Skellti gamla útlitinu aftur inn þar til ég næ áttum og verð kominn með útlit sem ég er nægilega sáttur við sjálfur =P
Ætla annars að einbeita mér að þemum og viðbótum fyrir WordPress áfram, en þá aðallega fyrir aðra en sjálfan mig ;)
Monthly Archives: september 2009
Íslenskar útvarpssrásir í iTunes!
Var að blaða í gegnum Maclantic spjallborðið núna rétt áðan og rakst á þennan snilldarlega þráð þar um hvernig KarlG væri búinn að koma flestum íslensku netvörpunum fyrir í xml skjali sem iTunes les sem podCast, en er þó í rauninni að stream’a vefvarpinu frá viðkomandi útvarpsstöð.
Ég vil taka það fram að KarlG á allan heiðurinn skilið fyrir þetta, þetta er ekkert tengt mér, ég er einungis að dreifa boðskapnum ;)
Þetta er í raun 4 þrepa aðgerð og er sem hér segir:
1. Ef þú ert á Mac vél þarftu að setja inn Flip4Mac frá Microsoft
2. Smella svo á þennan hlekk og láta iTunes opna, við það stofnast nýtt podCast í iTunes sem ber nafnið „Útvarpið“ (sjá myndir 1 og 2).
3. Tvísmella á „Útvarpið“ og smella síðan á „Get All“ hnappinn sem birtist efst á skjánnum (sjá mynd 3).
4. Tvísmella á viðeigandi stöð og njóta útvarpsins!
Flóknara er það ekki =D Ætla að vona að margir nýti sér þetta og þeir Mac notendur sem lesa bloggið mitt en eru ekki skráðir meðlimir á Maclantic, þá hef ég bara eitt að segja: Skráðu þig! Marg borgar sig ;)
Jæja..
Ég hef loksins, LOKSINS! Fundið útlit sem ég er nægilega sáttur við fyrir sjálfan mig! Hef sitið hérna heima undanfarna 3 daga veikur með hita að reyna að teikna hitt og þetta upp.. endaði með 9 útlit sem eru góð, verulega góð, en ekki beint.. fyrir mig. Svo núna áðan datt ég inn á það, er að malla þetta í Fireworks as we speak og svo er aldrei að vita nema að þetta nýja look verði gert að WordPress þemu á eftir ;D
Keep your fingers crossed ! =D
Lítil hús
Jæja.. it’s settled ! Ég er að pæla í að fá mér svona í því landi sem ég kem til með að fara til ef enga vinnu er að fá hér á landi núna í haust!
Alger SNILLD!
Öfund..
Já, ég er ekki frá því að ég sé töluvert öfundsjúkur útí flest alla sem ég þekki í dag =P Ég lít á facebook og ég lít á twitter og þar er endalaust magn af skilaboðum og tilkynningum varðandi nám, kennslu og almennt það að læra =/
Ef ég væri ekki á svarta listanum, þá væri ég núna byrjaður í Keili eða HÍ sjálfur..
Svo til að bæta svörtu ofan á grátt þá var stelpan mín að byrja í skóla í síðustu viku, alveg flashback dauðans sem ég fékk þegar við fylgdum henni inn í stofuna til að mæta í fyrsta tímann sinn.. Shit hvað mig langar mikið í skóla og klára að mennta mig!
Annars er það ekki það eina, mér finnst ég ekki hafa áorkað neinu með viti fyrir utan fjölskylduna sem ég á, er að verða þrítugur núna eftir rétt rúma þrjá mánuði.. en hef ekkert til að sýna fyrir það =/
Ég er þó búinn að taka ákvörðun, veturinn fer í það að mennta mig á annan máta en allir hinir eru að, ég ætla að steypa mér í forritun, myndvinnslu og annað eins meðan ég hef ekki vinnu. Mikið betra að gera það en að hanga bara sitjandi og gera ekki neitt =P
Sem stendur er ég að vinna í tveimur verkefnum í tengslum við forritun, annað fyrir mig og svo stimpilklukkuna „Stimpill“ sem ég hef verið að fínpússa í sumar. dip.is verður heimili verkefnisins sem ég er að fyrir sjálfan mig annars og þeir vinir og kunningjar sem ég treysti vel fyrir að gefi góð og ósparsöm gagnrýni fá fljótlega invite á þann vef ;) En hann verður bara opin fyrir þá sem fá invite, það er allavega planið ;)
En hvað það er .. það verður bara að koma í ljós =) Hef ekki hugmynd hvort þessi vefur verður eitthvað notaður að ráði, en þessi hugmynd er ekkert ný.. Hún er bara betur útfærð hjá mér en á öðrum sambærilegum vefum! Og planið var að hafa vefinn alveg auglýsingafrían!
Annars er ég alveg að mygla hérna í sveitinni. Don’t get me wrong, er feginn að ég er með vinnu í rúmar 2 vikur til viðbótar, því það þýðir að ég er því mun lengur með hærri laun en bæturnar eru .. en vá hvað mig er farið að langa heim til mín. Sofa í mínu rúmi með minni eiginkonu, vakna með börnin í fanginu.. Mig langar að geta svæft börnin á kvöldin, lesa fyrir þau sögur og slíkt, hjálpa krökkunum að aðlagast því að vera komin á nýjan leikskóla (strákurinn) og í grunnskóla (stelpan).. Það er svo margt sem mig langar að gera í bænum.. mig langar svoooooo að þurfa ekki að sofna einn á hverju kvöldi, vakna alltaf einn, engin annar í húsinu vakandi þegar ég fer á fætur á morgnanna.. *andvarp*
Jæja.. ætli það sé ekki fínt að ljúka þessari færslu á léttum nótum! Ég er búinn að vera reyklaus í 19 daga núna! Var að enda við að gleypa síðustu töfluna í fyrri skammtinum af Champix =D gg Axel!