Nýtt look..

Jæja, ég er enn eina ferðina búin að skipta um útlit á síðunni EEEEN ég ætla að hafa þetta þar til ég er búinn að malla mitt eigið útlit. Þannig að fólk getur andað rólega yfir því að ég ætla að halda mig við eitthvað ;)

Annars langar mig aðeins að ræða um mannin á neðanverðri mynd..

PáfinnSkv þessari frétt sem ég rakst á fyrr í dag á mbl.is, þá er verið að tala um að Upprisa Jesú sé ekki goðsögn heldur heilagur sannleikurinn. Það sem mig langar að vita, af hverju þarf kirkjan alltaf að einblína á svona hluti ?

Mitt mat á Guði, Jesú, biblíunni og öllu þessu trúardóti er í raun eftirfarandi..

Guð og Satan, Ying og Yang, Karma og allt slíkt er í raun í okkur, þetta er valið sem við höfum við hverjum möguleika sem okkar bíður í lífinu. Við getum kosið að gera eitthvað fyrir aðra eða fyrir okkur sjálf, við getum kosið að gera gott fyrir aðra eða slæmt fyrir aðra, við getum kosið að hugsa bara um okkur sjálf og gefa skítt í aðra. Þetta er basicly það sem ég vil meina að sé „rétt“, þeas. „mín trú“. Ég trúi ekki á einhvern almáttugan Guð sem trjónir yfir öllu og engu og fettar putta við að fikta í öllu og engu. Ég trúi heldur ekki á Satan sem á að vera að reyna að snúa okkur frá Guði og allt þetta dót.

Val til að trúa á eitthvað er undir hverjum og einum komið, við höfum rétt á því að trúa því sem við viljum sama hversu óraunhæft/ótrúlegt það er í augum annara sem ekki trúa á sama hlut. Ég hef ekkert á móti því að fólk trúi á Guð þó að ég geri það ekki, en ég vil þá fá að halda mínum skoðunum án þess að fólk sé að reyna að „upplýsa mig um sannleikann“. Ekki sérðu mig vera að tuða í fólki að „GUÐ ER EKKI TIL!“, „Þú ert heimsk(ur) að trúa á svona rugl!“, „Snúðu til betri vegar!“… Ég hef mína skoðun, en virði skoðun annara.

En í áframhaldi af þessari spurningu minni þarna uppi, hví einblínir kirkjan svona mikið á þetta. Málið er, biblían er í raun ekki sögubók. Ég vil meina að hún sé meira í áttina að „handbók mannvera“, hvernig á að lifa eðlilegu lífi í góðu með öðrum. Allar þessar sögur í biblíunni koma af góðum stað óháð hvað innihald þeirra er. Það er verið að fjalla um hvernig á að vera við aðra, hvernig þú átt að hegða þér, haga þér og annað eins. En að einblína á ein óraunverulegustu atriðin í biblíunni í stað þess að hugsa um raun innihald hennar, finnst mér stór mistök. Eins og stendur í fréttinni:

Hann sagði upprisu Krists eina af grunnstoðum sáttmála kristinna manna við Guð. Mikilvægt væri að allir kristnir menn viðurkenndu upprisuna sem raunverulegan, sögulegan atburð.

Af hverju er það svona mikilvægt? Er ekki mikilvægara að fara eftir því sem kennt er í biblíunni frekar en að trúa einhverju svona blint? Að mínu mati er þetta eins og að þér hafi verið kennt á bíl og sért komin með bílprófið, keyrt í tuttugu ár og allt í góðu með það, svo er þér skyndilega sagt að þú megir ekki keyra nema að þú trúir því að þú sért ekki á bíl heldur á snjóþotu.. It just messes with your mind man!

Ég er ekkert að setja út á nein trúarbrögð svona til að fyrirbyggja allan misskilning, ég er meira að efast um þá sem leiða trúarbrögð í heiminum. Kristin trú er sú útbreiddasta í heiminum en hún hefur jafnframt orðið það með valdi og kúgun í gegnum aldirnar. Þetta er frjáls heimur í dag og að það séu enn gamlir karlar í kuflum sem hugsa ekkert svo ólíkt þeim sem voru í svipuðum kuflum á myrku öldunum .. mér bara finnst það ekki eiga sér stað í heiminum í dag.

