma með eitthvað nýtt, TBits kerfið var upphaflega gert 2004 og síðan hefur ekkert verið gert við það nema af hverjum og einum sem rekur sína eigin torrent síðu sem keyrir á því kerfi. Það er bara.. heimskulegt að engum hafi dottið það í hug, eða að engin hafi látið verða af því að koma upp miðlægum vef þar sem hægt er að tala um þessi kerfi, hvernig á að laga hitt og þetta, auka fiff, nýjungar og slíkt.

Ég reyndar tel að gamla “góða” TBits kerfið sé löngu úrelt og dautt, en sökum þess að ekkert nýtt er komið á yfirborðið (nema jú torrenttrader og álíka kerfi sem eru ein verst skrifuðu kerfi sem ég hef séð) þá hafi engin gert neitt í því að hætta með það.

Segðu nú satt, ef þú gætir kosið um að vera á síðu eins og þessar TBits síður, eða einhverju svona einföldu, hvort myndir þú kjósa? Ég held að það sé frekar augljóst, allavega að mínu mati.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Gargandi snilld

Fékk url á þetta vídeó sent áðan, get svo svarið að ég hef ekki hlegið jafn mikið þetta snemma að morgni áður!

Njótið!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Nýtt look og fleirra

Jæja, ákvað að breyta um þema hérna á síðunni, fannst þetta mikið betur tengt því sem er í gangi í dag og slíkt ;D
Er samt að vinna að nýrri þemu sjálfur, tekur bara sinn tíma þar sem ég hef lítinn tíma til aflögu.

Er mest búinn að vera að forrita í þessu verkefni sem virðist aldrei ætla að enda, voða gaman =P eða hitt þó heldur. Vandamálið er að ég byrjaði á því að skrifa kerfið skv samningnum, útbjó allar SQL töflur og grunna sem ég sá fram á að þyrfti að nota og slíkt, bjó til einfalt kerfi í hausnum á mér hvernig gögn yrðu vistuð í grunnum og allt slíkt.. Svo breyttist það í það að ég yrði helst að nota gögnin úr eldra kerfi fyrir þennan kúnna, nema hvað, sá grunnur er tóm helvítis steypa, ég er búinn að kóða hátt í 2000 línur af kóða sem verður hent, hann verður bara notaður til að koma gögnunum yfir í nýja kerfið. En það er ekki nóg með það, heldur er ég alltaf að lenda í veseni með þetta þar sem gömlu gögnin eru svoooooo steikt.. alveg við það að grýta einhverju fram af svölunum hérna þegar ég lendi í þessu.

Annars er það að frétta að ég ákvað að leika mér aðeins að breyta um þema í mac’anum hjá mér í gær svossum ekkert mikið sem ég gerði, skipti um icontheme og setti nýja bakgrunna á desktop’ið, that’s about it.

Henti inn skjáskotum af þessu hjá mér sem er hægt að sjá hérna: aðalskjárinn og aukaskjárinn. Aðal er vinstra megin við aukaskjáinn. Sést svossum ekki mikið á screenshot’inu af aukaskjánnum, en þið sjáið allavega bakgrunninn ;)

Erum svo að fara í jarðarför á morgun, það þykir mér alltaf jafn leiðinlegt. Ekki af því að það sé almennt leiðinlegt að fara í jarðafarir eða þannig, heldur vegna þessa að mér er ekki vel við það þegar einhver sem ég þekki deyr =P Æji, þeir fatta mig sem fatta.

Er annars búinn að vera að dútla mér við fjórðu útgáfuna af v3 á evolution.. er svona að reyna að ákveða mig hvort það sé look sem muni haldast inni og henti fyrir fyrirtæki eða ekki..

læt í mér heyra síðar ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Yndið hún dóttir mín

Eins og flestir vita þá fékk stelpan tvo gullfiska í afmælisgjöf núna um daginn, nema hvað að annar þeirra dó í dag.
Upphaflega ætluðum við bara að segja henni frá því en hún tók eftir því áður en við gátum sagt henni frá þessu og eftirfarandi samræða varð til:

Bylgja Rós: “Mamma… guli, svarti og hvíti fiskurinn er horfinn!”
Kristín: “Nú? er það?”
Bylgja Rós: “Jáhh! Hann er ekki þarna!”
Kristín: “Hefur hann ekki bara farið í frí eitthvert?”
Bylgja Rós: “Nei!! Fiskar fara EKKI í frí!”

Svo stuttu síðar kom hún til mín að segja mér frá því að fiskurinn væri ekki í fiskabúrinu:

Bylgja Rós: “Pabbi.. svarti, hvíti og guli fiskurinn er farinn!”
Ég: “Nú, hvert fór hann? Í frí eða?”
Bylgja Rós: “Nei, ég held hann sé bara dáinn og sé að fela sig undir steinunum!” (eru sko steinar í botninum á fiskabúrinu).

Hvað á maður að segja við þessi kríli þegar svona kemur uppá ? =P
Nú hinsvegar er ég í panici hvort að hinn fari að gefa upp öndina líka eða ekki, búinn að hegða sér rosalega skringilega frá því um miðjan dag í dag… =/


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr