Rakst á vídeó fyrr í dag með hljómsveitinni Opus3 sem ber titilinn „Fine Day“ og mér var hugsað til söngkonunnar sem syngur í laginu, en hún heitir svo mikið sem Kirsty Hawkshaw og á nokkuð góðan sólóferil sjálf. Ég á eitthvað af lögum með henni, sem voru meðal annars gefin út á Future Music geisladiskum (CD sem fylgdu blaðinu í hverjum mánuði).
Þar er þetta lag hér að neðan, ég mæli eindregið með því að hlusta á þetta lag fyrir hvern sem er.. gefur mér alltaf gæsahúð að hlusta á það =)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Þá má að auki nefna að í hvert skipti sem ég heyri þetta lag, þá minnir það mig alltaf á fyrstu dagana sem ég og Kristín vorum að kynnast =)
