Monthly Archive for janúar, 2010

Helgin komin

En ég fæ enga afslöppun ;D Verð í skyndihjálparnámskeiði alla helgina í tengslum við meiraprófið mitt, svo á þriðjudaginn byrja ég í bóklega náminu “stór ökutæki” og “bifreiðartækni 2″, shit hvað ég hlakka mikið til =D

Annars rakst ég á nokk skemmtilega frétt áðan á /. sem talar um hvernig skiptingin er á kóða sem er notaður í Linux kjarnann, þeas. hvaðan kemur sá kóði ? Jú.. 75% af þeim kóða sem var sendur inn á bilinu 24 desember 2008 til 10 janúar 2010 var skrifaður af fólki sem er borgað fyrir það af sínu fyrirtæki, þám. eru fyrirtæki á við Intel, IBM, Red Hat og Novell. Aðeins 18% af þeim kóða sem sendur var inn á þessum tíma var ekki merktur neinum fyrirtækjum.

Hvað sýnir þetta okkur? Jú, fyrirtæki eru farin að eyða meiri tíma og meiri pening í að vinna við Linux og það hjálpar okkur öllum. Þetta þýðir að við fáum [líklega] fyrr stuðning við nýjustu tækin og innvolsið í vélum.

Mér finnst þetta skref í rétta átt =D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Böggandi plugin

Ég er búinn að vera með eitt plugin sem heitir Sociable og ég fíla vel, þið sjáið það í botninum á hverri færslu sem ég hef sett á vefinn, þessi litlu icon þarna til að deila færslum með öðrum á td. Facebook, MySpace og fleirri álíka síðum. Well.. það var alltaf eitt sem var bögga mig við þetta plugin sem ég vildi helst ekkert hafa. Þeas. þegar maður installar því þá kemur inn rss straumur af Twitter straum forritara Sociable á forsíðunni eins og sést hér til hægri.

Jú, vissulega er hægt að slökkva á þessu með því að fara í “Screen Options” og afhaka þar (sjá þessa mynd) en þá er þetta samt þarna inni, hangir þarna endalaust og ögrar mér =P Ég er skrítinn, I know! En ég vil hreinlega ekki hafa þetta þarna, þetta eykur tímann sem tekur að loada síðunni.

Þannig að ég ræsti upp Coda hjá mér og fór að skoða þessa viðbót og komst að því að það er mjög einfalt að laga þetta til frambúðar eða næstu uppfærslu á viðbótinni.

Þessar leiðbeiningar eiga náttúrulega bara við ef þú ert sjálf/ur að nota WordPress með þessari viðbót. Ef þú opnar skjalið “sociable.php” sem ætti að vera undir “wp-content/plugins/sociable/” og scrollar þar alveg í botninn ættirðu að sjá svipaða mynd og er hér að neðan.

Nema að í stað “true” sem er á myndinni ætti að vera “false” hjá þér. Það eina sem þú þarft að breyta er að setja “true” í staðin þarna og þá ertu laus við þetta og síðan er sneggri að opnast =)

Þar að auki langar mig að benda á aðra viðbót sem ég fann þegar ég var að skoða allt og ekkert í dag, en hún sér um það að endursníða bakendan auk innskráningarinnar, ef þess er kosið, á WordPress og heitir “Fluency“. Að mínu mati mættu þeir kauðar sem standa á bakvið WordPress taka þetta útlit sér til fyrirmyndar og jafnvel gera þetta default útlitið í +3.0.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Ofnotkun Flash

Er það bara ég eða er fólk virkilega farið að misnota Flash ? Ég leit inn á mbl.is áðan í Safari þar sem ég er með plugin sem blockar Flash en leyfir mér að virkja stakt eins og mér hentar, lítið bara á þessa mynd og sjáið hvað þið teljið mörg svæði sem Flash er í notkun á =/

Fyrir mitt mat er þetta alltof mikið..


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Smá nostalgía

Rakst á vídeó fyrr í dag með hljómsveitinni Opus3 sem ber titilinn “Fine Day” og mér var hugsað til söngkonunnar sem syngur í laginu, en hún heitir svo mikið sem Kirsty Hawkshaw og á nokkuð góðan sólóferil sjálf. Ég á eitthvað af lögum með henni, sem voru meðal annars gefin út á Future Music geisladiskum (CD sem fylgdu blaðinu í hverjum mánuði).

Þar er þetta lag hér að neðan, ég mæli eindregið með því að hlusta á þetta lag fyrir hvern sem er.. gefur mér alltaf gæsahúð að hlusta á það =)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Þá má að auki nefna að í hvert skipti sem ég heyri þetta lag, þá minnir það mig alltaf á fyrstu dagana sem ég og Kristín vorum að kynnast =)


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Smá dútl

Var að leika mér að tengja gamlan CRT skjá við linux skráarþjónin undir borði, nota svo Synergy til að vinna á þá vél með lyklaborðinu og músinni sem eru tengd iMac’anum. Eins og sést á meðfylgjandi mynd staðsetti ég þennan CRT skjá á toppnum á kommóðunni sem er bakvið iMac’inn hjá mér og því get ég meðal annars horft á vídeó og hlustað á tónlist í þessari vél núna.

