Monthly Archive for maí, 2009

Smá færsla

Jæja, þá eru 3 vinnudagar í sveitinni að baki, gengur bara prýðilega vel so far =)
Orðinn tvítóna sökum sólarinnar, að komast í form og skemmti mér konunglega =)

Frúin er á leiðinni með pjakkinn með sér og þau ætla að vera hérna um helgina, stelpan var í sveitinni þegar ég kom og fer svo bara með Kristínu og stráknum í bæinn aftur á sunnudaginn.

Í dag er búið að vera nánast logn allan dag og ca 19-24°C hiti, en andlitið datt næstum af mér núna áðan þegar mér var litið á hitamælirinn hérna á pallinum, þar er forsæla, engin vindur og bara sól, lítið á þessa mynd..

skraelhiti

No, your eyes are not lying! 45°C skaðræðis hiti! Ég verð dauður eftir sumarið eða ready fyrir hike í gegnum Sahara..!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Meira Rokk Takk!

Ég kynntist Amon Amarth fyrir ekkert svo löngu og ég er enn að fá gæsahúð yfir mörgum lögum eftir þá. Nú síðast þetta lag hér að neðan, Hermod’s ride to Hel (Loki’s treachery part 1). Læt textann fylgja með til að fólk geti lesið með.. Er ekki 100% á því að þetta sé réttur texti, en þetta er það sem ég heyri sjálfur. Þeas. þetta er texti sem ég skrifaði eftir að hafa hlustað á lagið ;)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ride, Sleipnir!
Ride for all you’re worth
Faster than lightning
To the dark realms of the world.

Through valley’s of darkness
On our way to Nifelheim
To the halls of Hel
Where my brother awaits

Wailing Voices on the wind
Urging me to turn
Distant tortured screams
Cold blue fires burn

I hear the sound of river Gjöll
Running cold and deep
Its golden bridge shines in the dark
The bridge Modgud keeps

Over the bridge, on through the night
Hel is getting near
There are the gates towering high
Afflicting me with fear

In her hall, at the honoured seat
My brother sits in pain
Pale and tortured Baldr greats
Bound by invisible frozen chains

I am bound to bring him back with me
The whole world mourns his death
Please set Baldr free
Give him back his breath!

If it’s true, what you say to me
That the whole world mourns his death
If the whole world will weep
I will give him back his breath.

Sem íslending, þá finnst mér við verða að virða og muna hvaðan við komum, við komum af víkingum og þær sögur sem Amon Amarth segja í textum sínum eru hetjusögur að mínu mati. Alveg merkilegt hvað þetta snertir við manni ef maður hlustar á textann og finnur tilfinninguna sem tónlistin sjálf skilar.

Svo að öðru alveg ótengdu, þá langar mig að rifja upp fyrir fólki eina Drum’n Bass hljómsveit sem ber nafnið Noisia, þeir hafa verið duglegir að remix’a lög eftir aðra, en hafa einnig gert þó nokkur lög sjálfir. Hér eru tvö lög í vídeó formi með þeim.

Noisia – Block Control

Get the Flash Player to see this content.

Noisia – End Game
Get the Flash Player to see this content.

Svo er það að frétta af mér að ég er að fara núna á þriðjudaginn út á land til að vinna! Fékk tímabundna vinnu í 3-4 mánuði við allt og ekkert úti við (og inni?) á golfvellinum á Flúðum. Verð í fríi aðra hverja helgi, þannig að það er strembinn tími framundan, vera án konunnar og barnanna í þetta langan tíma .. Við eigum eflaust eftir að nota iChat óspart, tek með mér MacBook’ina uppeftir en frúin notar iMac’an hérna heima. Samt.. þetta verður erfitt.

Góða við þetta er að tekjurnar aukast inn á heimilið, sem er blússandi plús eins og tímarnir eru nýverið á landinu =P Fínt að fá meiri aur til að saxa á halann sem er komin á eftir manni =P

Læt þetta nægja í bili, ætla að fara í það að græja dót til að taka með mér upp eftir.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Húmor

Hreinlega verð að leyfa ykkur að sjá eitt rugl sem ég rakst á þegar ég var að skoða aðeins Youtube áðan.. I LOL’ed!

Get the Flash Player to see this content.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Framhald..

Bara til að fyrirbyggja misskilning og róa fólk niður (og vonandi minnka spurninga flóðið) þá vildi ég koma því á framfæri að það sem við Kristín erum að ganga í gegnum hefur ekkert með sambandið okkar að gera. Við erum ekki að skilja né neitt slíkt.

Margir hafa haft samband bæði á netinu og í gegnum síma og vil ég þakka þeim öllum fyrir, ég veit að þetta er allt voða óljóst sem við látum útúr okkur, en við munum láta vita hvað er í gangi þegar að því kemur. Ég vona bara að þið skiljið og virðið það =)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr