Monthly Archive for febrúar, 2009

Áframhaldandi þróun á Scribe

Jæja.. Ég er búinn að taka þá ákvörðun að halda áfram að þróa Scribe *jeij* =D

Kerfinu skipti ég í fjóra parta en þeir verða:

  • Scribe:CMS
  • Scribe:Blog
  • Scribe:Commerce
  • Scribe:CRM

Ástæða fyrir þessu er sú að ég er með nokkra kúnna sem eru búnir að biðja um vefverslunarkerfi sem er einfalt, ég prófaði fyrst að setja upp Magento kerfið (dæmi) til að sýna þeim hvernig kerfi væri hægt að hafa allt og ekkert í einu ready made kerfi en flestir (ef ekki allir) vildu eitthvað einfalt sem bara virkaði. Magento er rosalega flott og vel skrifað kerfi, open source og kostar því ekki baun. En það er ögn flókið fyrir marga að læra á það. Svo er ekki eins einfalt að þema það og þeir gefa upp.

Fyrsta Scribe kerfið sem verður klárað verður því Scribe:Commerce (vefverslunarkerfið). Næst á listanum er líklegast Scribe:CRM fyrir okkur til að notast við innanhús til að halda utan um kúnna, verk og slíkt. Verður í raun ekki real CRM kerfi þannig séð, ekki í þeim tilgangi sem Microsoft CRM er notað td. En það verður meira sniðið að þeirri þörf að halda utan um ma.

  • Kúnnar: Upplýsingar um kúnna, póst, stillingar og annað eins
  • Verk: Hin ýmsu verk sem við vinnum fyrir fólk útí bæ.
  • Reikningar: Hægt að prenta út reikningsyfirlit til að nota með DK/Navision ofl. kerfum (sem fylgiskjöl)
  • Tímaskráningar: Skrá niður hvað var gert í hvaða verki, hversu mikinn tíma það tók og slíkt.

Þetta eru allavega helstu partar sem ég hef sett á blað sjálfur. Má vel vera að það bætist meira við, jafn vel að maður græji mobile client fyrir þetta upp á tímaskráningar í verk. Væri hægt að nota þann client td. í símum og fartölvum. Spurning samt um að gera clientinn helst í einu tungumáli sem virkar þá á öllum stýrikerfum (which will be hard!).

Scribe:Blog mætir svo líklegast afgangi, þar sem það eru fæstir sem þurfa á blogkerfi á að halda. Má líka vel vera að það kerfi verði aldrei til. Sjáum allavega til bara ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Scribe ? =)

scribe-cms-innskraning-20090215Er aðeins búinn að vera að fikta við gamla góða Scribe’ið núna sl. daga. Komið nýtt útlit, hegðun og annað í kerfið. Spurning hvort það fari að nálgast “stable” hjá mér? ;) Hér er, eins og sést, mynd af innskráningunni á nýja kerfinu =D Hvernig finnst ykkur ?

Eins og sést þá er þetta EKKERT líkt gamla stuffinu, bakendinn sjálfur er rosalega mikið breyttur.

Ástæðan af hverju ég er búinn að þessu er sú að eitt verkefni sem ég hef verið að vinna í núna í töluverðan tíma byggir á Scribe og því var þetta “í leiðinni” að framkvæma =)

Endilega commentið á look’ið og ef áhugi er fyrir þá get ég jafnvel hent inn skjáskotum eða bara vídeó’i af því hvernig bakendinn virkar núna =)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Kallarðu þetta plötudóm?

Mér varð á að lesa Fréttablaðið í dag og rakst þar á þessa grein sem, skv. útliti og staðsetningu í blaðinu ætti að vera plötudómur fyrir nýja diskinn með The Prodigy, Invaders must die. Sem ég sjálfur hef verið að hlusta stíft á núna undanfarna daga. En nei, það litla sem er “fjallað um” nýja diskinn eru eftirfarandi málsgreinar:

Vinsælasta hljómsveit danstónlistarsenunnar, The Prodigy, snýr nú aftur með nýja plötu, Invaders must die. Þetta er fyrsta plata bandsins með upprunalega liðinu síðan platan Fat of the land kom út árið 1997. Dr. Gunni skoðaði málið.