En yfir í önnur mál. Skólaganga!

Þeir sem lásu færsluna um daginn að ég stefndi á Keilir til að taka þar háskólabrúnna hjá þeim, svo fara í HÍ til að taka BSc í Tölvunarfræði.. þið verðir eflaust svekkt núna, það verður líklegast ekkert af þessu.

Vandamálið er að það gengur allt upp (weird right?), þrátt fyrir að ég sé á svarta lista Credit Info. Ég fæ lán hjá LÍN, fyrirframgreitt hjá Landsbankanum og inngöngu í báða skólana.. það er ekkert mál. Vandamálið sem slíkt er að til að fá greitt frá Landsbankanum og LÍN þarf ég 2 ábyrgðarmenn, þar af annan með fasteign. Og eins og staðan er í dag þá er mér hreinlega ekkert vel við að spyrja einn né neinn um slíkt. Þannig að ég verð eiginlega að blása þetta af ef mér tekst ekki hreinlega að safna pening í þetta sjálfur fyrir þessu.

Þetta er drullu leiðinlegt, þar sem ég veit að ég myndi fljúga í gegnum bæði Keili og HÍ, ná mér í góða gráðu og geta fengið loksins þá „virðingu“ og laun sem manni sem mér sæmir með þá reynslu, kunnáttu og getu á þessu sviði. En útaf stöðunni í landinu þá virðist vera að ég verði einn af fáum sem er hreinlega ekkert á leiðinni í skóla..

Ég er samt ekki búin að gefast endanlega upp, ætla að reyna að láta þetta verða að veruleika að fá BSc og svo í kjölfarið master mögulega, en eins og þetta lítur út núna, þá er ég ekkert sérstaklega vongóður.

Varðandi forritun á viðbótum fyrir WordPress (sem ég ræddi lauslega í síðastu færslu) þá er ég komin með nokkrar hugmyndir sem gætu gefið gott af sér og fólk gæti notað. Ég er samt að melta fyrir mér hvernig ég eigi að hafa skipulagið á þessu, hvort að ég bjóði upp á viðbætur á vefnum til að fólk geti nýtt sér á vefi sem eru hýstir hist og her eða hvort ég eigi að hafa þetta bara fyrir WordPress vefi sem hýstir eru hjá mér.

Þær viðbætur sem ég stefni allavega á að gera eru:

  • Vefverslun með stuðningi við Paypal og kortaþjónustur Korta ehf.
  • Viðbót við akismet spam filterinn sem sér um að eyða út því sem er 100% spam
  • Skráarumsjónarkerfi með niðurhali, flokkum, tengingu við verslun ofl.

Annars eru allar hugmyndir vel þegnar líka ;)

Þróun

Jæja, ég hef tekið ákvörðun sem ég hef melt frekar vel fyrir mér. Ég er alfarið hættur við áframhaldandi þróun á Scribe kerfunum sem ég hef talað töluvert um hér á síðunni. Þess í stað ætla ég að fara að forrita viðbætur (plug-in) fyrir WordPress og álíka kerfi.

Ég er búin að vera að kynna mér ágætlega það lestrarefni sem er á WordPress síðunni fyrir forritara og ég verð hreinlega að játa það að ég er ástfangin! Ég hef aldrei á ævinni séð jafn skipulag umhverfi og það sem höfundir WordPress hafa skapað þarna fyrir mann.

Eina vandamálið er, hvaða viðbætur get ég forritað fyrir kerfið ?

Fyrsta sem mér datt í hug er að forrita vefverslun, er hvort eðer nýbúin að forrita standalone vefverslun, tekur ekki mikin tíma að breyta í viðbót fyrir WordPress.

En mig langar að vita, hefur þú einhverjar hugmyndir um hverslags viðbætur ég gæti búið til fyrir kerfið ?
Hvað myndir þú sjálf/ur vilja nota á þinni síðu (ef þú ert með WordPress).