Monthly Archive for júlí, 2009

Spurning um smá blogg?!

Jæja.. ég er enn í sveitinni og hef gott af því, allur að koma til í líkama og sál! GUÐ hvað það er gott að vera í útivinnu eftir þetta mörg ár í innipúkarugli! Ég er farinn að geta hlaupið upp MJÖG brattar brekkur án þess svo mikið sem að byrja að anda hraðar, sem sýndi sig og sannaði í gær þegar ég og Kristín tókum fyrri 9 holurnar hérna á Selsvelli (golfvöllurinn á Flúðum). Hljóp upp eins og ekkert væri á níundu, sem er töluvert brött. Golfbíllinn varla hefur þetta venjulega, maður þarf að velja sér vel leiðina upp til að bíllinn drífi.

Annars voru tvö sæmilega stór “slys” hér núna áðan. Börnin voru á trampólíni í garðinum hérna fyrir ofan, svo heyrist bara skelfilegt vein og grátur. Þá hafði strákurinn skollið aftan á hnakkann á öðru barni með munninn og sprengdi efri vörina á sér að innanvörðu. Fossblæddi bæði úr munni og nefi, tók smá stund að róa hann niður og svolleiðis. Á endanum sat hann bara með blautan þvottapoka og stokkbólgna efri vör.

Ég fór sjálfur ekki uppeftir þegar þetta gerðist, Kristín skokkaði uppeftir og var að athuga með gráturinn sem okkur fannst við heyra. Svo þegar hún var komin til baka og segja mér frá þessu ákveð ég að kíkja uppeftir og skoða hann sjálfur, hann var bara hinn hressasti og hafði voða gaman af þessu öllu, fór aftur á trampólínið. Svo meðan ég var þarna að spjalla við Halldóru (býr í þessu húsi sem börnin voru við) um þetta, þá heyrist þvílíkt vein. Ég lít við og sé þá að strákurinn er farinn að gráta aftur og heldur um ennið á sér. Svo þegar hann er kominn í fangið á mér sé ég þessa *hrottalegu* kúlu á enninu. Ég hef séð minn skerf af kúlum, bæði á mér sjálfum, börnunum og öðru fólki/börnum. En aldrei á ævinni hef ég séð svona monster!

Þau eru bæði komin inn núna, allir farnir af svæðinu hvort eðer, þannig að það er spurning um að fara að leyfa td. stráknum að horfa á Top Gear eða eitthvað álíka sem hann elskar. Eigum okkur alltaf góða stundir að horfa tveir saman á Top Gear í hverri viku þegar þeir eru sýndir úti.

Annars er það að frétta af mér sjálfum að ég er að fara semi-reglulega í golf núna, finn vel hvernig ég er að liðkast enn meira til og útiveran er nú ekki slæm heldur! Er líka allur að skána í golfinu sjálfu ;) hef nú ekkert hátt um síðustu tölur úr þessum 9 holu hring okkar Kristínar, en við vorum bara með eins höggs mun á milli okkar eftir þessar 9 holur. Þannig að, annað hvort var Kristín skelfileg þessar 9 holur, eða ég svona góður.. you debate which is more likely ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

freshcp

freshcp-logo_190x120Ákvað að ræsa verkefni sem ég er búinn að vera með í mallanum í soldinn tíma. Nafnið er komið, einnig útlit, er byrjaður að undirbúa forritunina. Freshcp heitir það og stendur fyrir fresh control panel. Þetta er semsagt vefviðmót til að bjóða kúnnum í hýsingu að vinna í öllu og engu sem við kemur sínum hýsingarpakka!

Hér að neðan má svo sá skjáskot af síðunni sem ég mallaði til að birta upplýsingar um kerfið. Þess má geta að kerfið verður bæði á íslensku og ensku, svo jafnvel einhverjum fleirri tungumálum ef ég finn einhverja sem eru til í að aðstoða við að þýða ;)

freshcp - server control panel (20090717)

Ég reyndi að hafa síðuna soldið einfalda og sæta, er í sömu litum og kerfið verður sjálft í. Hvað finnst ykkur ?


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Mac vesen

Jæja.. þá er fyrsta Mac bilunin búin að banka á dyrnar hjá mér.. Hélt ég myndi fá lengri frest en þetta þar til eitthvað klikkaði í fína iMac’anum okkar..

Diskurinn er farinn, allavega spinnar hann sér aftur og aftur upp, en kerfið ræsir sig ekki.. Sit hérna í MacBook’inni og stari á skjáinn á iMac’inum, ekkert gerist.. byrjar að boota af ný uppsettu kerfi, Apple logo’ið birtist og loading hringurinn.. Svo fade’ar það út, músin birtist og bakgrunnurinn verður aðeins dekkri grár, en eftir það.. NADA!

Hringdi í Apple IMC áðan og lýsti vandanum fyrir kauða á verkstæðinu, hann var sammála mér með að þetta væri diskurinn og sagði mér að renna bara með vélina til þeirra.

En þá kemur hið “óvænta”.. Hvað haldiði að þeir gefi upp sem tíma fyrir þessa viðgerð? 10-16 VIRKA daga !

Ég er hreinlega í sjokki eftir að hafa heyrt þetta, það er ekki eins og það þurfi að smíða nýjan disk í vélina!
Þetta er klárlega það sem er verst við að eiga Mac vél, seinagangur í viðgerðum ef þær koma upp á annað borð.

Don’t get me wrong, ég ELSKA bæði iMac’inn og MacBook’ina… en bara af því að viðgerðir taka þetta langan tíma, þá er maður soldið hræddur við að eiga vél sem maður missir kannski frá sér í tæpan mánuð eða meira ef það þarf að gera við hana! Ansi hræddur um að verkstæði sem eru með PC vélar taka ekki svona mikinn tíma í viðgerðir..

Ég myndi nú græja þetta sjálfur, ef þetta væri ekki svona compact allt, var að skoða bæklinga á vefnum hjá Apple í dag og ákvað að þetta yrði að fara í gegnum ábyrgðina.. Er ekki að fara að rífa vélina í sundur sjálfur og bjóða hættunni heim að brjóta/skemma eitthvað með “frumstæðum” verkfærum, hehehe..

En já, ég er tognaður í bakinu AFTUR! En að vísu á öðrum stað núna, var fyrir miðju baki þarna um daginn, en nú er það mjóhryggurinn.. óttarlega gaman að vera dópaður af Forte + einhverjum bólgueyðandi töflum.

En já, spurning um að fara að gera eitthvað með viti.. forrita eða eitthvað!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr