Næsta skref

Ég er mikið að pæla í að reyna að leggjast í það að læra betur á Photoshop fljótlega, eftir að hafa verið að skða allt og ekkert á netinu hvað fólk er að gera með Photoshop..

Hér er td. eitt vídeó sem ég rakst á núna áðan.

Þetta er bara flott sko ;D

Flakkara vesen enn eina ferðina

Eins og flestir muna kannski þá lenti ég í þvílíku veseni með flakkara sem ég verslaði mér fyrir rúmu ári, ofhitnaði og ég hélt á tímabili að hann hefði grandað öðrum disknum mínum (ChaosSR heitir hann), en nú er ég kominn með nýjan, eins flakkara, með diskunum mínum aftur í. Báðir diskarnir virka fínt enn sem komið er, fyrir utan eitt!

Það er fínn leshraði af báðum diskunum en bara fínn skrifhraði á annan þeirra, hinn (ChaorJR heitir sá) tekur varla við neinum gögnum hraðalega séð..

Ég tók nokkur screenshot af smá testi sem ég gerði, sjá hér að neðan.

Eins og sést hér á myndinni þá er ég að kópera af ChaosJR yfir á harða diskinn í tölvunni og það tekst bara bærilega, 798MB á 31 sek, sem reiknast sem 25MB/s. USB2 býður mest upp á 480Mbps sem er um 60MB/s þannig að þetta er ekki beint það hraðasta sem til er, en samt alveg normalt þannig séð.

Á þessari mynd sést hinsvegar að hraðinn við að skrifa þetta sama skjal, varð að vísu að endurnefna það til að overwrite’a ekki fyrra skjalið, tekur 10m og 54sek… það er þá útreiknaður hraði upp á 1.2MB/s í stað 25MB/s sem ég fæ úr því að lesa..

Skriftestið á hinn diskinn í flakkarann er á svipuðum nótum leshraðinn er af báðum diskunum, þeas. um 37sek að skrifa þetta skjal þarna.. Ég er gjörsamlega tómur með hvað þetta gæti verið, hvort að diskurinn sé að láta leiðinlega útaf flakkaranum eða hvort þetta sé bara flakkarinn sem ég er með?

Ég er allavega búinn að testa að aftengja báða diskana, hafa bara annan í einu, víxla þeim milli slotta og slíkt, en alltaf fæ ég sama hraðann..
Ég er ekki með neina vél hérna sem ég get testað SATA2 diska í sem stendur þannig að ég get ekki staðfest þannig heldur hvort þetta sé klárlega diskurinn eða ekki..

Spurning um að fara með diskinn til einhvers sem er með SATA/2 vél og er tilbúin að leyfa mér að leika mér aðeins með hana?