Á nýju plötunni, þeirri fimmtu, þykir The Prodigy snúa aftur til rótanna. Að nafninu til gaf bandið síðast út plötu árið 2004, Always outnumbered never outgunned, en þá var Liam einn á ferð. Hann þarf greinilega vini sína með til að rétti Prodigy-andinn galdrist fram og hefur sagt að Always outnumbered sé botninn á ferli sínum.

Meira er í raun ekki sagt um nýja diskinn.. Engin lagalisti, ekkert minnst á þau tvö lög sem er búið að gefa út sem singles af plötunni eða neitt..

prodigy

Ef þetta telst eðlilegt, þeas. að tuða um einhverjar sögur af meðlimum hljómsveitarinnar, minnast á gamla hluti, þegar inngangur fréttarinnar fjallar um nýjan disk með hljómsveitinni, þá finnst mér ritmenning íslendinga vera dottin verulega langt niður í gæðum.

Skv. inngangi greinarinnar þá er það Dr. Gunni sem skrifar hana, um hann er *ekkert* slæmt að segja. Ég hef lengi vel fílað skrif hans í blöðum og á netinu, fannst hann líka frábær í td. Popp Punkti sem var sýndur lengi vel á Skjá Einum. En mér finnst samt lágkúra að fjalla í raun ekkert um “efni greinarinnar” ef svo mætti að orði komast.

Ég hef reyndar aldrei gert einn né neinn plötudóm, en ég skal allavega reyna það ;D

Diskurinn saman stendur af ellefu lögum og byrjar hann á titillagi disksins, Invaders Must Die, sem er hálfpartinn líkt Spitfire af síðasta disk The Prodigy. Grípandi lag með þessum klassíska og þunga “Liam trommuslætti”.

Næst á disknum er nýji single’inn, lagið “Omen”, há skríkjandi hljóð í bland við þungan bassa og harðar trommur. Það sem kemur mest á óvart í þessu lagi er undirspilið sem heyrist af og til í laginu en endar líka lagið. Í myndbandinu er einmitt ung stelpa, dökk klædd og drungaleg að spila þetta undirspil. Alltaf þegar ég heyri lagið er mér hugsað til þessarar stelpu og ég fæ nettan hroll upp bakið við þá hugsun.

Næstu tvö lög eru óttarlega slöpp, Thunder og Colours. Thunder byrjar vel en endar einhvern vegin í lausu lofti, vantar meiri heild í lagið þegar fyrsta mínútan er liðin. Colours aftur á móti er nokkurn vegin sama lag (takturinn aðallega þó) og lagið Memphis Bells af Always Outnumbered Never Outgunned. Örlítið hraðara lag þó, en floppar verulega við fyrstu hlustun.

Take Me To The Hospital er næsta lag á disknum, en titill þess lags er einmitt búin að vera áberandi krotaður á lok annarar fartölvunnar sem Liam notar á tónleikum The Prodigy. Lagið er of gamalt eitthvað, eins og það hafi átt að koma út á hátindi Rave safnplötunnar sem innihéld smelli á við “Opus 3 – Fine Day”, “Kicks Like A Mule – The Bouncer” ofl laga. Sömplin sem eru notuð í laginu virðast öll vera frá því tímabili og falla einhvern vegin ekki inn í þá mynd sem diskurinn í heildina er að reyna að byggja upp.

Lag númer sex er svo Warriors Dance, byrjar með blásturshljóðfæri sem minnti mig strax á Black Flute með Leftfield (af disknum Leftism frá árinu 1996) og því fékk ég væntingar um að lagið ætti að vera gott. Virkar vel á mann þar til takturinn byrjar þegar um mínúta er liðin af laginu. Aftur er Liam að reyna að nota sömpl sem eru löngu útbrunnin og ofnotuð. Lagið er svo líka einum of mikil endurtekning.

Nú er svo komið að því lagi sem ég vil meina að verði næsti single af disknum, lagið er númer sjö á disknum og heitir Run With The Wolves. Þar er Flint kominn með míkrafóninn að garga að manni stöðluðum línum álíka og “Whatcha gonna do when the hounds’a callin’?”. Þetta lag nær hinsvegar að rífa upp álit manns á disknum í heildina eftir slæmu lögin sem á undan eru á disknum. Hresst og grípandi lag, gömul og ný sömpl, drullugóðir taktar og Flint einhvern veginn smellpassar þarna inní. Röddin hans og framburður á enskunni er alltaf jafn skemmtileg =)

Næst er svo kallað “reprise” útgáfa af Omen. Mikið rólegri útgáfa, byggir meira á öllu öðru en trommum og trommutöktum. Ágætis útfærsla á Omen laginu.

