Ég er búinn að vera með Macbook’ina mína í herberginu í einhvern tíma og hef verið að skoða hinn og þennan spilara til að nota á Mac OS X til að spila efni, bæði DVD myndir, vídeó af netinu og annað eins. Með Mac OS X Leopard (Mac OS X 10.5) þá fylgir fínt forrit sem heitir Front Row, en það hefur aldrei virkað neitt sérstaklega vel varðandi það að ég lendi oft í því að Front Row hreinlega deyr ef ég vel ranga skrá og/eða sú skrá sem ég vel er með einhverjum Codec sem QuickTime styður ekki.
Ég ákvað því að skoða hvað væri í boði fyrir mig á netinu af fríum hugbúnaði, settist niður og krotaði nokkra punkta um hvað ég vildi sjá í þeim hugbúnaði.
- Spila DVD myndir úr ISO fælum (afrita marga diska inn á miðlægan þjón og geymi original’inn)
- Spila DivX og XviD myndir úr avi, ogm ofl. skráarformum
- Spila MP3, OGG ofl. hljóðskráarformum
- Hafa einhversslags grunn um hvaða efni ég ætti til að vafra um
- Horfa á trailer’a frá Apple (Kynntist því fyrst í Front Row)
Þessi listi er ekki tæmandi, en gefur ágætis sýn yfir hvað ég vill útúr slíkum spilara. Eftir smá leit á Google og smá yfirlestur á maclantic spjallborðinu fann ég 3 forrit sem fittuðu að mestu undir það sem ég var að leitast eftir og hér eftir fer ég yfir hvað mér líkaði/líkaði ekki við hvert þeirra.
Fyrst á listanum er XBMC (X-Box Media Center) sem ég hafði heyrt um í denn og leist voða vel á, á blaði, en hafði aldrei prófað að keyra.
Upphaflega var þessi hugbúnaður gerður einungis fyrir XBox vélar þar sem þær bæði gátu keyrt slíkan hugbúnað og voru nánast undantekningarlaust staðsettar í stofum við stærsta sjónvarp heimila.
Mér hinsvegar til mikillar gleði, þá komst ég að því að XBMC er til núna fyrir alla flóruna af stýrikerfum sem eru algengust í dag hvort sem það er Mac OS X, Windows XP/Vista, Linux, Apple TV eða XBox’ið gamla sjálft. Það er meira að segja til sér iso diskur ætlaður til að skrifa á disk til að boota hvaða PC vél upp á Live kerfi til þess að nota XBMC!
Ég allavega, setti XBMC inn og byrjaði að prufa mig áfram með það, en í fljótu bragði þá tókst mér að spila vídeó einn tveir og þrír óháð því hverrar tegundar þau voru. En þá bara með því að vafra langar leiðir og velja hverja skrá. Ég tók eftir að það var í valmyndinni: „Videos“, „Movies“ og svo „TV“, en eina leiðin fyrir mig til að horfa á vídeóskrár óháð eðli, innihaldi eða staðsetningu er með því að velja „Video“. Eftir stuttan lestur á XBMC síðunni þá vissi ég að það væri hægt að búa til gagnagrunn yfir efni sem væri bæði á þeirri tölvu sem ég er að keyra spilarann á en einnig líka á öðrum vélum með deild drif á netinu hérna heima. En ég komst þó hvergi að því hvernig nákvæmlega ætti að framkvæma það og það var ekki beint einfalt að leita í XBMC að þeim möguleika.
Næst á lista var mér bent á Plex sem er í raun „fork“ af XBMC verkefninu, sem er samt bara ætlað fyrir Mac OS X. Þar var í raun sama sagan að segja nema hvað að annar mínus kom í ljós. UI (User Interface) sem er í Plex reynir meira á skjákortið í Macbook vélinni og því fór viftan í vélinni alltaf á fullt span við minnsta tilefni. Og þar sem við erum að tala um að hafa þessa vél í svefnherberginu til að sofna útfrá vídeó glápi þá er það STÓR mínus. Varðandi gagnagrunnin yfir efni á netinu hjá mér var sama sagan þar, hvergi hægt á auðveldan máta að finna það út og því gafst ég fljótlega á því að reyna.
Þá rakst ég á annan spilara sem nefnist Boxee. Hann er Open Source, rétt eins og hinir tveir, en annað en Plex er hann líka til fyrir Linux, að vísu bara Ubuntu 8.04 og 8.10, en engu að síður er það gott að sjá að verkefni stefni á fleirri en einn markað.
Allavega, UI í Boxee er afbragð! Hreinn unaður að vafra um þar og sjá hvað er í boði í spilaranum og fikta í hinu og þessu. Annað en bæði Plex og XBMC þá var ekkert mál að bæta við slóðum að möppum sem innihéldu efni til að búa til gagnagrunn úr og Boxee réðst hreinlega á það og gerði það um leið, ekkert rugl, ekkert kjaftæði. Bara óð í það og ég gat byrjað að skoða efnið mitt í fínum lista (sjá hér).
Eini mínusarnir sem ég get gefið Boxee sem stendur eru eftirfarandi:
- Forritið er enn í alpha útgáfu og því er eitthvað um bug’a í kerfinu.
- Þú þarft að fá invite eða sækja um aðgang í testara hóp til að geta sett inn forritið og fengið account í Boxee sjálfu.
- Viftan getur farið í gang meðan maður er að vafra efni en hættir fljótlega eftir að maður byrjar að spila vídeó
- Viftan hættir ekki ef maður er að spila hljóðskrár þar sem UI’ið er alltaf í gangi þá.
- Á það til að byrja að láta leiðinlega ef maður lendir á skrítnum codec’um eða illa encode’uðum vídeóskrám
Annað en þetta, þá er Boxee klárlega sigurvegarinn milli þessa þriggja forrita að mínu mati. Ég ætla að prófa að keyra inn Boxee á Ubuntu til að prófa það og ef það virkar fínt, þá held ég klárlega að ég sé búin að finna drauma spilarann til að hafa bæði á Macbook’inni minni og á þeirri media vél sem ég stefni á að setja í stofunni við fína 32″ LCD sjónvarpið okkar.
Ef þú ert með Mac vél eða ert að keyra Ubuntu 8.04/8.10.og langar að prófa Boxee skal ég glaður senda út invite, just ask =)

