Long time no write

Jæja, ég er búinn að vera í sveitinni núna í töluverðan tíma. Gengur allt vel hér þrátt fyrir smá “slys”, ég tognaði í bakinu sl. þriðjudag.. Voða gaman eða hitt þó heldur =(
Kristín og krakkarnir eru hérna þar sem þetta átti að vera vinnuhelgi hjá mér, en læknirinn vill að ég slaki algerlega á í allavega viku.. ekki alveg sáttur við það =/ Kom ekki hingað upp eftir til að slaka á, þannig að, til að nýta tíman þá er ég að forrita fyrir þau stimpilklukku, ákvað að hafa hana soldið dökka þannig að hún væri ekki að brenna skjáinn hjá þeim. Getið séð skjáskot af henni hér að neðan.

stimpill.0.1a

Annars er Wordpress komið í 2.8 sem þýðir að ég er byrjaður á nýrri þýðingu, skelli henni hérna á vefinn um leið og ég er búinn með hana. Verst bara að ég er ekki með lappa með mér þar sem það er soldið pain að sitja í eldhússtól fyrir framan iMac’an og þýða, forrita ofl. En þetta kemur allt!

Annað varðandi Wordpress, þá er fyrsta viðbótin mín að verða tilbúin =D Gengið dásamlega að forrita hana í þeim litla tíma sem ég hef haft lausan. Svo er ég LOKSINS að fara að koma mér í það að gera þemur fyrir Wordpress, er með allavega 4 kúnna sem væri leikandi hægt að færa yfir í Wordpress úr þeim kerfum sem þau eru í núna. Sem ég stefni reyndar á innan 2 mánaða!

Svo er það annars að frétta á persónulegum nótum að þær slæmu fréttir sem ég hef verið að tala um hér á síðunni í undanförnum póstum eru þær að Kristín hefur verið greind með MS. Ég hef svossum ekkert mikið um það að segja hér á síðunni sem stendur, en maður er enn í nettu sjokki og óviss með hvernig allt mun ganga. Skelfilegt að fá svona blauta tusku í andlitið, áttum engan vegin von á þessu. Kristín kom reyndar með nokkuð góða færslu á síðunni sinni sem ég mæli eiginlega að þeir sem þekkja okkur lesi, gefur meiri innsýn í hvernig þetta er og hvað er í gangi.

Það sem samt allra verst við þetta er að ég er svo langt í burtu og svo lengi í senn að ég get ekki stutt hana almennilega í gegnum þessa fyrstu mánuði =/ That bothers me =(

En já, ætla að skella mér í þýðinguna á Wordpress 2.8!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

6 Responses to “Long time no write”


  • Veistu ástin mín, þó að þessu fyrstu mánuðir verði erfiðir uppá að læra um sjúkdóminn og allt sem honum getur fylgt, að þá ertu mér mikill stuðningur með öllum símtölunum til mín og eins um helgarnar þegar við hittumst. Þannig að þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur yfir að þú sért ekki til staðar, því þú ert til staðar þó að þú sért ekki hérna hjá mér á hverjum degi =)

  • Það er samt engan vegin það sama og að vera hjá þér á hverjum degi, getað tekið utan um þig og knúsað þegar þú þarft á því að halda. Bera hluti svo þú verðir ekki eins þreytt, bera börnin í rúmið sitt (því þau sofna alltof oft í okkar)..

    Mér líður asnalega að vera hérna uppfrá á meðan þessi fyrsti tími er að ganga sitt skeið =/ can’t help feeling like this =(

  • Ég fæ bara knúsin margfalt þegar við hittumst, ég knúsa líka óspart “lyktina” þegar ég þarf á að halda, það gerir mikið, en samt ekki jafn mikið og alvöru knús frá þér =)

  • Kristín Ásta vinkona

    Þetta eru slæmar fréttir af nöfnu minni. Ég óska ykkur góðs gengis í baráttunni við þennan sjúkdóm.

Leave a Reply