Var aðeins að skoða mig um á netinu og tók eftir því að það eru komnar myndir af nýju hjólunum frá Kawasaki á síðuna hjá þeim.
Sá neðanverða mynd og varð enn og aftur ástfangin af Vulcan’inum.. 900cc ætti að vera yfirdrifið nóg fyrir mann eins og mig, þar að auki er þetta hjól LT, þeas. vindhlíf(rúða), töskur og fleirra góðgæti fyrir menn á ferðinni (LT = Long Travel).
Ain’t it a beauty?

Sá svo líka þessa frétt á mbl.is sem mér þótti nokkur snilld að lesa.. Ekki útaf titli né efni fréttarinnar þó! Heldur því sem stóð neðst..
Það skal jafnframt áréttað að bifhjólamenn eru almennt til fyrirmyndar í umferðinni en fáeinir úr þeirra röðum geta auðveldalega varpað rýrð á allan hópinn. Svo virðist hafa verið í þessu tilfelli, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Þetta var það sem hlýjaði mér um hjartaræturnar =)
Það er að vísu mjög einföld og góð ástæða fyrir því af hverju 99% vélhjólamanna eru til svona mikillar fyrirmyndar í umferðinni.. Hún er einfaldlega sú að ef þú ert á hjóli, þá ertu ekki verndaður af rammanum sem bifreið kallast og ef þú lendir í árekstri, þá lendir ÞÚ í árekstri, ekki farartækið.
Til að forðast það og/eða minnka líkurnar á því, þá keyrir vélhjólafólk oftast nær skynsamlega og löglega, þó það séu vissulega sumir sem spæna upp og niður allar götur, helst þá á afturdekkinu einu, á alltof öflugum hjólum fyrir sinn þroska. En það er bara lögmál Darwins „in action“ ;)
En nóg um það, ætla að skella mér í háttinn.. löng helgi að baki!