Worlds On Fire er næsta lag og það hefur heyrst ansi mikið á tónleikum nýverið með The Prodigy. Mér skilst að það sé notað rosalega mikið sem intro lag til að kynda undir fólkinu. Vel heppnað lag, Maxim gargandi og fær að njóta sín. Syntharnir tveir sem eru notaðir í miðju lagi takast vel saman. Eru af sitt hvorum enda skalans en ná að spila saman mjög vel. House stabs svo í laginu sem eru alger snilld. Þarna tekst Liam að nota blöndu af gömlum og nýjum hljóðum mjög vel, nær að byggja upp rífandi stemmingu með laginu.

Piranha er svo næst síðasta lagið á disknum. Mér persónulega finnst það lag vera með bestu lögunum á disknum. Hresst, grípandi, mjög góðir taktar undir. Maður varla ræður við sig þegar maður hlustar á það, langar verulega að hreyfa sig og dansa eða gera eitthvað af sér. Hálfgerður Sci-Fi fílíngur í miðju lagi sem er svo drepinn og harður takturinn kikkar aftur inn.

Loka lag disksins heitir svo Stand Up og verður að segjast að það fellur einhvern veginn ekkert inní þá tónlistarstefnu sem The Prodigy hefur ætíð verið í. Þetta er á engan máta danstónlist, meira svona.. afslappað hip-hop bragur af því. Byrjar með sampli úr einhverju lagi þar sem brass hljóðfæri fá að njóta sín, svo kemur frekar þungur hip-hop/trip-hop taktur inn og einhver nýleg hljóð. Minnir mann soldið á hvernig Chemical Brothers voru á þeim tíma sem þeir gáfu út Exit Planet Dust. Fínasta lag, en kemur eins og álfur útúr hól þegar maður ber það saman við öll hin lögin á disknum.

Í heildina litið þá er þetta mjög góður diskur. Þetta er á engan máta gamla Prodigy sem héldu tónleika hér á fróni í denn, en það eru þó vissir taktar á disknum sem vitna í þann gamla tíma. Tímarnir breytast og mennirnir með þeim og það verður að segjast að Liam, Flint og Maxim hefur tekist mjög vel með þessum disk. Þarna mætast tveir heimar, sá nýji og sá gamli draumkenndi.

Ef ég ætti að gefa disknum einkunn þá myndi ég segja 8 af 10 mögulegum. Þau “slæmu” lög sem eru á disknum ná ekki meðaltalinu niður sökum hversu snilldarleg hin lögin eru. Efst þar á blaði eru þó Omen, Invaders Must Die, Run With The Wolves og Piranha.

Ég ætla allavega að vona að einhverjum finnist þetta skárra en greinin hans Dr. Gunna í Fréttablaðinu ;)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Forvitnilegt

Ég var að taka eftir þessari frétt (vísir, mbl) um að tveir gervihnettir hefðu rekist á hvort annan á sporbaug um jörðu og þar er talað um að þetta sé í fyrsta skiptið sem slíkt gerist.. Sem er kolrangt farið með!

Þetta er vissulega í fyrsta skiptið sem það er óplanaður árekstur milli tveggja eða fleirri gervihnatta, en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem tveir gervihnettir rekast á. Var nú bara á síðasta ári sem Kína lét tvo hnetti á sínum færum *viljandi* rekast á hvorn annan vegna rannsókna á hvað væri hægt að gera til að útrýma gervihnöttum, vopnuðum og vísindalegum í “sinni lofthelgi” ef svo mætti að orði komast.

Þá brotnuðu þeir í fleirri en 6000 brot, fjöldi þeirra var því meiri en öll gervitungl sem send hafa verið í loft frá upphafi, og Kína fékk verulegar skammir frá öðrum geimfarandi ríkjum í heiminum fyrir þessa tilraun.

