Spurning um smá blogg?!

Jæja.. ég er enn í sveitinni og hef gott af því, allur að koma til í líkama og sál! GUÐ hvað það er gott að vera í útivinnu eftir þetta mörg ár í innipúkarugli! Ég er farinn að geta hlaupið upp MJÖG brattar brekkur án þess svo mikið sem að byrja að anda hraðar, sem sýndi sig og sannaði í gær þegar ég og Kristín tókum fyrri 9 holurnar hérna á Selsvelli (golfvöllurinn á Flúðum). Hljóp upp eins og ekkert væri á níundu, sem er töluvert brött. Golfbíllinn varla hefur þetta venjulega, maður þarf að velja sér vel leiðina upp til að bíllinn drífi.

Annars voru tvö sæmilega stór „slys“ hér núna áðan. Börnin voru á trampólíni í garðinum hérna fyrir ofan, svo heyrist bara skelfilegt vein og grátur. Þá hafði strákurinn skollið aftan á hnakkann á öðru barni með munninn og sprengdi efri vörina á sér að innanvörðu. Fossblæddi bæði úr munni og nefi, tók smá stund að róa hann niður og svolleiðis. Á endanum sat hann bara með blautan þvottapoka og stokkbólgna efri vör.

Ég fór sjálfur ekki uppeftir þegar þetta gerðist, Kristín skokkaði uppeftir og var að athuga með gráturinn sem okkur fannst við heyra. Svo þegar hún var komin til baka og segja mér frá þessu ákveð ég að kíkja uppeftir og skoða hann sjálfur, hann var bara hinn hressasti og hafði voða gaman af þessu öllu, fór aftur á trampólínið. Svo meðan ég var þarna að spjalla við Halldóru (býr í þessu húsi sem börnin voru við) um þetta, þá heyrist þvílíkt vein. Ég lít við og sé þá að strákurinn er farinn að gráta aftur og heldur um ennið á sér. Svo þegar hann er kominn í fangið á mér sé ég þessa *hrottalegu* kúlu á enninu. Ég hef séð minn skerf af kúlum, bæði á mér sjálfum, börnunum og öðru fólki/börnum. En aldrei á ævinni hef ég séð svona monster!

Þau eru bæði komin inn núna, allir farnir af svæðinu hvort eðer, þannig að það er spurning um að fara að leyfa td. stráknum að horfa á Top Gear eða eitthvað álíka sem hann elskar. Eigum okkur alltaf góða stundir að horfa tveir saman á Top Gear í hverri viku þegar þeir eru sýndir úti.

Annars er það að frétta af mér sjálfum að ég er að fara semi-reglulega í golf núna, finn vel hvernig ég er að liðkast enn meira til og útiveran er nú ekki slæm heldur! Er líka allur að skána í golfinu sjálfu ;) hef nú ekkert hátt um síðustu tölur úr þessum 9 holu hring okkar Kristínar, en við vorum bara með eins höggs mun á milli okkar eftir þessar 9 holur. Þannig að, annað hvort var Kristín skelfileg þessar 9 holur, eða ég svona góður.. you debate which is more likely ;D

One thought on “Spurning um smá blogg?!

  1. Hef enga trú á öðru en að mér hafi gengið svona skelfilega ;D En þú átt líka hrós skilið hvað þér fer mikið fram með hverju skiptinu.

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>