Monthly Archive for mars, 2009

Hræðsla…

Ég er ekki frá því að maður sé orðinn soldið smeykur. Ég hef verið að skoða soldið skóla og nám sem í boði er hér á landi, hugsaði bara: “since everybody else is doing it, why can’t I?”..

En þetta er barasta ekkert það einfalt.. =/ Ég er ekki enn búinn að finna neitt sem ég þykist vita að ég vilji og/eða komist í gegnum með að læra. Maður er nú orðin eldri en maður var þegar maður var síðast í framhaldsskóla, hvað veit ég hvernig lærdómskúrvan er hjá mér núna =/

Jana vill meina að Keilir sé skref í rétta átt fyrir mig, en það að þurfa að rúnta fram og til baka milli rvk og rnb er eiginlega ekki í boði að mínu mati =P

Svo er það líka spurning um hvernig maður hefur efni á þessu, var að skoða hjá nokkrum skólum og það liggur við að engin önn sé ódýrari en 190.000kr ! =/ that’s a bit steep!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

“JÁSÆLL”

Ef þú hefur vitund um það hvaða helvítis fífl er á þessum líka stærðarinnar, upphækkaða Toyota jeppa með þetta skelfilega einkanúmer “JÁSÆLL” þá er hér saga á ferð fyrir þig.

Núna áðan var ég að koma frá Breiðholti að Rauðavatns hringtorginu og fæ þetta mann helvíti í rassgatið á mér. Við erum báðir á vinstri akrein á leið inn í hringtorgið og fórum svo á endanum út á sama stað. Nema hvað.. Þessi mann djöfull sem á “svo flottann bíl” (lesist með kaldhæðnistón dauðans) með þetta “stórglæsilega og cool” einkanúmer (lesist aftur.. í kaldhæðnistón dauðans!) ákveður í miðju hringtorginu að skipta um akrein og fara á ytri hring, gefa svo allt í botn akkúrat þegar ég er að fara útúr hringtorginu og yfir á hægri akreinina á fráreininni.

Hann SÉR að ég er með stefnuljósið á, hann VEIT að hann má ekki taka frammúr á hægri akrein, en hvað gerir hann ? Hann SPYRNIR við mig á þessum litla kafla til að reyna að hindra að ég komist yfir á hægri akreinina þar sem sú vinstri sameinast þeirri hægri á nokkrum metrum næstum því.

Ég bæði flautaði á hann og veifaði hendinni í svona.. “WTF?!”-way þegar ég var loksins kominn á hægri akreinina.. en hvað í ANDSKOTANUM fær þetta heilalausa fífl til að halda að hann eigi heiminn og allt sem í honum er ?

Þetta er að mínu mati enn ein helvítis ástæðan af hverju jeppar og stærri bílar (að undanskildum atvinnutækjum) eiga að vera bannaðir innan þéttbýlis!

Þarna á þessum litla stað tekst honum að brjóta í raun 2 umferðarlög og sýna mér að hann ber enga virðingu fyrir mér, né þá öðrum í umferðinni. Hann sýndi enn frekar að hann er einstaklega slæm fyrirmynd, sá að í bílnum var allavega eitt barn aftur í og svo kona í farþegasætinu frammi í bílnum. Þetta er svona klassískt dæmi um einstaklega heimskan, frekan og hundleiðinlegan ökumann á stórum jeppa í Reykjavík.

Svona upp á gamanið ákvað ég að leita á google að “einkanúmer jásæll” og fékk þar upp tvær síður. Þetta númer var greinilega á Toyota Avensis station bíl fyrir einhverjum tíma, gott að sjá að svona fífl komast upp með að fá stærri og hætturlegri bíla í miðri kreppunni.

Ég er með ein skilaboð fyrir þennan mann! Og þau eru klárlega:

jasaell

Lærðu að keyra!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Ubuntu 9.04

Veit ekki hverjir fylgjast með hvað er nýtt og hvað ekki, en Ubuntu 9.04 er komið í beta útgáfu núna og er hægt að sækja ma. iso myndir af vefnum hjá Ubuntu.

