Monthly Archive for mars, 2009
Page 2 of 2
Ég hef lengi vel notast við samba og nfs fyrir þá clienta sem ég hef verið að nota, þar sem ég hef mest megnis verið að nota Windows og Linux vélar. Vandamálið við samba er að það er oftast nær frekar hægvirkt og leiðinlegt. Virkar lala ef maður er að nota Windows vél en betur ef maður setur upp Active Directory á netinu. Sem er ekki bjóðandi að mínu mati, finnst allt vera svo leiðinlegt og stirrt þegar maður notar slíkt.
Eftir að ég fékk mér Apple vélar þá hef ég aðallega notað NFS, en það er samt bögg ef að netið er tæpt/flökktandi. Ég hef notað AFP milli iMac og Macbook vélanna og það hefur virkað glæsilega þrátt fyrir borky þráðlaust net og annað eins.
Þannig að ég ákvað að testa að setja upp NetAtalk á Debian þjóninum hjá mér, þar sem það býður mér upp á að deila drifum yfir networkið með AFP.
Útaf leyfarugli varðandi OpenSSL og Debian þá er netatalk ekki uppsett með ssl supporti á Debian, til að fá það inn þarf að fara smá flækju, þar sem Mac OS X Leopard (Mac OS 10.5) vill ekki leyfa þér að tengjast nema með authentication í gegnum SSL dulkóðað samband.
Til að koma upp netatalk á debian þurfti ég fyrst að setja nokkur dependancy inn áður:
apt-get install devscripts fakeroot libssl-dev cracklib2-dev
apt-get build-dep netatalk
Næst bjó ég til tómt dir til að setja inn source’ann af netatalk og sótti hann þar inní.
mkdir ~/netatalk-src
cd ~/netatalk-src
apt-get source netatalk
Svo þarf að fara inn í source’an og keyra eftirfarandi skipanir til að búa til .deb fæl til að notast við í installi með SSL supporti.
cd netatalk-2.0.3
DEB_BUILD_OPTIONS=ssl debuild
dpkg -i ../netatalk*.deb
Í lokin á debuild’inu (önnur lína í klausunni að ofan) kemur villa varðandi gpg, það er alveg óhætt að hunsa hana samt. Þegar installið er að ræsa fyrst NetAtalk þjónusturnar tók það heila eilífð og endað svo á villu en það var allt í góðu. Fór á stúfana og kannaði hvaða skrár og þjónustur væri verið að nota/ræsa og komst að því að það var tonn af dóti sem ég þurfti ekkert á að halda í bili, svo að ég afvirkjaði allar nema tvær. Til að gera þetta, þurfti ég að edita /etc/default/netatalk og breyta þar neðanverðri klausu þannig að hún yrði svona eins og ég set hana hérna inn:
# Set which daemons to run (papd is dependent upon atalkd):
ATALKD_RUN=no
PAPD_RUN=no
CNID_METAD_RUN=no
AFPD_RUN=yes
TIMELORD_RUN=no
A2BOOT_RUN=no
Eftir þetta var nóg að restarta init scriptunni til að fá allt í gang.
/etc/init.d/netatalk restart
Þrátt fyrir að allt væri komið í gang og virkaði sem skyldi náði ég hinsvegar ekki að tengjast við þjóninn hjá mér, fattaði þá náttúrulega að ég átti eftir að skilgreina hverju ég ætlaði að deila af vélinni via AFP, var reyndar byrjaður að leita á google.com, hvort það væri eitthvað meira sem ég yrði að gera, sem var svo líka reyndin.
Fyrst samt stillti ég nýtt share til að deila, það er gert í /etc/netatalk/AppleVolumes.default og þurfti bara að bæta við:
/mnt/massi/ “Massi LVM”
Semsagt, path að dir’inu sem á að share’a ásamt titli sem birtist.
Um leið og þetta var komið þá gat ég tengst við share’ið á vélinni af báðum Apple vélunum mínum með því að ýta á slaufa + k í Finder og slá þar í formið: afp://servernafnið/
Við það poppaði upp gluggi sem sýndi mér þau share sem í boði voru á vélinni og ég náði að tengjast þeim ekkert mál.
Vona að fleirri njóti þessa ef þeir eru á annað borð með Apple og Linux vél á sama LAN’i.
