Jæja gott fólk!
Þá er Axel karlinn loksins kominn með almennilegt logo, sat núna í kvöld og var að dunda mér við að malla logo, en það má sjá útkomuna í gallerý’inu hér fyrir neðan.
Héðan í frá munu öll verk vera merkt mér með öðru hvoru logo’inu sem sést þarna =)
Neðra er svo nú þegar komið í notkun í fæti allra pósta sem ég sendi, þannig að.. it has begun!
Annars fórum við í myndatöku hjá Eydísi frænku núna fyrir að verða 2 vikum síðan, langar að deila hérna með ykkur örfáum myndum sem voru teknar af okkur þar.