Stimpill!

Jæja, ég ætla mér í dag að reyna að endurhanna Stimpil til að geta náð honum í útgáfu 1.0. Sit hérna með blöð í höndunum yfir óskir og ábendingar frá þeim sem hafa notað þetta kerfi mitt sl. sumar og ætla mér svo að klára allt sem á þeim listum! Og HANA NÚ!

Hundleiðist að sitja bara hérna heima að vafra netið og hanga á þessum ógeðslega vef facebook! Wish me luck með að ná að teikna upp nýtt útlit =P

On a different note.. mig fer að vanta meira diskapláss sýnist mér skv. þessari mynd =P

Íslenskun á WordPress

Ég er byrjaður að breyta aðeins uppbyggingunni á síðunnu hjá mér, þeir sem eru fastagestir hafa tekið eftir því að WordPress undirsíðan hjá mér er farin út, hún kemur aftur en ég er aðeins að vinna í henni.

Búinn að ákveða að taka þýðinguna algerlega í gegn. Þessi þýðing sem ég var/er með (2.8) er frekar döpur og vegna þess að ég vil ekki skilja eitthvað svoleiðis eftir á glámbekk kaus ég að taka síðuna offline meðan ég væri að vinna í henni ;) Ný 2.8.5 þýðing verður í boði fljótlega en hvenær nákvæmlega ræst af því hversu vel og hratt það gengur að malla þetta!

Ef einhverjum langar að bjóða sig fram við að aðstoða við þetta, þá er þeim bent á mótsvörin við þessari færslu ;)

Ég er annars mikið búinn að pæla í að forrita po editor á netinu, þar sem þau kerfi sem ég veit um eru of bloated og/eða verða að vera hýst annars staðar. Mig langar í kerfi sem ég get sjálfur hostað, dekkar það að uppfæra á auðveldan máta eldri þýðingar úr nýrri .pot skjölum og slíkt =P Finnst POedit (editorinn sem ég hef notað) vera alltof aumingjalegur og bjóða hreint ekki upp á neitt af svona advanced möguleikum sem ættu að vera.. Við það eitt að uppfæra .po með nýrra .pot, þá fer allt í rúst, þýðingar hoppa milli lína og jafnvel heilla blaðsíðna, hundleiðinlegt hreint út sagt. Ef þú veist um einhvern betri GUI client fyrir OS X væru allar ábendingar vel þegnar.

Ein færsla

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég sit hérna, ferlega dofinn og stari á skjáinn. Er með ATB fastan í hausnum á mér, lagið hér að ofan er það sem snýst í hringi inn í kollinum, en þó á góðan máta. Mig vantar svo eitthvað að gera að það hálfa væri nóg.

Eina sem ég hef að gera á daginn er að dreyma um betra land, betra fjárhagslegt öryggi, betri framtíð fyrir börnin mín og auknir möguleikar með árunum sem virðast þjóta allt of hratt fram hjá manni.. Nema hvað, í hvert skipti sem ég loka augunum og leyfi mér að dreyma, þá sé ég aldrei Ísland fyrir mér..

Framtíð þessarar fjölskyldu sem ég er búin að stofna til er algerlega óráðin, hvar við verðum, hvað við gerum.. Hvernig okkur gengur.. Eina sem ég þykist vita er að hér er enga framtíð að hafa, því miður. Mig langar rosalega að fara td. til Noregs. Ástandið þar varð aldrei neitt í líkingu við það sem hér dundi á og mun hafa áhrif um ókomin ár.  

Ég veit ekki hvernig þetta fer allt, hér höfum við ekki öruggt þak yfir höfuðið, við höfum ekki öruggt far í vinnuna hennar Kristínar, við erum á nálum í hverjum mánuði.. Það er skelfilega óþægilegt og ónotarlegt að vita ekki neitt, vita ekki hvernig jólin verða, vita ekki hvort við verðum komin á götuna í byrjun næsta árs .. þetta er hreinlega niðurdrepandi.

Ef þú veist um starf úti, þekkir einhvern úti eða getur aðstoðað á einhvern máta, ekki hika við að bjóða mér aðstoð, ég þigg allt með þökkum! Ég er búinn að reyna hér á landi að sækja um störf, en ekkert fær maður. Í fréttunum í dag var meðal annars verið að tala um að Iceland Express hefði verið að auglýsa eftir fólki í störf hjá sér (50 samtals) og í so far þá eru 1200 manns búnir að sækja um, þar er ég meðal.. Hverjar haldiði að líkurnar séu fyrir tannlausa, þybbinn og þrítugann mann að fá starf í dag? Ég get ekki verið í þjónustustörfum, ekki auðveldlega allavega. Ef ég þarf mikið að tala við fólk þá bitnar það á getu minni til að sinna starfinu þar sem ég get nánast ekki talað íslensku rétt lengur sökum þess að ég þreytist svo fljótt á því að tala.. æji.. ég er bara við það að gefast endanlega upp ef ekkert fer að lagast..

Loksins loksins!

sansa-fuze-pmp-blackJæja, mér tókst loksins að encode’a vídeó á *nix fyrir litla sæta MP3 spilarann minn, sem spilar líka vídeó á sínum litla sæta skjá. Hingað til hef ég hinsvegar þurft að notast við crappy ass forrits frá Sandisk sem ber titilinn SMC (Sandisk Media Converter), sem er bara fáanlegur fyrir WindowsXP og nýrra og virkar EKKI í wine.. Í þokkabót þá hefur verið þvílíkt tap á samvinnu hljóðs og vídeós í skrám sem eru lengri en 10 mín að lengd (desync) ef ég hef encode’að með því sorglega tóli.

En núna, fann ég leið til að nota mencoder (besta tól allra tíma segi ég!) til að encode’a / transcode’a vídeó skrám niður í þær (sér)stillingar sem spilarinn þarfnast.

So far so good verð ég að segja, ég er búinn að testa að transcode’a nokkra trailera, valdi þá því þeir eru minni en annað og því fljótlegra að vinna með, en þeir hafa allir virkað perfect fram að þessu. Er núna að taka aðeins stærri bita, er að vinna með tvo þætti sem stendur og ef það virkar nægilega vel ætla ég að skella í gang vinnslu með eins og einni eða tveim kvikmyndum í nótt, sjá hvort það virki nógu vel =D

Ég hef verið spurður af hverju ég valdi þennan spilara fram yfir aðra sem í boði voru á þeim tíma sem ég fékk mér hann, hvers vegna ekki iPod td? Fyrir það fyrsta þá var þessi spilari á heilar 15.000 kr í Elko í sumar! Hann er 4GB og er með rauf fyrir MicroSD kort upp að 32GB að stærð, sem þýðir, max 36GB total stærð ef útí það er farið. Hann spilar FLAC, MP3, OGG Vorbis, WAV, WMA og secure WMA hljóðskrár. Svo spilar hann ASF, AVI, DAT, DivX(6.0), DVR-MS, MOV,  MP4, MPEG 1, QT, WMV og 3gp/3gpp2 vídeó skrár!

Allavega, fram að þessu hefur þetta virkað hjá mér, ég kem svo með ítarlegri kennslu á þessu síðar, þegar ég er búinn að fínpússa þetta allt og slíkt. Stór efast samt um að margir sem lesa þetta blogg eigi svona tæki, hvað þá að þeir séu að keyra linux en ekki Windows ;) En maður veit nú aldrei =)

Youtube vídeó í mp4 formi

Ákvað að deila með fólki smá scriptu til að sækja mp4 útgáfur af vídeóum frá Youtube.com.
Það eru til tonn af forritum sem gera þetta fyrir mann, en ég sé ekki tilganginn í að vera með eitthvað eitt forrit sérstaklega til þess þegar javascript eitt og sér getur græjað þetta fyrir mig úr vafranum sem ég er hvort eðer með opinn!

Sækja YouTube vídeó

Dragðu ofanverðan hlekk í bookmark stikuna hjá þér og þegar þú ert næst á Youtube að skoða eitthvað vídeó sem þig langar að eiga, smellirðu á þennan hlekk þar og vafrinn þinn byrjar að sækja vídeóið. Gæti ekki verð einfaldara!

Eina „slæma“ við þetta er að maður þarf að endurnefna skjalið sem maður endar með. Þessi scripta vistar alltaf mp4 skjölin sem video.mp4. En það tekur svo sum enga stund að græja nýtt nafn á skránna ;)

Vona að þetta gagnist fólki =)