Hver man ekki eftir þessu logo’i ? ;)
Var áðan að fara yfir dót á flakkara hjá mér og fann merkilegan hlut, smá lag sem tveir félagar úr Mömmu ehf (tæknideild) sömdu um tæknideildina hjá Mömmu. Ákvað að skella því hingað inn til að leyfa ykkur að njóta ;D
Gjörið svo vel:
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Textinn í laginu er eftirfarandi:
Hæ, velkomin í samband við Mömmu, allavega, hlustaðu.
Jónas, Kalli, Ingvi Steinn, Egill hann er alltaf seinn, Helgi, Maggi og Sverrir eru að vinna.
Óli slettir enskunni, Skari er í tölvunni, kallinn hennar Hafnýjar heitir Freyr.
En Axel og Kristín, chilla mikið saman, en af hverju engin veit, hvað er svona gaman?Hvað ætli það sé ?
Tja, þau eru hjón.
Já eru þau hjón?
Ég var að segja það..
Já ok..Hemmi er hér, en vandamálið er engin veit hvað hann gerir.
Danni er með Bluetooth í eyra, Baldur kann ekki að keyra, hvað ætli hann keyri niður næst?[Kveðja til yfirmanns]
Þetta virkar kannski ekkert fyndið fyrir þá sem unnu ekki þarna, en ég gjörsamlega missti mig í hlátri bæði fyrst þegar ég heyrði þetta og svo þegar ég heyrði þetta aftur núna áðan! Alger snilld =D
Ég sit hérna heima og stari útum gluggann, læt mig dreyma um að sumarið komi sem fyrst og maður fari út að hjóla. Skjáborðið hjá mér er með ofanverðri mynd (smellið á hana til að sjá í fullri stærð).. Ég er gjörsamlega að deyja ég hlakka svo til að sumarið komi =P
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Það vita það allir sem þekkja mig að ég er mikið fyrir gott rokk, en ég verð hreinlega að játa það að mér líður skelfilega illa að hafa ekki kynnst þessari hljómsveit fyrr.. Amon Amarth heita þeir og eru sænskir, fólk flokkar þá undir “víkinga rokk” sem er tóm steypa að mínu mati, þetta er bara klassíska dauða rokkið, textarnir jú fjalla um allt og ekkert sem tengist víkingum, vitnanir í Óðinn, Þór ofl. norræna guði og goð eru algengar í textunum.
Þessi annars ágæta hljómsveit hefur meira að segja komið til landsins skv. Rebbu vinkonu og ég vissi ekkert um þá, hafði aldrei heyrt um þá né í þeim.. líður ömurlega yfir þessu =P
Hérna er allavega textinn sem er sunginn í laginu hér að ofan:
We rode the rivers of the Eastern trail,
Deep in the land of the Rus’.
Following the wind in our sails,
And the rhythm of the oars.
No shelter in this hostile land,
Constantly on guard.
Ready to fight and defend
Our ship ’til the bitter end.We came under attack,
I received a deadly wound.
A spear was forced into my back
Still I fought on.When I am dead,
Lay me in a mound.
Raise a stone for all to see
Runes carved to my memoryNow here I lay on the river bank
A long, long way from home
Life is pouring out of me
Soon I will be gone.I tilt my head to the side
And think of those back home
I see the river rushing by
Like blood runs from my wound.Here I lie on wet sand,
I will not make it home.
I clinch my sword in my hand,
Say farewell to those I love.When I am dead,
Lay me in a mound.
Place my weapons by my side
For the journey to Hall up high
When I am dead,
Lay me in a mound.
Raise a stone for all to see
Runes carved to my memory
Mér finnst þessi texti vera afbragð, óháð því að þetta sé dauðarokk og allt það. Hann bara snertir við einhverju í mér. Ætli það sé ekki “gamli íslendingurinn” í mér? hehe
Annars er það að frétta að við erum flutt, komin í Grafarvogin í stærra húsnæði og fáum meðleigjanda með okkur. Hemmi karl býr núna með okkur. En stærsta breytingin er sú að börnin fá núna sitt hvort herbergið, sem hefur ekkert nema GOTT gert á þessu heimili. Þeim líður mikið betur núna, fá sitt dót í friði í sínu herbergi. Vissulega líta þau í heimsókn til hvors annars, en það er þó sjaldnar en ekki sem það gerist.
Læt annars meira í mér heyrast fljótlega, er að vinna upp tapaðan tíma eftir flutningana hérna ;)

Nýjustu mótsvörin