Börn

Mér finnst það alveg æðislegt hvað börnin geta gert, sagt og látið frá sér..

Tengdó er búin að vera hjá okkur í rúma viku núna og börnin taka alltaf rosalegu ástfóstri við hana þegar þau eru í kringum hana. Hún sýnir þeim svo mikla athygli og þeim þykir alveg rosalega gott að vera í kringum hana að það er eiginlega við það að maður verði afbrýðissamur.

Allavega, í dag var fermingarveisla á Selfossi sem tengdó, frúin og börnin fóru í. Fóru á báðum bílunum austur, en bíll tengdó var búin að vera í bænum þennan tíma sökum þess að það varð að fara með hann í skoðun. Allavega, tengdó hefur gefið stráknum banana frá Chicita (eða hvernig sem það er stafað) og tekið límmiðan af og sett á hendina á stráknum. Svo rétt áðan heyri ég þessi svaðalegu öskur og grát í honum, hálf hleyp til hans þar sem ég held að það hafi eitthvað svakalegt komið fyrir, en neinei, þá er það bara að límmiðinn af banananum var dottinn af hendini á honum og hann var svo svakalega sár útaf þessu! =D

Ég fékk hann, eftir smá stund, til að leggjast aftur upp í rúm og fara að sofa. En varð að lofa honum því að á morgun myndum við hringja í „ömmusiggu“ (lesist: ömmu Hönnu Siggu) og láta hana vita að við ætluðum að setja límmiðann í límmiðabókina hans. Svo vildi hann líka meina að við yrðum að hringja aftur eftir að við værum búnir að því..

Þessi börn =D

Annars fylgir hér með mynd af okkur feðgunum síðan í des, tekin á jólaballi sem við fórum á fjölskyldan.

dsc01406

2 thoughts on “Börn

  1. Tók reyndar eftir því um daginn að hann kallar hana ekki lengur „ömmu Siggu“ heldur er nafnið orðið mun lengra, sem sagt „amma Sigga Hanna Sigga“ Hehe

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>