Jæja.. þá er fyrsta Mac bilunin búin að banka á dyrnar hjá mér.. Hélt ég myndi fá lengri frest en þetta þar til eitthvað klikkaði í fína iMac’anum okkar..
Diskurinn er farinn, allavega spinnar hann sér aftur og aftur upp, en kerfið ræsir sig ekki.. Sit hérna í MacBook’inni og stari á skjáinn á iMac’inum, ekkert gerist.. byrjar að boota af ný uppsettu kerfi, Apple logo’ið birtist og loading hringurinn.. Svo fade’ar það út, músin birtist og bakgrunnurinn verður aðeins dekkri grár, en eftir það.. NADA!
Hringdi í Apple IMC áðan og lýsti vandanum fyrir kauða á verkstæðinu, hann var sammála mér með að þetta væri diskurinn og sagði mér að renna bara með vélina til þeirra.
En þá kemur hið „óvænta“.. Hvað haldiði að þeir gefi upp sem tíma fyrir þessa viðgerð? 10-16 VIRKA daga !
Ég er hreinlega í sjokki eftir að hafa heyrt þetta, það er ekki eins og það þurfi að smíða nýjan disk í vélina!
Þetta er klárlega það sem er verst við að eiga Mac vél, seinagangur í viðgerðum ef þær koma upp á annað borð.
Don’t get me wrong, ég ELSKA bæði iMac’inn og MacBook’ina… en bara af því að viðgerðir taka þetta langan tíma, þá er maður soldið hræddur við að eiga vél sem maður missir kannski frá sér í tæpan mánuð eða meira ef það þarf að gera við hana! Ansi hræddur um að verkstæði sem eru með PC vélar taka ekki svona mikinn tíma í viðgerðir..
Ég myndi nú græja þetta sjálfur, ef þetta væri ekki svona compact allt, var að skoða bæklinga á vefnum hjá Apple í dag og ákvað að þetta yrði að fara í gegnum ábyrgðina.. Er ekki að fara að rífa vélina í sundur sjálfur og bjóða hættunni heim að brjóta/skemma eitthvað með „frumstæðum“ verkfærum, hehehe..
En já, ég er tognaður í bakinu AFTUR! En að vísu á öðrum stað núna, var fyrir miðju baki þarna um daginn, en nú er það mjóhryggurinn.. óttarlega gaman að vera dópaður af Forte + einhverjum bólgueyðandi töflum.
En já, spurning um að fara að gera eitthvað með viti.. forrita eða eitthvað!