Monthly Archive for september, 2009

Hver fer að koma?

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

xmas_penguin


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Dugnaður í fólki

Ég var frekar duglegur í dag, bakaði bæði pönnukökur fyrir mig og strákinn í morgunmat og svo stóra tveggja hæða súkkulaðiköku(/tertu?) sem var tilbúin þegar frúin kom heim með stelpuna með sér upp úr fimm. Dúllaði mér meirað segja við að skreyta hana vel með súkkulaði spæni ofl.

Annars finnst mér ég verða að benda á eina æðislega tónlistarkonu sem ég hef fylgst með í soldinn tíma á Youtube. Little Boots kallar hún sig og á Youtube má finna helling af vídeó’um með henni þar sem hún er að taka cover af lögum eftir aðra ásamt því að frumflytja sín eigin frumsömdu lög. Allavega, hún gerði núna um daginn myndband við nýtt lag eftir sig sem heitir Remedy, ég verða hreinlega að segja að maður er ekkert smá proud af henni fyrir að ná þetta langt. Sá reyndar í einhverjum trailer fyrir mynd sem er í sýningu hér á landi núna að hún er með eitt eða fleirri lög í þeirri mynd. Hér að neðan er svo þetta umrædda myndband, langar að vita hvað fólki finnst um þetta =)

Get the Flash Player to see this content.

Svona til að koma henni enn frekar á framfæri þá er hér hlekkur á annað lag með henni auk þess að gefa upp url á prófílsíðuna hennar á Youtube. 


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Þjónusta?

Fór með fartölvu og harðann disk frá mér á ónefnt tölvuverkstæði hérna í bænum núna fyrir að verða þremur vikum.

Tölvan var búin að láta leiðinlega í soldinn tíma, ég var búin að debug’a eins og ég gat, fann td. út að annar minniskubbururinn virkaði illa, en hvort það væri útaf sjálfum kubbnum eða hvort það væri einhver leiðinleg villa á móðurborðinu eða öðrum pörtum vissi ég ekki og ég tók þetta fram við þann sem tók á móti vélinni á verkstæðinu, tók einnig fram að ég vildi ekki að neitt yrði gert við hana, bara greina hvað vandamálið væri við hana til að fá verðhugmynd um hvað kostaði að gera við hana.

harddriveVarðandi diskinn þá erum við að tala um 750GB SATA2 diskur sem ég hef verið með í flakkara hérna, JBOD flakkaraboxi og hef verið með annan eins með honum. Semsagt 1.5TB flakkarabox (dekkar 2 diska). Báðir diskarnir nákvæmlega eins, verslaðir saman í sömu versluninni, á sömu nótu. Og það sem gerðist var það að diskurinn fór að vera leiðinlegur, gekk hægt að sækja gögn af honum ef eitthvað, þannig að ég drap á flakkaranum eitt kvöldið, daginn eftir þá spinnaði sá diskur sér ekki upp. Hann reyndi þó ítrekað að spinna sig upp, það heyrðist, en eftir þriðja fail’ið þá bara hætti hann. Hann reyndi að vísu alltaf að ræsa sig þrívegis áður en hann gafst upp, í hvert skipti sem maður kveikti á flakkaranum. Ég testaði að aftengja hinn diskinn, víxla um socket í flakkaranum, tengja beint inn í aðra(r) vél(ar), ekkert virkaði.

Svo núna fyrr í dag fékk ég símtal frá þessu tiltekna fyrirtæki þar sem talað var við mig fyrst um tölvuna, þeir voru búnir að fara yfir hana, rykhreinsuðu hana og enda niðurstaðan var sú að rykið var að valda of mikilli hitauppbyggingu í vélinni sem olli því að hún fraus eða drap á sér. Svo kom í ljós sama og ég hafði greint, að annar minniskubburinn væri ónýtur. Þannig að þrátt fyrir að ég hafi tekið það skýrt fram þegar ég lagði vélina inn að ég vildi ekki láta gera við neitt né bæta neinu við eðlilega skoðunargjaldið, þá var henni hent í rykhreinsun án þess að haft væri samband við mann. Soldið skítt.

Svo með harða diskinn, þá segjast þeir hafa náð að testa hann tvívegis og ekkert verið að honum. Það getur hreinlega ekki verið þar sem hann vildi EKKI virka hjá mér sama hvað ég reyndi, samt virkar HINN diskurinn fínt á öllu stöðum sem ég testaði þann bilaða. Hann sagði meirað segja að þeir hafi lesið og skrifað gögn af disknum. Þannig að nú sit ég uppi með það að þurfa borga skoðunargjald á bilaðann disk sem þeir segja að sé ekki bilaður til að fá hann í hendurnar, en ég get LOFAÐ sjálfum mér því að eitt af tvennu gerist þegar ég er kominn með hann í hendurnar..

1. Hann virkar ekki hérna heima
2. Hann virkar, en hættir að virka innan sólarhrings.

Ég gaf nákvæma lýsingu á því hvernig aðstæður, notkun og allt slíkt var þegar þetta gerist, en þeir prófa hann kaldan, eftir 2-3 vikna biðtíma uppí hillu.. Hvernig er hægt að segja að vara sé ekki biluð þegar það er ekki reynt að herma eftir þeim skilyrðum sem fylgja bilanarlýsingunni??

Þessir diskar eru basicly í gangi hjá mér 24/7.. Flakkarinn er alltaf í gangi, vifta í gangi sem blæs á þá (innbyggð í flakkaranum) sem þýðir að þeir eru heitari en diskur sem er búinn að sitja í hillu í 2-3 vikur ekki satt?

Ég kvartaði við hann að mér þætti þetta soldið skrítið að hann ætli bæði að rukka mig 2000 kr meira en um var talað í byrjun og í þokkabót ekki sannreyna prófunina á disknum. Diskurinn er ekki orðin tveggja ára gamall og því enn undir vernd 2ja ára ábyrgðar, sem mér finnst nokkurn vegin verið að sniðganga hér.. Þessi vara ER gölluð þar sem hún dugar ekki í lengri tíma en þetta og ég á RÉTT á því að fá henni skipt fyrir annað nýtt eintak skv skilmálum ábyrgðarinnar.. En ég fæ það ekki sökum þess að verkstæðið neitar að tækið sé gallað..!

Ég veit vel að það er kreppa og það að fyrirtækið væri að borga með disknum ef þeir myndu láta mig hafa nýjan disk í stað þessa bilaða.. en það þýðir ekki að það megi sniðganga skilmálana með þessa vöru hvað þá að sniðganga minn rétt sem neytandi á þennan máta.. Finnst fólki þetta eðlilegt?

Honum til varnar þá játaði hann það undir lok símtalsins að ég hafi jú óskað sérstaklega eftir því að fá bara skoðun á vélina til að dæma hvort það væri þess virði að gera við það sem væri að henni og féllst á það að fella niður 2000 kr viðbótargjaldinu ofan á skoðunargjaldið. En þetta með diskinn er að gera mig brjálaðann..! 

Segið mér nú, hef ég rétt fyrir mér eða ekki? Ætti ég ekki að vera í rétti þarna ?


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Snjór snjór snjór

snow leopard

Yes.. I has Snow Leopard! Er að dást að honum og fara yfir allt og ekkert sem er nýtt. Verð að játa það að ég sé ekki þessa þvílíku hraðaaukningu sem fólk er að tala um, ég sé að sjálfsögðu mun, en ekkert í líkingu við það sem fólk er að tala um hjá sér.

Lenti að vísu í því áðan að vélin fraus, en ég tel það sé vegna of gamals forrits sem ég var að nota, eflaust ekki SL compatible..

Annars er ég að melta hvað ég eigi að einbeita mér að varðandi það sem ég hef verið að gera hingað til sjálfur og ég hef nokkra valmöguleika, þám:

  • WordPress þemugerð
  • WordPress forritun (viðbætur og slíkt)
  • Almenn forritun
  • Almenn útlitsgerð

Ef einhver lesandi hérna er með aðra hugmynd en ég hef listað hér að ofan, þá væru öll komment vel þegin varðandi þessa pælingu, ef mér dettur meira í hug sjálfur gæti vel verið að ég breyti færslunni, who knows..


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Smádót

Ákvað að henda hingað inn fyrir þá sem nota Mac, tveimur Widget’um sem ég fann þegar ég var að blaða í gegnum maclanti spjallborðið. Annarsvegar er það Gengjan sem er tól til að birta gengið á nokkrum gjaldmiðlum, svo er það Kórónan sem er umreiknir til að reikna úr/í íslenskar krónur úr öðrum gjaldmiðlum.

Hér að neðan má sjá mynd af gripunum.

Picture 1


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr