Ég var frekar duglegur í dag, bakaði bæði pönnukökur fyrir mig og strákinn í morgunmat og svo stóra tveggja hæða súkkulaðiköku(/tertu?) sem var tilbúin þegar frúin kom heim með stelpuna með sér upp úr fimm. Dúllaði mér meirað segja við að skreyta hana vel með súkkulaði spæni ofl.
Annars finnst mér ég verða að benda á eina æðislega tónlistarkonu sem ég hef fylgst með í soldinn tíma á Youtube. Little Boots kallar hún sig og á Youtube má finna helling af vídeó’um með henni þar sem hún er að taka cover af lögum eftir aðra ásamt því að frumflytja sín eigin frumsömdu lög. Allavega, hún gerði núna um daginn myndband við nýtt lag eftir sig sem heitir Remedy, ég verða hreinlega að segja að maður er ekkert smá proud af henni fyrir að ná þetta langt. Sá reyndar í einhverjum trailer fyrir mynd sem er í sýningu hér á landi núna að hún er með eitt eða fleirri lög í þeirri mynd. Hér að neðan er svo þetta umrædda myndband, langar að vita hvað fólki finnst um þetta =)
Svona til að koma henni enn frekar á framfæri þá er hér hlekkur á annað lag með henni auk þess að gefa upp url á prófílsíðuna hennar á Youtube.