
Ég er búinn að vera með eitt plugin sem heitir Sociable og ég fíla vel, þið sjáið það í botninum á hverri færslu sem ég hef sett á vefinn, þessi litlu icon þarna til að deila færslum með öðrum á td. Facebook, MySpace og fleirri álíka síðum. Well.. það var alltaf eitt sem var bögga mig við þetta plugin sem ég vildi helst ekkert hafa. Þeas. þegar maður installar því þá kemur inn rss straumur af Twitter straum forritara Sociable á forsíðunni eins og sést hér til hægri.
Jú, vissulega er hægt að slökkva á þessu með því að fara í „Screen Options“ og afhaka þar (sjá þessa mynd) en þá er þetta samt þarna inni, hangir þarna endalaust og ögrar mér =P Ég er skrítinn, I know! En ég vil hreinlega ekki hafa þetta þarna, þetta eykur tímann sem tekur að loada síðunni.
Þannig að ég ræsti upp Coda hjá mér og fór að skoða þessa viðbót og komst að því að það er mjög einfalt að laga þetta til frambúðar eða næstu uppfærslu á viðbótinni.
Þessar leiðbeiningar eiga náttúrulega bara við ef þú ert sjálf/ur að nota WordPress með þessari viðbót. Ef þú opnar skjalið „sociable.php“ sem ætti að vera undir „wp-content/plugins/sociable/“ og scrollar þar alveg í botninn ættirðu að sjá svipaða mynd og er hér að neðan.
Nema að í stað „true“ sem er á myndinni ætti að vera „false“ hjá þér. Það eina sem þú þarft að breyta er að setja „true“ í staðin þarna og þá ertu laus við þetta og síðan er sneggri að opnast =)
Þar að auki langar mig að benda á aðra viðbót sem ég fann þegar ég var að skoða allt og ekkert í dag, en hún sér um það að endursníða bakendan auk innskráningarinnar, ef þess er kosið, á WordPress og heitir „Fluency„. Að mínu mati mættu þeir kauðar sem standa á bakvið WordPress taka þetta útlit sér til fyrirmyndar og jafnvel gera þetta default útlitið í +3.0.