Ég er búinn að heyra það 9.04 sé svaðalega ólíkt öllum öðrum útgáfum af Ubuntu (þám. núverandi útgáfu 8.10), þannig að ég ákvað að skella mér á uppfærslu. Ég er með 8.10 inni á vél hérna hjá mér og er núna að keyra í gang uppfærslu upp í 9.04.

Ef þú hefur áhuga á því að prófa þetta þá geturðu keyrt eftirfarandi skipun í “run command” (alt-f2):

update-manager -d

Við það ætti update manager’inn að poppa upp með þau skilaboð að ný útgáfa sé komin af Ubuntu og þá nægir að smella á einn hnapp til að hrinda update’inu í gang. Læt betur í mér heyra þegar ég er búinn að testa að uppfæra og slíkt =)

Það sem ég hlakka samt mest til að prófa eru bætur í Gnome varðandi ma. þegar maður er með fleirri en einn skjá tengdann. So far hefur það ekki verið upp á marga fiska =P


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Álag

cpu-spikesVar að virða fyrir mér fyrr í kvöld skrítið álag sem ég sá í cacti hjá mér á einum þjóninum hjá mér.. Fann ekkert óeðlilegt í gangi, tékkaði manually á rootkit’um ofl á þjóninum og fann ekkert. Fór svo að skoða nákvæmlega hvað var að taka svona mikið af örranum og sá strax þá að þetta var apache2 og mysql, tékkaði þá á loggunum og athugaði stærðir á logfælum, þá kom í ljós að eitt gallerý’ið á gallery.dip.is var undir spam árás!

Álagið á vélinni sjálfri var komið yfir 10 skv uptime og top.

Allavega, fór að tail’a loggin og komst að því að þetta var í þokkabót gallery2 myndaalbúm sem var að fá svona mikið á sig. Hundleiðinlegt að reyna að finna út hvernig er hægt að hindra að fólk/bottar geti ekki skilið eftir comment, eftir smá tuð og vesen fann ég loksins útúr því, það var víst bara að afvirkja comment plugin’ið í gallery2.

Nú er ég búinn að afvirkja commentin, load’ið og CPU notkunin er komin vel niður og ég get því farið að anda léttar.. Ég samt verð að játa það enn eina ferðina að ég fucking HATA spam botta..

Fór smá yfirferð yfir SQL’inn með PHPMyAdmin og sá þar að það voru komin yfir 215.000 comment á síðustu dögum. Fór aðeins meira á stúfana og athugaði hverju væri verið að spamma, það voru jú hlekkir í þessu í BBCode stíl ([url=....]urlið[/url]) en þau url sem voru þarna voru ekki að benda á raunverulega hosta..!

Hvað er pointið í að spamma ef þú ert ekki einu sinni að spamma einhverjum hlekkjum sem er verið að reyna að selja þér eitthvað, smita þig af einhverjum óþverra (Im looking at you Windows machines!) eða álíka?

Heyrði nú einhversstaðar að spammarar væru að reyna að bulla random rusl til að rugla spam varnir þannig að statusinn yrði í raun núllaður varðandi þau orð/hlekki sem einkenna spam póst. En það meikar samt ekki sense þegar það EINA sem ég verð var við eru einmitt þessir non-content póstar / spam þræðir.. Hef ekki séð “eðlilegan” spam póst í nokkur ár held ég..

Annars er ég að melta að fara að hrinda einu í gang fljótlega, þegar ég er búinn að skila af mér tveimur borgandi verkefnum.. Málið er að mér líður ömurlega að vita af ástandinu sem er í landinu og langar að leggja mitt af mörkum til að gera eitthvað til að reyna að vinna á móti því sem margir eru að upplifa í dag..

En.. meira um það síðar ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Ofurnerðir II!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr