Hér er það í dag, spurning hvað hverjum finnst. Læt bakgrunninn fylgja með í leiðinni líka.
Hér er svo bakgrunnurinn sem ég nota, vann þetta úr yfir 60MP mynd sem mér áskotnaðist í dag.
Jæja, þá er mitt útlit, mín fyrsta WordPress þema fyrir sjálfan mig, komin í gagnið á vefnum! =D Á að vísu eftir að fíflast slatta í henni, en heildarlook’ið er komið í gagnið. Nokk sáttur með það!
Fljótlega fer ég í það að rigga dropdown lista í valmyndina þarna uppi hægra megin, fara betur yfir font-family á síðunni, breyta mögulega, er með sama font-family globalt sem stendur, pæla í að rigga það eitthvað öðruvísi.
Hvernig leggst þetta annars í fólk ?
Hefurðu lent í því að horfa á síðu og sjá eitthvað sem er svoooo pirrandi að það hálfa væri nóg? Eða þá að þig langi hreinlega að láta part af síðu hverfa ? Guess what.. You CAN!
Eina sem þarf er að þú dragir þetta á stikuna í vafranum hjá þér:
Svo þegar þú vilt nota þetta á einhverri síðu, smellirðu á hlekkinn og þá sérðu rauða ramma undir músini fyrir þau svæði sem hægt er að fela á síðunni sem þú ert að skoða. Þetta er ómissandi á mörgum síðum þar sem ekki er boðið upp á hreina prentútgáfu, td. uppskriftir eða textabitar sem þig vantar að prenta út.
Heiðurinn að þessum kóða fær að sjálfsögðu Chris Coyier á CSS-Tricks.com, en ég nappaði þessu þar hjá honum og vildi dreifa áfram.
Jámm, það eru breytingar væntanlegar!
Fann svo lítið sem ég hélt ég hefði glatað. En fyrst ég fann það þá er ég að sníða það fyrir þessa síðu. Hvað er það? Jú, það er gamla þeman sem ég var með þegar ég byrjaði fyrst með lénið og var að keyra Scribe:Blog.. Ef þú mannst ekki / veist ekki hvað ég er að tala um, þá kannski kveikir þessi mynd hér að neðan á einhverri peru ? ;)