Hvernig veit ég þetta? Jú, það var fjallað um þetta mál td. í einum nýjasta “The Universe” þætti á History Channel um daginn. Titillinn á þættinum er “Edge of Space” og er þar fjallað meðal annars um hve mikið af rusli (en. Space Junk) við höfum skilið eftir okkur í sporbaug um jörðina okkar. Þar er minnst á að það séu ekki færri en 20.000 hlutir sem eru yfir 1″ að stærð. Það er líka til stofnun sem heitir JSPOC (Joint Space Operations Center) sem hefur það sem aðalmarkmið að fylgjast með því rusli sem hægt er að greina í kringum jörðina, ásamt því að fylgjast með smástirnum ofl. sem gæti ógnað lífi á jörðinni. Þeir fylgjast með, dag frá degi, um 18.000 hlutum þar sem geimrusl er í miklum meirihluta, en allir hlutir sem þeir geta fylgst með verða að vera að minnsta kosti 2″ að stærð.

Fyrir áhugasama setti ég inn ca 1:30 brot af þessum þætti inn og má finna þá skrá hér: Kína árekstur gervitungla.

Fyrir þá sem langar að sjá þessa þætti og vera löglegir í því ;) þá vil ég benda á þennan hlekk til að versla nýjustu þættina af The Universe í gegnum iTunes. Serían sem er í gangi núna er sú þriðja, en ég held að það sé einnig hægt að versla eldri seríur þarna líka. Þættirnir eru fáanlegir í HD og SD (Standard Definition).


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Þreyta og fleirra

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Jæja.. soldið síðan að ég setti síðast inn færslu. Slatti af dóti búið að vera í gangi en þó stendur hæst upp úr að ég er að fara í svefnrannsókn útaf háu stigi (bráðagreindur) af kæfisvefni.. Sem veldur því meðal annars að ég er rosalega þreyttur á daginn, rosalega oft með hausverki og slíkt, en einnig það sem fer mest í taugarnar á mér að ég er rosalega einbeitingarlítill..

Núna í þessari viku eru verktakarnir sem eru að gera við svalirnar á húsinu sem við erum í búnir að vera að vinna í íbúðinni við hliðina á okkar íbúð og ská fyrir ofan sem veldur því að það eru hrottarleg læti hérna inn í íbúð.. (sjá hér: 10022009.mp4). Svo útaf þessu þá er sama lagið búið að hringla inn í hausnum á mér í allan dag.. en það er einmitt hérna efst í færslunni ;D

Annars .. er óttarlega lítið að frétta þannig séð sem er þess virði að fara yfir hér. Vona bara að ég fari að fá fulla einbeitingu fljótlega til að geta gert alla þá hluti sem mig langar að koma í verk =P

evolutionisnuverandiSkipti að vísu um útlit á www.evolution.is núna um daginn og er hægt að sjá það með því að smella á hlekkinn eða með því að smella á þessa mynd hér til hægri. Frekar ánægður með hvernig tókst.

Alltaf gott að takast það að gera fallega síðu sem er þetta einföld. Litirnir finnst mér koma rosalega vel út, dökk grái og þessi svo skær blái eiga svo vel saman að mínu mati.

Annars er ég svona að melta að gera mína eigin Wordpress þemu til að nota á síðunni.. Frekar asnalegt að kallast vefhönnuður en samt að nota einhverja þemu sem skrilljón aðrir eru að nota útum allan heim. Held meira að segja að þessi þema sem ég er að nota sé ein af þeim vinsælustu á wordpress.org.. Hef bara ekki komið mér almennilega í að kynna mér hvernig þemurnar eru byggðar upp almennilega. Og ég hef heldur ekki fundið neinar almennar “guide-lines” um þemugerð fyrir Wordpress ennþá, ekki að ég hafi ekki reynt að finna slíkt!

Það sem ég hef verið að upplifa af Wordpress er að það eru ákveðin CSS nöfn sem eru notuð af kerfinu, en mér þykir það rosalega skrítið að það sé ekki hægt að finna (auðveldlega) neinn guide eða “guide-lines” um það hvað er notað hvar og hverju má fikta í í raun og veru..

En já.. þarf að halda áfram hérna að forrita og hanna.. voða gaman að reyna að einbeita sér með þessi læti í íbúðinni =P


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr