Ég kýs

Að kjósa ekki, það er minn réttur þegar öllu er á botninn hvolft ekki satt?

Ég gjörsamlega hata þegar kosningar eru þar sem ég fæ hreinlega ekki frið fyrir fólki sem vill endilega segja mér að þetta sé best, eða hitt, eða þetta þriðja.. fólk að segja að ég VERÐI að nýta mér minn rétt til að kjósa og blablabla.

Til samlíkingar við hversu mikið ég er inni í pólitík er eflaust hægt að segja að ég er það “mikið” inni í henni (lest kældhæðnin í þessu rétt?) og þú ert eflaust inni í því að vita um alla parta LHC, hvar þeir eru og hvað þeir gera.. Ég fylgist ekkert með neinu sem viðkemur pólitík, ef eitthvað kemur í fréttunum um þetta þá kúpla ég hausinn á mér út.. Ég hata pólitík, it’s just that simple.

Ég hef ekki áhuga á að koma mér inn í kerfi sem hreinlega virkar ekki! Það er og mun alltaf vera spilling, það eru og munu alltaf vera svikarar og lygarar. Og vitiði, þeir pólitíkusar sem falla í þá hópa eru of margir til að eitt bölvað atkvæði geri nokkurt gagn! Mér er alveg sama hvaða rök fólk kemur með, þau eiga hreinlega ekki við mig!

Segjum td. að ég láti undan og kjósi eitthvað, hvernig á ég að gera upp minn hug varðandi þetta allt, þegar ég veit EKKERT um NEITT sem viðkemur pólitík ? Ég get eflaust ekki nefnt nema 2-3 flokka, ég hef ekki hugmynd um hver er í hvaða flokk.. Ég hef heldur ekki hugmynd um hvað hvaða flokkur stendur fyrir og hver stefna hans er.. Ef ég myndi kjósa væri ég mögulega að gera meira illt en gott. Fólk hlýtur að sjá það =)

Pólitík = rusl = it will never work.. Sama hvað hver lofar þá virðumst við alltaf vera einu skrefi aftar en við vorum þegar öllu er á botninn hvolft.

Eitt atkvæði gerir ekki boffs, að skila auðu er það SAMA og að kjósa ekki.. það eina sem að skila auðu hefur áhrif á mér vitandi eru tölurnar sem kosningavökurnar tuða um allt kvöldið.. X margir skiluðu auðu..

Ég segi nákvæmlega það sama með því að sitja heima og gera eitthvað annað, og að keyra á kosningastaðinn og skila auðu.. nema það að ég spara mér tíma sem ég gæti annars nýtt í eitthvað annað gagnlegt fyrir mig og mína fjölskyldu og ég spara mér bensínið í leiðinni =)

Þetta er allavega mín skoðun á málunum =)

Flame away!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

8 Responses to “Ég kýs”


  • Það að þú hafir skoðun þýðir að þú sért pólitískur þrátt fyrir allt. ;) Og þér er væntanlega ekki sama um líf og framtíð þína og þinna? Þú ert þrælpólitískur en átt bara í erfiðleikum með að viðurkenna það! :p

    Það aftur á móti hvort lýðræðið sé að virka eður ei er allt önnur saga en það er a.m.k. minnst vonda kerfið fyrst við fáum ekki anarkisma eða kommúnisma til að virka.

    Góðar stundir.

  • Með því að skila auðu ertu að kjósa X-D … takk Axel takk takk. Til að útskýra það nánar að þú sért að kjósa X-D með því að skila auðu þá er X-D trúarfélag með æðstaprest og alveg sama hvað æðstipresturinn drullar upp á bak, klúðrar málim, fer illa meðflokkinn og kjósendur sýna þá kjósa þeir böðulinn sinn aftur ár eftir ár. Flokkurinn á fast kjörfylgi alveg saman hvað á dynur og er það nærri lagi 20% fylgi. Ef fólk skilar auðu þá hækkar það vægi X-D þeas styrkir hans kjörfylgi og þess vegna eru þeir sem skila auðu að kjósa X-D, vertu skynsamur og kjóstu.

  • Ooooog settu upp spam captcha, fátt leiðinlegra en að fá þessi skilaboð:
    “Your comment is awaiting moderation.” minnir mann á ritskoðunarstefnu kínverja.

  • Það þarf ekkert að útskýra eitt né neitt fyrir mér, ég hef hreinlega ekki áhuga.

    Það sem ég þoli ekki er tvennt, pólitík og trúarbrögð, því það virðist vera sama hvað maður segir, alltaf er einhver sem þykist vita betur hvað maður vill og vill snúa manni.

  • Sævar – hann er reyndar að kjósa sitjandi stjórn með þessu. Þetta hef ég frá Gunnari Helga sem kennir Stjórnmálafræði upp í HÍ, sem eyddi ansi góðum tíma í að útskýra auð atkvæði og það að kjósa ekki.

    Það sem þú segir væri einungis satt EF D væri við stjórnvöld í dag.

    Þannig endilega ekki kjósa þú ert að kjósa rétt með því ;)

  • Þá er þessi Gunnar Helgi að kenna kolvitlaust, hann á að vita það að X-D á alltaf fast kjörfylgi og allir auðir seðlar styrkja X-D

  • “X-D á alltaf fast kjörfylgi og allir auðir seðlar styrkja X-D”

    Frábær sjálfstæðismannarök! Spáum ekkert í sjórnmálafræðingum, trúum bara orðum D.Krist og hans lærisveinum.

  • Ég held líka að Sævar hafi lesið of hratt yfir færsluna.. ég sagði ég kýs ekki, as in, ég fer ekki á staðinn, ég skila ekki inn auðu.

    Þannig að:
    “Með því að skila auðu ertu að kjósa X-D … takk Axel takk takk.”

    á ekki við færsluna =)

Leave a Reply