Virkar óttarlega nice og gefur mér alveg eitt nördastig í kladdann að mínu mati ;D

Annars er það í fréttum að Kristín er byrjuð í fjarnámi í FÁ, er að hjálpa henni með 2 stærðfræðiáfanga á þessari önn. Svo er ég skráður og byrjaður í C og D meiraprófsnámi. Verð komin með réttindi um miðjan/lok febrúar.

Litli strákurinn í mér hoppar af kæti og tilhlökkun með að fara í verklegu tímana, held barasta að ég hafi ekki verið svona slæmur frá því ég var 5-6 ára gamall og beið eftir því að síðasti jólasveinninn kæmi með pakkann sem ég fékk í skóinn á aðfangadag ;D

Jólin og áramótin voru góð hjá okkur að undanskildum mjög erfiðum dögum bæði fyrir jól og milli jóla og nýárs. Fengum fregnir af því um miðjan mánuð að Óli vinur okkar væri látinn, aðeins 24 ára að aldri. Þetta var skellur sem snerti okkur gífurlega og tók alltof mikið á. Við vorum hérna fyrstu dagana eins og vofur. Svo urðum við að taka á okkur tak og halda jólin fyrir börnin og okkur sjálf.

Svo milli jóla og nýárs var jarðaförin. Ég var einn af 8 sem bar kistuna úr kirkjunni og í bílinn. Við stóðum svo vörð um hann meðan allir komu og kvöddu hann.

Núna eftir áramót er maður búinn að vera misjafn eftir hvaða dagur er, sumir dagar eru góðir, aðrir slæmir. Hverju því er að kenna um er óttarlega breytilegt, held ég sé bara hægt og rólega að missa vitið sökum þess að hafa verið atvinnulaus svona lengi, sama hvað maður sækir um, þá fær maður ekkert .. sama hvað ég reyni að gera, það gerist ekkert =/

En.. bjartari tímar framundan vona ég! Ég er allavega að taka meirapróf, þannig að ég eyk allavega líkurnar á því að fá starf ;)

Svo tókst mér að laga leiðindar vandamál sem ég átti við WYSIWYG editorinn í WordPress.. Málið er að ritillinn í WordPress er tvennskonar, annarsvegar svo kallaður WYSIWYG (en. What You See Is What You Get, einnig þekktur sem Visual editor) ritill og hinsvegar plain text (HTML) viðmótið þar sem þú sérð allan kóða og slíkt. En allavega, þegar ég reyndi að nota Visual ritilinn þá tókst mér aldrei að vista, hann hlóðst ekki inn og ýmislegt rugl. Svo ákvað ég að kíkja í dag aðeins á þetta með hjálp FireBug og þá sá ég einstaklega skrítna villu og eftir að hafa vafrað í töluverða stund á Google var ég engu nær.

Var búinn að testa að setja nýtt wp-includes inn hjá mér en það gerði lítið, því næst testaði ég að setja wp-admin möppuna inn upp á nýtt en það var sama sagan. Á endanum fór ég að kíkja á hin og þessi plugin sem ég er með virk og viti menn, eitt þeirra var að valda því að jQuery var ekki að virka sem skyldi á síðunni, þar sem þetta er plugin sem ég hef lítið notað og get vel lifað án, ákvað ég að taka það bara út og eyða.

Svo í lokin er tvennt sem stendur uppúr sem mig langar að minnast á =) Í fyrsta lagi þá fórum við loksins á Avatar núna um helgina og guð minn góður! Ég vildi varla fara úr bíó’inu! Shit hvað þessi verður versluð á BluRay þegar hún loksins kemur á slíkt! Myndin var hreinn unaður að horfa á og djöfulli lifði maður sig inn í myndina, ég get svo svarið það að hjartað fór allavega tvívegis í brækurnar hjá mér útaf lofthræðslu í mér varðandi tvö atriði í myndinni.. það hef ég aldrei á ævinni upplifað áður við að horfa á bíómynd!

Seinna atriðið er að við ákváðum okkur að leyfa okkur þann lúxus að nota peninga sem ég fékk í afmælisgjöf til að versla okkur Playstation 3 vél. Þar sem Biggi mágur er sífellt á ferðinni til og frá landinu þá erum við búin að biðja hann um að versla eitt stykki fyrir okkur í fríhöfninni þegar hann kemur næst til landsins, sem verður um miðjan næsta mánuð. Þannig að, eftir 2-3 vikur verðum við hreyknir eigendur PS3 vélar =) Shit hvað ég á erfitt með að bíða samt, hlakkar til að geta horft á 720 og kannski 1080 (ef TV’ið dekkar það) myndefni í vélinni.. BluRay myndir og slíkt..

Annars held ég að ég láti þetta duga í bili, nokkuð stór og góð færsla so far. Skil við ykkur með smá preview’i úr verkefni aldarinnar hjá mér hér að ofan ;D


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr